Morgunblaðið - 12.12.2009, Side 20
20 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
SUNDLAUG á Ægisgarði, í inn-
höfninni miðri, er meðal hugmynda
sem fram koma í tillögu sem vann
1. verðlaun í hugmyndasamkeppni
fagfólks um gömlu höfnina í
Reykjavík. Segir í umsögn dóm-
nefndar að sundlaugin gæti orðið
lífleg viðbót við svæðið og heim-
sókn þangað gæti verið einstök
upplifun.
Sjö manns skipuðu dómnefnd
keppninnar og segir í umsögn
hennar að höfundar setji fram
kraftmikla, myndræna og form-
fasta tillögu sem við nánari skoðun
rúmi mikinn sveigjanleika til aðlög-
unar við núverandi byggð og skipu-
lagshugmyndir.
Lögð sé áhersla á að göng undir
hafnarmynnið losi umferð frá
Geirsgötu / Mýrargötu þannig að
miðbærinn fái að „fljóta“ niður að
hafnarsvæðinu. Með því nái höf-
undar að uppfylla annað af megin-
markmiðum samkeppninnar – að
styrkja tengsl miðbæjar og hafnar.
Hugmynd að legukanti á fyllingu
fyrir millistór skemmtiferðaskip á
D-reit austan Tónlistarhúss sé
áhugaverð. Á fyllingunni er gert
ráð fyrir þjónustuhúsi fyrir ferða-
menn og hótelbyggingu sem tengir
tónlistarhúsið til austurs við borg-
armyndina í heild og myndar skjól
fyrir norðan- og norðvestanátt inn í
Lækjargötu.
Þá segir dómnefndin að sum
svæði þurfi frekari útfærslu, svo
sem Ægisgarður og Mýrargötu- og
slippasvæði. Slippnum er haldið
inni en nálægð byggðar þurfi að
endurskoða.
Gert er ráð fyrir að olíubirgða-
stöð verði áfram á sínum stað en til
lengri tíma litið sjá tillöguhöfundar
fyrir sér að hægt væri að nota
svæðið fyrir byggð.
Um tillöguna segir dómnefndin:
Framsetning er skýr og kemur
heildarsýn höfunda vel til skila.
Hún er studd einföldum en inni-
haldsríkum skýringarmyndum.
Framtíðarsýn Faxaflóahafna er
vel svarað í öllum meginatriðum.
Skýr skil eru á milli blandaðrar
byggðar þar sem saman rúmist
íbúðarhúsnæði, athafna- og iðn-
aðarhúsnæði og vettvangur fyrir
menningu og viðskipti.
Í tillögunni felst markviss stefna
um þróun og uppbyggingu atvinnu-
starfsemi og íbúðabyggðar á svæð-
inu.
Tillit er tekið til sögu og sögu-
legra minja, meðal annars með
skírskotun til eldra skipulags þar
sem götur enda í bryggjum. Gerð
er athugasemd við að hluti vernd-
aðra verbúða í Örfirisey víki.
Náttúru- og veðurfari eru gerð
skil í skýringarmynd um form
bygginga með tilliti til skjólmynd-
unar og dagsbirtu. Hugmyndin
nær í heild ágætlega markmiðum
samkeppninnar um umhverfisgæði.
Huga þarf betur að stærð opinna
svæða og skjólmyndun á þeim.
Ekki er um hreina og klára
áfangaskiptingu að ræða heldur
gengið út frá því að svæðið fái að
þróast smám saman í það horf sem
lagt er til.
„Við þurfum að að hugsa og
ígrunda ýmsa hluti betur en við
gerðum áður og nú er ráðrúm til að
horfa á einstaka þætti í nýju ljósi og
endurmeta heildarmyndina. Í hug-
myndasamkeppninni felast jafn-
framt skilaboð um að horfa bjart-
sýn fram á veginn og búa okkur
undir viðreisn með spennandi hug-
myndum um hvert beri að stefna
varðandi gömlu höfnina sem stund-
um var kölluð „Íslandshliðið“ og lif-
andi tengsl hennar við sjálfa höf-
uðborg landsins,“ sagði Júlíus Vífill
Ingvarsson, formaður dómnefndar,
m.a. við verðalaunaafhendinguna í
gær.
Sundlaugin við höfnina Þannig sjá höfundar verðlaunatillögunnar fyrir sér að sundlaugargestir séu hluti af fjölbreyttu mannlífi gömlu hafnarinnar.
Sundlaug á Ægisgarði
Róttækar hugmyndir í verðlaunatillögu um framtíð gömlu hafnarinnar
Göng undir hafnarmynnið eiga að losa umferð frá Geirsgötu og Mýrargötu
STJÓRN Vinstri grænna á Álftanesi
tekur í ályktun undir kröfu bæjar-
fulltrúa Á-lista þess efnis að ríkis-
valdið samþykki auknar greiðslur úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til Álfta-
ness.
„Sýnt hefur verið fram á rétt þess
á hærri greiðslum vegna lítilla
skatta af atvinnulífi og óhagstæðrar
aldurssamsetningar íbúa. Eins styð-
ur stjórnin kröfu bæjarfulltrúa Á-
lista þess efnis að ríkisvaldið komi að
endurskipulagningu lánasafns sveit-
arfélagsins,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu. Þar koma einnig fram mót-
mæli gegn því að að knýja eigi
Álftanes til sameiningar við önnur
sveitarfélög, eingöngu vegna erf-
iðrar fjárhagsstöðu og án lýðræð-
islegrar umræðu.
„Stjórnin tekur á hinn bóginn
undir hugmyndir um að komið verði
á meira samstarfi sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu,“ segir jafn-
framt í tilkynningunni.
VG mótmæla
þvingaðri
sameiningu
Afþreying Sundlaugin á Álftanesi.
NÝLEGA samþykktu samgöngu-
og sveitarstjórnarráðuneyti og
Samband íslenskra sveitarfélaga
að skipa samstarfsnefnd til að
ræða og meta sameiningarkosti
sveitarfélaga. Af því tilefni er boð-
að til kynningarfundar um nýjar
leiðir til að efla sveitarstjórnar-
stigið á Egilsstöðum mánudaginn
14. desember. Fundurinn verður
haldinn í fundarsal Þekkingarnets
Austurlands á Egilsstöðum og
hefst klukkan 16.30. Hann er öll-
um opinn. Kristján L. Möller,
Smári Geirsson, Þorvaldur Jó-
hannsson, Flosi Eiríksson og Sig-
urður Tómas Björgvinsson flytja
erindi.
Nýjar leiðir til
að efla sveitar-
stjórnarstigið
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
PRESTUR sem ráðinn verður til starfa í sam-
einuðu Selfossprestakalli mun hafa sérstakar
skyldur við Selfosskirkju. Er það gert til að
koma til móts við óskir sóknarnefndar, að sögn
Kristjáns Björnssonar, fulltrúa í kirkjuráði.
Fyrir fundi kirkjuráðs sem lauk í gær lágu
ályktanir sóknarnefndar Selfosskirkju, kirkju-
kórs, bréf einstaklinga og áskoranir 1.800
sóknarbarna sem krefjast þess að embætti
sóknarprests verði auglýst og efnt til al-
mennra kosninga. Kirkjuráð telur sig ekki
geta orðið við þessum óskum. Vísað er til þess
að starfsreglur sem kirkjuþing samþykkti í
vetur um sameiningu Hraungerðis- og Selfoss-
prestakalla séu bindandi og því ekki skylt né
heimilt að auglýsa embætti sóknarprests.
Sameiningar prestakalla taka gildi þegar
prestar hætta og heldur sá sem eftir situr
embætti sóknarprests.
Sameining prestakallanna tók gildi 30. nóv-
ember sl. og er Kristinn Ágúst Friðfinnsson,
sóknarprestur í Hraungerðisprestakalli, því
sóknarprestur í hinu nýja Selfossprestakalli.
Breytingin kemur þó ekki til framkvæmda
fyrr en um áramót þegar skipunartími núver-
andi sóknarprests rennur út en hann var sett-
ur til bráðabirgða.
Vill ræða breytingar á fyrirkomulagi
„Mér finnst að kirkjan taki lítið tillit til
sóknarbarna sinna,“ segir Sigríður Jensdóttir,
einn af forsvarsmönnum áhugahóps um kosn-
ingu sóknarprests.
Séra Kristján Björnsson flutti tillöguna um
sameiningu Hraungerðis- og Selfosspresta-
kalla. Hann samsinnir því að óþægilegt sé fyrir
kirkjuráð að geta ekki brugðist við óskum
sóknarbarna um kosningu sóknarprests. Hann
telur að þær athugasemdir sem borist hafi um
breytingar á prestaköllum og sóknum gefi til-
efni til að ræða það á vettvangi kirkjunnar og
ekki síður meðal presta hvort sé rétt að breyta
því gamla fyrirkomulagi sem notað hafi verið.
„[...] hvort það standist, miðað við það lýðræði
sem við viljum sjá í kirkjunni. Ég hugsa að litið
verði á þetta sem skólabókardæmi um það,“
segir hann.
Biskup Íslands hefur ákveðið að auglýsa eft-
ir presti „til starfa í Selfossprestakalli með
sérstakar skyldur við Selfosskirkju“, segir í
tilkynningu kirkjuráðs. Sóknarbörn geta kraf-
ist almennra kosningu um það embætti. Krist-
ján segir þetta gert til að koma til móts við
óskir sóknarnefndar.
Spurð hvort þetta fyrirkomulag komi
nægjanlega til móts við óskir Selfyssinga segir
Sigríður Jensdóttir að hún vilji fá skýringar á
því hvað sé á bak við þessi orð, hvernig verka-
skipting prestanna verði í raun, áður en hún
geti lagt mat á það.
Ráðinn verður prestur sem hafa mun
sérstakar skyldur við Selfosskirkju
Kirkjuráð telur ekki heimilt að efna til kosninga
um sóknarprest sameinaðs Selfossprestakalls
Selfosskirkja Umrót hefur verið á Selfossi.
Arkitektastofa í Edinborg í Skotlandi, Graeme Massie Architects,
hlaut fyrstu verðlaun í A-hluta hugmyndasamkeppni Faxaflóahafna sf.
um skipulag gömlu hafnarinnar og Örfiriseyjar. Samstarfsaðili hennar
á Íslandi er ráðgjafarfyrirtækið Alta ehf. Úrslitin voru tilkynnt við at-
höfn í Víkinni sjóminjasafni í gær um leið og sigurlaunin voru afhent,
7,5 milljónir króna. Þessi sama stofa sigraði í samkeppni um skipulag
Vatnsmýrarinnar.
Höfundar tveggja tillagna deildu 2.-3. sæti og hlutu hvorir um sig
tvær milljónir króna í verðlaun: annars vegar arkitektarnir Björn Ólafs
og François Perrot, hins vegar Þorsteinn Helgason, Gunnar Örn Sig-
urðsson, Páll Gunnlaugsson og Valdimar Harðarson hjá arkitektastof-
unni ASK arkitektum ehf. Samkeppnin var tvískipt. Alls barst 51 til-
laga, þar af 12 tillögur í A-hlutann, sem var ætlaður hönnuðum og öðru
fagfólki og undirbúin í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. B-hlutinn
var hins vegar opinn öllum án nokkurra skilyrða og þar bárust 39 til-
lögur.
Skosk arkitektastofa vinnur í annað sinn