Skólablaðið - 01.04.1959, Blaðsíða 3
6„
tbl.
Apríl 1959
34, árg.
Rektor, kennarar, kæru skolasystkin !
Einn árgangurinn enn kveður í dag þenna gamla skola. Sambandi okkar
við skolann er að vísu ekki að fullu lokið ennþá, því að við eigum eftir að koma
hingað aftur áður en langt um líður til þess að Ijáka studentsprofi. En setu okkar
a bekkjum skólans er nu lokið, óg þessvegna er dagurinn í dag hin raunverulega
skilnaðarstund frá sjónarmiði okkar dimittenda. Dagurinn í dag er því merkis-
dagur í lífi okkar, því að nú verða þáttaskil. Við höfum flest stundað nám í skól-
anum síðastliðna fjóra vetur og skólinn hefir verið hálft líf okkar þessi ár. Við
skólann, námið og skólafélagana hefir hugurinn verið bundinn að verulegu leyti.
Vi'ð höfum margs að minnast frá veru okkar hér í skólanum, margra