Skólablaðið - 01.05.1947, Síða 3
RITNEFND:
SKÓLABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT í MENNTASKÓLANUM í REYKJAVÍK
22. árg. Maí 1947 5. tbl.
Lokaor
Þetta blað, sem nú loks er komið út, er síðasta blaðið af þessum árgangi.
Drátturinn á útkomu blaðsins stafar aðallega af því, að von var á fjölritunarpappír og bið-
um við eftir honum. Þegar sá dráttur var orðinn ískyggilega langur, tókum við það til bragðs
að reyna að fá blaðið prentað. Það ætlaði að ganga erfiðlega í fyrstu, en svo rættist úr því og
nú er blaðið komið út. Vegna þröngs fjárhags reyndist ekki kleift að hafa blaðið eins stórt og
við hefðum kosið. Efnið, sem í því birtist, er sitt af hverju tagi eins og venjulega, og læt ég svo
ykkur alveg um að dæma það eftir eigin geðþótta.
Ég vil nota tækifærið og þakka ritnefndinni og ábyrgðarmanni góða samvinnu á þessu
liðna starfsári.
Samstarfið í ritnefndinni hefur verið gott. Einstöku sinnum hefur þó kastazt í kekki milli
einstakra nefndarmanna, en allar þær deilur, sem upp hafa komið, hafa verið jafnaðar með
tilslökun af hálfu beggja aðila. (Ég álít, að utanríkisráðherrar stórveldanna ættu að kynna sér
starfsaðferðir ritnefndar Skólablaðs Menntask ólans í Rvík. Þá hefði t. d. Moskvafundurinn síð-
asti endað með fullu samkomulagi eftir að allir í einu hefðu gasprað sig þreytta i svo sem
klukkustund!!)
Að lokum vil ég svo þakka öllum þeim, sem hafa greitt götu blaðsins og óska þess, að
blaðið megi verða æ fullkomnara og fjölþættara í framtíðinni.
Gangi ykkur svo öllum vel í prófunum. Á. G.
\
1 Árni Guðjónsson, ritstjóri
Björn Markan
( Hallgrímur Lúðvígsson
f Þorkell Grímsson
I Þór Vilhjálmsson
AUGLÝSING ASTJÓRI:
( Wolfgang Edelstein.
ÁB YRGÐARMAÐUR:
f )
Guðmundur Arnlaugsson,
kennari
Prentverk Guðmundar Krist- í
jánssonar
ð