Skólablaðið - 01.05.1947, Side 14
Gissurarson 1. bekk. Jafntefli gerðu: Sigfús
Einarsson 6. C, Pétur Guðmundsson 6. C,
Baldur Davíðsson 5. D, Guðmundur Pálmason
4. C, Þór Vilhjálmsson 4. C, Sveinn Jónsson 4.
B og Rafn Stefánsson 1. bekk.
Wade var ekki ánægður með úrslitin og
sagði meðal annars, að Yanofsky hlyti að hafa
verið heppinn. Hann kvaðst iðulega hafa teflt
við skóla á Nýja Sjálandi og yfirleitt ekki hafa
tapað meira en einni eða tveimur skákum.
Wade tefldi nokkur fjöltefli í bæjum og þorp-
um á Suð-Vesturlandi og fékk hann líka út-
Wade og Yanofsky.
komu þar og hjá okkur, þó oftar betri. í
kveðjusamsæti því, sem þeim var haldið, sagði
Wade, að hann hefði fengið verri útkomu úr
fjölteflum hér en í milljónaborgum erlendis.
Hann sagði sömuleiðis, að það væri mjög at-
hyglisvert og lofaði miklu um framtíðina, hve
mikið væri hér af unglingum meðal þeirra,
sem tefldu. Erlendis kvað hann þá, sem tefldu
eitthvað að ráði, yfirleitt vera gifta menn, því
að þá væri það sama ástæðan, sem ræki þá að
skákborðinu, sem hefði haldið þeim frá því
áður. Ekki er gott að segja, hvað veldur þess-
um skákáhuga drengja hér, en bágt á ég með
að trúa, að kvenfólkið hafi minna aðdráttar-
afl hér en erlendis.
Fyrir skömmu tefldi Guðmundur S. Guð-
mundsson fjöltefli við okkur, og mun það að
öllum líkindum hafa verið okkar glæsilegasta
fjöltefli. Guðmundur tefldi á 34 borðum. Þar
af vann hann 18, tapaði 9 og gerði 7 jafntefli.
Hann vann því aðeins 63.24%. Þetta er mjög
glæsilegt hjá okkur, sérstaklega þegar borið
er saman við önnur fjöltefli hans. Þeir, sem
unnu, voru: Árni Guðjónsson 6. B, Haraldur
Einarsson 6. B, Guðmundu rMagnússon 6. C,
Einarsson 6. B, Guðmundur Magnússon 6. C,
D, Steingrímur Hermannsson 5. D, Guðmurid-
ur Ingi Ingimundarson 4. B, Björn Jóhannes-
son 2. bekk og Ríkarður Pálsson 1. bekk. Jafn-
tefli gerðu: Bergur Bjarnason 6. C, Pétur Guð-
mundsson 6. C, Sigfús B. Einarsson 6. C, Guð-
mundur Pálmason 4. C, Ólafur H. Ólafsson 4.
C, Ólafur Ólafsson 4. C og Jón Helgason 2.
bekk.
Frá „Yanofskymótinu“.
Hér á eftir fer skák Guðmundar Pálmason-
ar í fjölteflinu við Yanofsky 8. marz síðastlið-
inn, með athugasemdum eftir D. A. Yanofsky:
Hvítt: A. Yanofsky.
Svart: Guðmundur Pálmason.
Sikileyjar-vörn.
1. e2—e4, c7—c5,
14
SKÓLABLAÐIÐ