Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.10.1946, Page 61

Skólablaðið - 01.10.1946, Page 61
LUBBA: GETURÐU ÞAGAÐ? Það er merkisatburður í lífi hvers barns, þegar það er sent eitt síns liðs í fyrsta skipti í sveit. Vorið, sem ég var sjö ára gömul, var ég, í fyrsta skipti á minni stuttu æfi, sendi ein í sveit. Mamma fór með mig niður að bíl og klapp- aði mér þar og kyssti, síðan bað hún bílstjór- ann fyrir mig, og sagði mér, að skila beztu kveðjum til hennar frú Sigríðar á Ólafsstöð- um. (Ólafsstaðir hét bærinn, sem ég ætlaði til). Um kvöldið, þegar komið var að Ólafsstöð- um, var ég sofnuð, og varð Játvarður bóndi að bera mig inn í bæ, því að það reyndist ógjörningur að vekja mig. — Daginn eftir, þegar ég vaknaði, var ég heldur viðutan. Ég kannaðist ekki við þetta umhverfi, og ég þekkti ekki fólkið á bænum. Það leið þó ekki á löngu, þar til ég kynntist Pusa. Pusi var strákur á svipuðu reki og ég; hann hét að vísu Filippus, en var alltaf kallaður Pusi. Pabbi hans var bóndinn á bænum og spilaði í kirkjunni á Stað. Vikan leið fram að sunnudegi, og fóru þá allir ríðandi til kirkju. Mér fannst hálfgerð „Nei, nei, Gvendur minn, svoleiðis gerum við læknarnir aldrei.“ „Ha, aldrei? Það er nú líkast til, þegar þið getið ekki bjargað mannskeppnunni, bara gef- ið þið henni nógu sterka sprautu. Það er ,,sikkert“. Gerðu það bara strax, það er búið með mig, hvort sem er. En besvítans læknir- inn gerði hreint ekki neitt. Ég tel það ekki að hann lét mig ,,laxera“ þarna á stundinni, og auðvitað kom nú jaxlartetrið að lokum.“ Nú fer Gvendur að skoða landslagið og þrátt fyrir að farið var að skyggja kannazt Gvendur einkennilega vel við sig og segir: „Mikið er nú lík leiðin hingað að Hóln- um og suður til mín, ha? Félagarnir segja ekkert, en smábrosa, hve framan í annan, þangað til einn þeirra segir: „Já, það er nú margt líkt á íslandi, Gvendur minn. Ó, já!“ Þegar þeir eiga eftir svo sem hálftíma akst- ur, bæta þeir duglega á sig, svo að þeir eru vel þéttir á ný, þegar þeir komast í hlað hjá Gvendi Hann er yfir sig hrifinn að vera nú kominn að Kolviðarhóli. Þeir segja honum að fara og banka upp á. Gvendur gerir það, eftir beztu getu, allvaltur á fótunum. Kona nokkur, sem Gvendur kannast vel við, kem- ur til dyra. Gvendur trúir vart sínum eigin augum og hrópar upp yfir sig: „Ha! Gunna hér? Alltaf vissi ég, að þessi rækals Gunna myndi elta mig hvert sem ég færi um Suðurnes, en upp að Kolviðarhóli —.“ Nú rennur upp ljós fyrir Gvendi; Hann snýr sér við, steytir hnefana í átt til félaga sinna í bílnum. „Nú, já, það eruð þá þið, sem — — —.“ Gvendur þagnar. — Bíllinn er horfinn. Það er runnið allmjög af honum, og þarna stendur hann nú titrandi af reiði eitt augnablik, en þá er þrifið í hann aftan frá og honum hent inn fyrir dyrnar. Það var Gunna. „Ó, já, mið grunaði hvers- lags ,,verzlunarerindi“ þetta væru,“ hvín í henni og litlu síðar lék húsið á reiðiskjálfi. — Það var Gunna að gera upp reikningana við bónda sinn eftir kaupstaðarferðina. SKÓLABLAÐIÐ 59

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.