Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1959, Blaðsíða 24

Skólablaðið - 01.04.1959, Blaðsíða 24
184 - eins og hun á að vera fyrir mann í leit að fegurð. Kjarrið býr yfir einhverjum stórfenglegum leyndardómi, lyngið bær- ist ekki af einskærri nærgætni við al- heim og fuglar himinsins hætta sem snöggvast söng sínum. Og á slíku augna- bliki í eilífðinni getur ekki hjá því farið, að ung stúlka og ungur piltur verði snortin af guðdómi heimsins. í>au voru hjú á bænum og höfðu hitzt fyrir ofan bæ, svona af einskærri tilvilj- un. Það var líka af einskærri tilviljun, sem þau gengu nú í kvöldblænum og sólin var að setjast. Og ekki var það sízt tilviljun, að hönd hans skyldi snerta hennar eitt lítið augnablik, svo að hún kipptist dálítið við, en einnig aðeins eitt lítið augnablik, og svo lagði hún hönd sína feimnislega í hönd hans og horfði á næturroðann svo rauðan, til allrar ham- ingju, að hann skýldi þeim roða, sem hljóp henni um kinn. Hún þorði ekki einu sinni að flissa eins og kyn hennar krafðist, slíkt mundi hafa rofið værðina. Þá dró hann hana hægt til sín og kyssti hana beint á munninn, og þarna bar þessa tvo skugga, - eða raunar bara einn skugga., við rauðan himin í hámarki þagnarinnar, og einmitt á þessu augna- bliki sáldraðist sjálft lofthjúpið til jarð- ar og varð að dögg. Svo var allt búið. Hún leit aftur undan, sagði: Jesús minn, - og tók svo á rás niður brekkuna og hann hrópandi á eftir henni. Fuglarn- ir hrukku upp með andfælum og eg lá einn eftir, skjálfandi af kulda í döggvotu kjarrinu, þar sem þau höfðu ekki séð mig. Samt tók óg ekki eftir hrollinum. Ég hafði nefnilega á þessu augnabliki séð sjálfan lífsneista fegurðarinnar, - kossinn. Ekkert jafnaðist á við koss- inn, - og ástin var undanfari kossins, eins konar forspil eða stef fagurs tón- verks, sem í honum nær hámarki. Væri lengra haldið, dapraðist estetíkin, Ijómi hennar tættist í þúsundir, sting- andi loga, sem tendruðu ófrið, einvígi milli tveggja sálna, - tveggja líkama, þar sem annar segði ég skal og hinn segði þú skalt ekki, og á bak við óræð bros væri gníst í tönnum. - Ég rölti inn í bæ í dreymandi sælu yfir opinberum minni. Einn dag yfirgaf ég sveitasæluna og kom í stóran bæ. Þar varð ég á svip- stundu meðlimur þeirrar menningar, sem kennir sig við borgir og er grá eins og þær, hreykir sér hátt eins og stórhýsi þeirra og flæðir yfir allar byggðir lands eins og pestir þeirra. Samt varð mínu eðli ekki breytt. Sveitalegir loðinskottar verða aldrei annað en sveitalegir loðinskottar. Það er lögmál. - Vinir mínir elskuðu borgina. Þeir áttu hana, lifðu fyrir hana og voru stoltir af. Þeir skipuðu sér hærri sess í þjóðfélaginu en mér. En stundum, þegar við sátum á síðkvöldum og drukkum í okkur andann með brenni- víni, eins og borgarbúa er vandi, þá urðum við skyndilega allir snortnir í tregablandna einingu. Þá tókumst við í hendur og sungum "Allt eins og blómstr- ið eina", og af því að blómin vaxa ekki sízt í sveit, þá hlaut ég að eiga minn skerf í heiminum. Við vorum allir hlut- hafar "alltsins", og þess vegna varð þetta lífsins söngur og öll tilveran ein fegurð og angurværð. Þá grétum við aVLir. Það voru sælustundir. Mér fannst þær hlytu að verða ógleymanlegar. Síðan gengu vinirnir á meyjafund og þágu þar indæla huggun. Ég þáði mína huggun við eintal sálarinnar út við sjó, þar sem máfarnir drituðu á klettana, eða í her- berginu mínu, er ég hlustaði út í nótt- ina á söngva æskufólks um fegurð lands - ins og góðra vina fundi. Þá bólgnaði brjóst mitt af angurblíðu og ég horfði aVLa nóttina á búlduleitan þröst, sem tróndi rígmontinn á símalínu og söng eldheita ástaróða til heitmeyjar sinnar, sem var sú þokkafyllsta í veröldinni. Slxkur elskhugi skellti skolleyrum við sentímentölum stemningum hviklyndra manneskja. Þetta voru einnig sælu- stundir. Enn grét ég. Svo varð ég ástfanginn. Það er furðu- legt að vera ástfanginn. Sérstaklega er furðulegt, hvernig þessi tilfinning sáldr- ast í gegn um flöktandi sálina á svo óvæntan hátt úr svo óvæntri átt, að mað- ur stendur agndofa og getur ekkert að gert. Mærin, sem oVLi þessu umbroti tilfinningalífs míns, var öVLum dyggðum prýdd. Það sannaðist bezt á því, að flestir vinir mínir höfðu þegar notið helztu kosta hennar. Einmitt þess vegna varð ég svo hlessa og ósjálfbjarga. Það hófst með snertingu hnáa undir borði og þróaðist smám saman í óslökkv- andi ástarbál inni í mér, svo að sál mín nötraði af kærleika. Ég orti til hennar mansöngva með fjaðurstaí vættan

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.