Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.10.1946, Page 46

Skólablaðið - 01.10.1946, Page 46
LÁRUS SIGURBJÖRNSSON, rithöfundur: Menntaskólaleikurinn Menntaskólaleikurinn er jafngamall skól- anum. Þar með er í rauninni ekki annað sagt, en að hann sé 100 ára eins og skólinn. En hann er miklu eldri. Vegna þess að skóla- piltar í Bessastaðaskóla sýndu leikina um Álf á Nóatúnum í svefnlofti skólans, og á undan þeim sýndu skólapiltar í Hólavallar- skóla leikrit Sigurðar Péturssonar og Geirs Vídalíns í annari kennslustofu skólans, og enn á undan þeim héldu skólapiltar í Skálholti Herranótt á hverju hausti og léku leiki á leiksviði milli Reflaskemmu og Stórabúrs í Skálholti, vegna þess að frjóangi leiklistar- innar hafði alla tíð legið í góðum jarðvegi í skólanum, var eðlilegt, að einhver fyrsti ávöxturinn af flutningi skólans úr sveit í bæ kæmi fram í sjónleikjahaldi pilta. Þó Reykja- vík væri litill bær fyrir 100 árum, þá voru hér samt nægilega margir áhorfendur til að fylla Langaloft tvisvar þrisvar, sinnum, og Djákninn (Guðiaugur Hannesson) og hjónin á Brekku (Elín Guðmannsdóttir og Björn Sveinbjarn- arson). Lárus Sigurbjörnsson þá varð frístundum jólanna ekki betur varið en til að undirbúa sjónleiki og sýna. Fyrir miðja öldina voru sýndir tveir gleðileikir Holbergs: Hinn önnum kafni og Erasmus Montanus, en eftir það hefur skólaleikurinn aldrei fallið niður með öllu, þó að stundum hafi liðið nokkurt bil ára milli sýninga. Það er of langt mál, að telja upp alla þá sjónleiki, sem sýndir hafa verið af skólapilt- um Lærða skólans og nemendum Menntaskól- ans í Reykjavík. Þeir eru eitthvað á annað hundrað talsins, því að sum árin voru sýnd tvö og jafnvel þrjú leikrit, ef þau voru stutt. Úr fjöldanum skera sig þau leikrit, sem voru frumort í skóla, en margar afbragðsgóðar þýðingar á erlendum leikritum voru gerðar innan veggja skólans. I fyrri flokknum ber hæzt Nýjársnóttina eftir Indriða Einarsson, en skemmtileg og leikhæf enn þá eru líka leik- rit þeirra Kristjáns Jónssonar og Valdimars Briems: Misskilningurinn og Jólaleyfið. Þá er Prófastsdóttirin eftir Stefán Stefánsson og Valtý Guðmundsson mjög athyglisverður sjónleikur fyrir þá tilhneigingu, sem þar kemur fram að skrifa ,,realistískt“ drama, 44 SKÓLABLAÐIÐ

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.