Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.10.1946, Síða 59

Skólablaðið - 01.10.1946, Síða 59
BJÖRN SIGURBJÖRNSSON, 2. bekk: HANN GVENDUR . . . I þorpi einu hér suður með sjó býr hann Gvendur með konunni sinni, henni Gunnu. Þau eiga þar kofagarm, sem er að falli kominn, en hann hafði Gvendur keypt fyrir nokkrum árum og stundaði þaðan sjóinn, en það lánaðist fremur illa. Þegar saga þessi hefst var Gvendur við ýmiss konar dútl, netastagl og fleira þess háttar. Kella hans þvoði upp eftir hádegis- matinn, en þá heyrðist allt í einu knúð dyra. Gunna tók viðbragð og stökk til dyra, en Gvendur þrífur til hennar og segir með þjósti: ,,Hægan, kelli mín, þessu á ég að anza, en ekki þú.“ ,,Og það er ekki til þín, frekar en til mín, meðan við höfum ekki opnað“ segir Gunna allreið. „Svona, svona kona góð, það er eitt sem er ,,sikkert“, að það er til mín.“ Þau kíta þarna góða stund, þar til er sá, sem úti beið varð óþolinmóður, reif upp hurð- ina og gekk inn. ,,Sæl verið þið, heiðurshjónin,“ segir hann, ,,ég er kominn til þess að tala við hann Gvend núna, Gunna mín. Ekki vildir þú lofa honum að koma hér útfyrir og tala við mig einan?“ Það krymtir einkennilega í Gunnu, sem líklega átti að merkja, að henni sé ekkert vel við svoleiðis baktjaldamakk. Gvendur gengur síðan út með komumanni, en hann er kunn- ingi Gvendar frá gamalli tíð. ,,Þú værir ekki tilkippilegur að skreppa með okkur inn til Reykjavíkur á eftir, Gvend- ur minn?“ ,,0, nei! Heldurðu að ég nenni þangað núna? Hvað á svo sem að gera? Ekki nokk- urn skapaðan hlut. Það er „sikkert“!“ Björn Sigurbjörnsson. Aðkomumaður, sem Jón nefndizt laut að Gvendi og hvíslaði í eyra hans: „0, láttu þér hægt, karl minn um erindis- leysuna. Það verða nokkrar „hálsmjóar" með í förinni.“ „Ha, það var nú annað mál,“ segir Gvend- ur, og glaðnar nú heldur yfir honum. „Það máttu vera viss um, að ég fer með strax, það er „sikkert"! — En það er bara hún Gunna? O, jæja, skítt og ,,lago“!“ Síðan ganga þeir inn. „Gunna mín,“ segir Gvendur blíðmáll, „ég þarf að skreppa inn til Reykjavíkur rétt sem snöggvast." Gunna setur upp ógnandi svip og ætlar að SKOLABLAÐIÐ 57

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.