Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.11.1946, Side 8

Skólablaðið - 01.11.1946, Side 8
- 8 - þótti 'vænlegastir til nægilegs skriðdýrs- j og undirlægjuháttar. Seinast á fundinum, þegar flest allir. eru farnir að tínast út, er kosið í jóla- ! gleðinefnd. Það átti að kjósa 7» en 8 voru í franiboði. En B.B.J. nennti þá ekki j að láta kjósa um þá, heldur tautaði við sjálfan sig, að hezt væri að kjósa einn af' framboðslista, Voru síðan tveir menn born-: ir upp af honum, en þar sem flestir hóldu að verið væri að kjósa í nefndina, fekk Leifur Hannesson allmörg atkvæði. Setti B^arni Bragi hann þá af listanum og flytti ser að slíta þeim fundi, sem bezt hefði farið á, að aldrei hefði verið settur. Eftir þennan fund var þess farið a leit við Bjarna Guðnason, scriba scholaris ; að hann leifði mönnum að sjá þau lög eða j reglugerðir um skólafundi, sem samþykkt voru fyrir nokkrum árum. En sem vonlegt var taldi hann öll tormerki á því, enda hefur hún (reglug.) enn verið brotin eins j rækilega og unnt er. Það verður eigi annað sagt en inspector hafi dregið alranga hugmynd um gildi hinna 160 atkvæða, sem hann fekk við inspectorskosningar. Hann var kosinn in- spector scholae, en ekki dictator scholae.,: En í skálkaskjóli þess misskilnings síns hefur hann gert sig beran að fulkominni óvirðin^U við fundarsköp, vísvitandi fölsun a atkvæðatölum og algerlega brugð- izt þeim litlu vonum sem við hann voru tengdar. Og Bjarni Guðnason hefur,- með því að leggja blessun sína yfirþetta framferði, sýnt að hann er eigi amiað-en auðmjúkur skósveinn Bjarna Braga. NÚ á þessu 101. ári okkar öldnu og virðulegu stofnunar hefur frjáls andi^og hugsunarháttur, sem ætíð hefur rikt her, verið meira fótum traðkaður en nokkur dæmi| eru til £ allri sögu skólans. Og það verður ekki komið í ve^ fyrir áframhald- andi ofbeldisverk kommunistaskrílsins £ skólanum, nema með sameiginlegri og biturri fyrirlitningu allra heiðarlegra j manna a honum. Með þökk fyrir birtinguna. 6l. H. ólafsson. 4. G. -0-0-0-0-0-0-o- (Harmagrátur hins óframfærna.) Hann skrýðist finasta skarti og skoðar sig allt £ kring, skundar svo on£ skóla, þar skal verða dansæfing. "Nu skal Ig herða'upp hugann”, hu^sar hann fyrst með sór. "Nu skal eg dansa drengir, dansa og skemmta mór". En hann er svo fjarska feiminn. á framkvæmdum verður bið. Eann stendur við dyrnar stúrinn og starir á dansfólkið. "Ætti óg arniars að þora? Er ekki betra næst?" 0g valið a dömunni verður vandamal allra stærst, Ein er svo anzi litil, önnur er likust geit, Þessi er helzt til horuð, hin er jú alltof feit, En þarna er ein svo indæl, þá ætlar hann loks á stað, en það varð annar á undan, ekki er að tala'um það. Hver stund er ei- lengi'að liða, loks kemur síðasti dans. Brátt er ballið á enda og búinn er allur "sjans", Svo, þegar allt er úti, álpast um Víkurborg herra í fínum fötum, en fullur af skömm og sorg. Það var ein sorgarsaga, er sögð var í þessum brag. HÚn endurtekur sig alltaf annanhvern. laugardag. I.G. 0-0-0-0-0-0-0-0-0

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.