Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.11.1946, Blaðsíða 4

Skólablaðið - 01.11.1946, Blaðsíða 4
- 4 - Pelagslífið í skólanum hefur verið með daufasta móti það sem af er þessu starfsári. Því er illa farið. Felögin Fjölnir og Framtíðin eiga að halda uppi reglulegum fundum. Þar eiga nemendur e6 ræða áhugamál sín á þann veg, að þeirn verði nokkur somi að, en ekki bla.ðra ein- / hverja vitleysu, sem hvorki ræðumenn ne áheyrendur gera tilraun til að taka alvar- lega. Lærdomsdeildarnemendur ættu að hefa náð því þroskastigi að geta gert ser J;ess Ijósa grein, að þau mál, sem rædd eru a málfundum, eru í flestum tilfellum alvöru- mál, sem við, nemondur þessa skóla, eigum að taka föstum tökum og lýsa skoðun okkar á með þeirri festu, sem einkennir þau ungmenni, sem skilja að þjóðfólagið þarfn- ast þeirra. Framtíðin hefur haldið tvo fundi £ vetur. Baðir hafa þeir orðið nemendum til skamma.r. A fyrri fundinum átti að ræða hið svokallaða "herstöðvamál". Framsaga í málinu var falin Skula Benediktssyni.Þetta umræðuefni hefði mátt báast við að ætti mikinn hljómgrunn í skólanum. Mal þetta er nefnilega það málið, sem mest hefur verið deilt um á íslandi síðustu missirin. Hver einasti íslendingur ætti að láta sig jetta mál miklu skipta. HÓr er á ferðinni mál, sem varðar lífsskilyrði allra landsmanna á komandi tímum. ÞÓtt samningur hafi nú verið gerður við Bandaríkin um stöðvar her á landi, er málið alls ekki úr sögunni. Hlutverk okkar hir^nar uppvaxandi æsku, verður að heimta aftur þessi landssvæði, sem þrjátíu og tveim þingmönnum tókst að leggja undir erlent hervald. Maður skildi nú ætla að þessi Framtíðarfundur hafi verið f^ölmennur. Því miður varð önnur raunin a. Aðeins rúmloga 30 nemendur mættu. ústæðurnar til þess, að svo fáir mættu á fundinum eru vafalaust þær, að fundurinn var illa aug- lýstur, en aðalástæðan mun vera alvar- legri. Það virðist nefnilega ver staðreynd, að nemendur þessa skóla, munu vera svo andlega fátækir vesalingar, að þeim er alveg sama hvernig forráðamenn þjóðkr- innar verzla með þá sjálfa eins og hvert annað tros. Þetta er þ-ungur dómur, en þvi miður held óg að hann só ekki mikið ýktur. Þeir, sem ekki mæta á fundum, þar sem rætt er um framtíð þeirra sjálfa hafa að sjálfsögðu ýmislegt sór til afsökunar. í fyrsta lagi geta þeir sagt, að á þessum fundum sóu ekki teknar neinar ákvarðanir um framtíð þeirra nó annarra. Á þessum fundum só aðeins rætt um þessi inál, óað er að segja, ef umræðurnar fara þá framí ræðuformi, en ekki samtals. Einnig munu þeir menn, sem að undan- förnu hafa mestu ráðið í utanríkisstefnu fslendinga, hafa rýrt svo mjög gildi funda og fundasamþykkta, með því að virða að vettugi samþykktir fjöldafunda, som þusundir landsmanna hafa staðið að, að menn eru farnir að gera sór ljóst, að hja slíkum forráðamönnum á fjöldinn cngan hljómgrunn. Þetta er mikið rótt.Hins vegar er ekki hægt að efast um það, að fundir sem þessir eru broskandi, ef það, sem um er rætt er krafið til mergjar 0g allra sjonarmiða gætt. SÓu mál rædd af skyn- semi a slíkum fundum hlýtur það að verða til þess að þeir, sem á hlýða og ekki hafa myndað sór ákveðna skoðun á málunum, aðhyllast einhverja þá skoðun, sem fram , hefur komið. Þá er ekki illa farið, því að skoðunarlaus unglingur er eins og skýjahnoðri, sem berst aðeins í þá átt sem vindurinn blæs á þeim stað, þar sem hann or. Eins og áður er sagt, hafði Skúli Benediktsson framsögu í málinu. Hann brast algerlega því hlutverki, sem honum var farið. Framsöguræða hans var nefni- lega illa undir búin og alls ekki um herstöðvamálið. Eæðan var ádeila á ríkis- stjornina og það, sem sú stjórn tók sór fyrir hendur, þ.e. nýsköpun atvinnuveg- Frh. á bls. 28.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.