Magni - 15.05.1971, Síða 1

Magni - 15.05.1971, Síða 1
B-listinn er listi Framsóknarflokksins 11. árgangur Efling atvinnuveganna er mál málanna og stækkun landhelginnar brýnasta skrefið f/Þeir, sem ráða nú stjórnarstefnunni trúa því, og boða þá trú í orði og verki, að stóriðja ein og samruni við háþróaðar iðnaðarþjóðir muni leysa allan vanda efnahagslífs á íslandi. Stóriðja er að sjálfsögðu nauðsynleg hverri þjóð með öðru, en það œtti að vera öllum hugs- andi mönnum Ijóst, að hver sjálfstœð þjóð verður að vera fœr um að leysa eigin mál og byggja upp eigið efnahagskerfi, sem hœfir landinu og nýtir þá kosti, sem það býður upp á. ® Þess vegna er efling íslenzkra atvinnugreina í sjávarútvegi og land- búnaði mál málanna fyrir íslenzku þjóðina og verður jafnan. • Þess vegna er stœkkun fiskveiðilögsögu og fullur og raunhœfur yfir ráðaréttur yfir landgrunninu öllu lífsmál þjóðarinnar. • Þess vegna má ekki láta þá menn stjórna íslandi, sem fást ekki til að fylgja slíku máli fram til sigurs. ® Þess vegna má ekki láta þá menn stjórna landinu, sem vilja ekki trúa á lífsatvinnuvegi þjóðarinnar, sem 'hafa verið og verða í framtíð kjölfestan í tilveru hennar. ® Þess vegna verður sú ríkisstjórn sem setið hefur í landinu í áratug, að falla. Að öðrum kosti er lýðrœði okkar í hœttu. Um það vitna fiöl- mörg dœmi um vinnubrögð og stjórnarstefnu. ® Þess vegna verður þjóðin nú að snúa taflinu við í þessum kosning- um, fella stjórnina og bjarga lífsmáli sínu — landhelgismálinu í höfn. Þetta segir Alexander Stefánsson, sem skipar baráttusœti Framsóknar- flokksins í Vesturlandskjördœmi í þessum kosningum, m.a. í eftirfar- andi spjalli við Magna. Alexander fnlltrúi - Kosningarnar hér í Vestur- landskjördæmi verða mjög mikilvægar, og þær geta ræð- ið úrslitum um það HVORT ríkisstjórnin heldur velli, dembir „hrollvekju" hausts- ins yfir þjóðina og rekur slagbrand fyrir dyr okkar í landhelgismálinu. EÐA ný ríkisstjórn með nýja stjómarstefnu tekur við með eflingu íslenzkra atvinnu- vega að markmiði og út- færslu landhelginnar í 50 míl ur einhliða ekki síðar en 1. sept. 1972. HVORT auðræði íhaldsþjóð- félags síðasta áratugs heldur áfram sigurför sinni eins og hún birtist í skattfrelsi arðs- ins og peninganna í síðustu skattalagabreytingu. EÐA ný félagsleg sjónarmið og úrræði með almennings- heill fyrir augum hefjast til vegs og taka upp þráð fé- lagshyggjunnar, sem var ráð- — Telur þú, að þjóðinni sé hætta búin af því að fylgja stefnu stjórnarflokkanna og haf ast ekkert að í landhelgismál- inu fyrr en þá eftir hafréttar- ráðstefnu 1973, ef þar fengist blíður byr? — Eg tel, að það væri bein- línis tilræði við þetta lífsmál bjóðarinnar, og hvort tveggja sé, að þá yrði allt miklu erfiðara fyrir, og við megum beinlínis ekki bíða svo lengi vegna þess hve geigvænlega er nú gengið á fiskstofna með hverju ári sem líður með vaxandi fjölda er- iendra togara og hraðvaxandi veiðitækni. — En stjórnin segir, að tím- hui vinni með okkur í iandhelg- ismálinu. — Ekkert er meira öfugmæli. Ekkert vinnur eins hroðalega Segn okkur í þessu máli sem sá tími, sem líður án útfærslu, hvert missiri, hver mánuður. -— En stjórnin segist hannske færa út fyrr, ef ásókn erlendra togara „stóreykst,“ eins og hún orðar það. Finnst bér komið nóg? -— Já, og miklu meira. Og ég 6r ekki einn um þá skoðun. Hún *tti að hitta sjómennina á •ákranesi og Snæfellsnesi, bless- hð stjórnin og spyrja þá, hvort ®kki sé komið nóg, og það fyrir löngu. Ef stjórninni finnst i°garaveggurinn hérna fyrir ut- ah ekki nægur, þá hljóta menn að spyrja: Hvað er nóg af er- ^ndum togurum á landgrunninu til þess að hún rumski? Hvað þarf þessi tortímingarfloti að „stóraukast“ mikið? Það er táknrænt um ónytju- hátt þessarar ríkisstjórnar, hvernig unnið hefur verið að friðun uppeldisstöðva á Faxa- flóa og Breiðafirði. Ef allt væri með felldu væri það eðlilegt, að stjórnvöld sæktu á um friðun þessara svæða og vildu hana meiri en íslenzkir fiskimenn þar teldu sér henta, þar sem það skerti sókn þeirra á miðin. En þessu er þveröfugt farið. Það eru einmitt fiskimennirnir á Akranesi og Snæfellsnesi, sem orðið hafa að standa í hörðu stríði við ríkisstjómina áram saman til þess að koma á frið- un. Þeir hafá krafizt þessa ár eftir ár, og allt sem gert hefur verið í þessum efnum er fyrir kröfur þeirra, og vantar þó mik- ið á, að þeim hafi verið full- nægt. Ríkisstjórnin hefur neitt þjóðina til þess að kjósa um landhelgismálið í þessum kosningum og vill ekkert sam komulag í því nema um það að gera ekki neitt fyrr en þá í óljósri framtíð. Hún vill ekki þjóðaratkvæði um mál- ið, þorir það ekki. Ef stjómin héldi velli nú, yrði það túlkað svo af andstöðuþjóðum okk- j ar i málinu, að þjóðin vildi! ekki útfærslu nú þegar og' það mundi herða allan róður j þeirra gegn okkur. Slíkt má! ekki koma fyrir. Kosninga- j úrslitin má ekki verða hægt að túlka sem undanhald í Alexander Stefánsson landhelgismálinu. Þá er lífs- máli þjóðarinnar hætt. Þvert á móti eiga þessar kosning- ar að verða samfylking þjóð- arinnar um mikla útfærslu landhelginnar og stuðningur við þá stefnu á alþjóðavett- vangi. — En meira þarf í sjávar- útvegi en útfærslu? — Já, það er hverju orði sannara. Ríkisstjórnin hefur síð asta áratuginn ekkert gert að gagni til þess að skipuleggja og bæta fiskiðnaðinn, og segja Framhald &. bls. 1 - ohhar d þing andi afl þjóðfélagsþróunarinn ar á f jórða, fimmta og sjötta áratugnum. HVORT niðurstöður kosn- inganna verða óvinafagnaður í landhelgismálinu og erlend- ar þjóðir túlka þær sem und- anhald Islendinga I því. EÐA staðfesting fæst á nýrri, öflugri og óbilandi sókn þjóðarinnar til þess að helga sér landgrunnið I verki. HVORT Vestlendingar sitja áfram með duglítinn og f jar- rænan krataþingmann, úr- dráttar- og andhælismann i landhelgismálinu. EÐA senda á þing eigin full- trúa, dugmikinn, þrautreynd- an félagshyggjumann úr eig- in hópi, baráttumann í fremstu röð I sveitarstjómar- málum, frjálslyndan og ger- kunnugan vandamálum kjör- dæmisins, sókndjarfan og ó- deigan í landhelgismálinu og sérstaklega kunnugan kjör- um og málefnum útgerðar- og sjómanna, enda ötull for- göngumaður fyrr og síðar á þeim vettvangi, Alexander Stefánsson. Þennan mann þurfa Vestlend- ingar að fá á þing, og að kosningu hans munu þeir vinna af alefli, ungir sem aldnir. Vestlendingar, hann er okk- ar maður í fullum skilningi þess orðs, og við skulum setja metnað okkar i það að senda hann á þing og láta hann styrkja þar rödd okk- ar til framdráttar hag okkar og þeim málefnum, sem við berum fyrir brjósti. Þessar kosningar eiga að verða þjóðfylking til nýrrar sóknar í landhelgismálinu en ekkert undanhald. Sendum Alexander á þing og látum það vera framlag okk- ar til þess að breyta stefnu þjóðarskútunnar frá þjón- ustu við einkaauð og peninga- menn til sjónarmiða félags- hyggju, samvinnu og al- mannahags. Alexander Stefánsson, okkar fulltrúa á þing, það er markmiðið og til þess að það náist skulum við taka hönd- um saman.

x

Magni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Magni
https://timarit.is/publication/789

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.