Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.10.1946, Side 40

Skólablaðið - 01.10.1946, Side 40
FRIÐRIK SIGURBJÖRNSSON, stúdent 1946: „Einu sinn var. . . Einu sinni var ég lítill, miklu minni en ég er núna, og þá var ég bara nokkuð stór eftir aldri. Og það veit heilög hamingjan, að í þá daga var ekki litið á mig sem einhvern lítinn ,,kalla“ af krökkunum í kring. — Nei, ég var potturinn og pannan í öllu þeirra brauki og bramli og lét mig hvergi vanta, þar sem eitt- hvað spennandi gerðist. Árin, sem ég var krakki, standa mér ljós- lifandi fyrir hugskotssjónum. Þau eru sveip- uð bláma ævintýrisins, líkt og hetjusögur fyrri alda, en þó eru þau sönn og sannleik- anum samkvæm. Ég og krakkarnir, sem með mér voru, erum eins og persónur í skáldsögu, sumir aðalpersónur og aðrir aukapersónur eins og gengur. Umhverfið var Reykjavík með mjóu göt- unum og timburhúsunum, því að þetta var áður en steinhúsin fóru að setja svip sinn á bæinn. Það var nú heldur betur upplit á þeim stutta, þagar hann kom í fyrsta sinn út á götu með hendurnar í buxnavösunum. Bux- urnar voru bláar, og vasarnir voru stórir og rúmgóðir og tóku ósköpin öll af nöglum og öðru fínu drasli, sem nauðsynlegt taldist í þá daga, og svo voru þeir líka svo dæmalaust hlýir og skjólgóðir. Það var hreinn óþarfi að ganga með vettlinga þann veturinn. Dömurnar, sem léku sér að dúkkunum sín- um á gangstéttinni, litu upp og horfðu á eftir stráknum í bláu buxunum, sem spígsporaði eftir götunni og blístraði brot úr broti af lagi, sem hann hafði nýverið lært. — „Já, þessi var svei mér fínn,“ og svo greiddu þær litlu lokkana frá enninu. Þær voru nefnilega svo- Friðrik Sigurbjörnsson lítið fínar líka. — Þá vildu allar með mér ganga. Ég labbaði til einnar. Hún var dökk- hærð. Hún varð bæði hrædd og hissa. Svo stamaði hún upp: ,,Á ég að vera með þér?“ — Ég virtist ekkert vera áfjáður í það og steinþagði. — En litla daman var ekki af baki dottin. „Ég á líka tvo aura“. Þá stóðst ég ekki mátið, og við fórum í mömmuleik. En hún vildi endilega hafa einhvern ,,frænda“ með í spilinu, og hann gát ég ómögulega þolað og hótaði að klaga hann fyrir pabba, en stráksi ,,brúkaði“ munn og sagði: „Pabbi minn er póliti. Hann getur bara tekið pabba þinn.“ — Við þetta varð ég svo skelkaður, að ég sagði bless og labbaði upp í holt, þar sem einu sinni stóð Skólavarðan. Rétt neðan við hana stóð steinstöpull, og við krakkarnir trúðum þvi, að það væri reykháfurinn hennar Grýlu og þorðum varla að nálgast hann, því að hún var alltaf „að sjóða til jóla“. 38 SKÓI.ABLAÐIÐ

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.