Ísfirðingur - 10.04.1957, Blaðsíða 1
Aðalfundur miðstjórnar Framsóknar-
flokksins.
Orgelið í ísafjarðarkirkju
er að verða ónotbæft.
Aðalfundur Miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins var haldinn í
Reykjavík dagana 14.—17. marz
s.l.
í miðstjórn flokksins eiga sæti
1 fulltrúi fyrir hvert kjördæmi, 12
fulltrúar fyrir Reykjavík og nær-
sýslurnar, 3 fulltrúar frá Sam-
bandi ungra Framsóknarmanna.
Ennfremur alþingismenn flokks-
ins. — Á fundinum mættu allflest-
ir fulltrúar eða varamenn þeirra.
Auk þeirra sátu og fundinn margir
áhugamenn flokksins.
Á aðalfundinum voru að vanda
tekin til umræðu öll mest varðandi
þjóðmál, og ályktanir gerðar i
þeim eftir ítarlega athugun í
nefndum.
Ráðherrar flokksins fluttu þar
ítarlegar framsöguræður um
myndun núverandi ríkisstjórnar og
stjómmálaviðhorf líðandi stundar.
Urðu miklar umræður um flesta
þætti þeirra þingmála, sem nú em
efst á baugi. — Þá voru vitanlega
rædd flokksmálin, útgáfu blaða og
flokksstarfið.
Fullkomin eining ríkti á fund-
inum, allir voru sammála um að
rétt hafi verið, eins og sakir stóðu,
að ganga til samstarfs um núver-
andi ríkisstjórn, undir forystu
Hermanns Jónassonar.
Engin rödd heyrðist um, að
halda hefði átt áfram samstarfi í
ríkisstjórn við Sjálfstæðisflokkinn.
Um stjórnarsamstarfið var ein-
róma samþykkt svohljóðandi
ályktun:
„Aðalfundur miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins 1957 lýsir yfir
stuðningi sínum við núverandi
ríkisstjórn og samstarf það milli
stjórnmálaflokka, sem hafið var
með myndun stjórnarinnar 24.
júlí síðastliðinn. Telur miðstjórn-
in það hafa sýnt sig, að rétt hafi
verið ráðið af síðasta flokksþingi
að slíta samvinnunni við .Sjálf-
stæðisflokkinn. Þar sem noklmð
skorti á, að kosningabandalag
það, sem til var stofnað samkv.
ályktun flokksþings milli Fram-
sóknarflokksins og Alþýðuflokks-
ins hlyti meiri hluta í kosningun-
um, telur iniðstjórnin það einnig
hafa verið rétt ráðið að vinna að
stjórnarsamstarfi milli Fram-
sóknarflokksins, Alþýðuflokksins
og Alþýðubandalagsins og lýsir
yfir eindregnu fylgi sínu við hina
sameiginlegu stefnuyfirlýsingu
stjórnarfIokkanna.“
Þá voru gerðar ályktanir í fjár-
festingarmálum, bankamálum, ut-
anríkismálum, landhelgismálinu og
húsnæðismálum. Voru þessi mál
ítarlega rædd og verulegs skoðana-
ágreinings gætti þar ekki.
Fundurinn fór að vanda mjög
vel fram, og mikill áhugi ríkti
meðal fulltrúanna um eflingu
flokksstarfsins. Hefir og félags-
mönnum í flokksfélögunum fjölg-
að verulega, og einkanlega er ein-
dreginn sóknarhugur í ungum
Framsóknarmönnum víðsvegar um
land.
Framkvæmdastjórn flokksins
var endurkosin, en hana skipa:
Hermann Jónasson, formaður, Ey-
steinn Jónsson, ritari, og Sigurjón
Guðmundsson, gjaldkeri.
13. ársþing íþróttabandalags ís-
firðinga var haldið á ísafirði dag-
ana 22. og 24. febrúar s.l. Formað-
ur I.B.Í., Alfred Alfredsson, setti
þingið og bauð fulltrúa velkomna.
Þingforseti var kjörinn Guðmund-
ur Sveinsson og þingritarar, Sig.
Th. Ingvarsson og Birgir Valdi-
marsson. 13. fulltrúar áttu rétt til
þingsetu og voru 12 þeirra mættir.
Að loknum störfum kjörbréfa-
nefndar, las form. upp skýrslu
stjórnarinnar og reikninga. Hér
verður stiklað á stóru, á því helzta
úr skýrslu stjórnarinnar.
Knattspyrna: Ksf. Vestri varð
Vestfjarðarmeistari í öllum flokk-
um. Lið Í.B.Í. (samein. úr Herði
og Vestra) háði 12 kappleiki við
utanbæjarlið á s.l. sumri. Vann 5,
gerði 3 jafntefli og tapaði 4. Skor-
aði 29 mörk og fékk á sig 26.
Handknattleikur. Ksf. Hörður
varð Vestfjarðameistari bæði í
karla- og kvennaflokki. Hand-
knattleiksstúlkur IBÍ háðu 5 leiki
við utanbæjarlið á s.l. sumri. Unnu
1, gerðu 2 jafntefli og töpuðu 2,
skoruðu 11 mörk en fengu á sig
14.
Skíðaíþróttin. 8 skíðamót voru
haldin á árinu. Vestfjarðameistar-
ar urðu: Jón K. Sigurðsson H.
(svig), Jakobína Jakobsdóttir, H.
(svig), Árni Höskuldsson S.í.
(ganga), Gunnar Pétursson Á.
(stökk og norræn tvíkeppni).
S.l. sunnudag voru blaðamenn o.
fl. hér í bænum kvaddir á fund
sóknarprests og sóknarnefndar í
Isafjarðarkirkju. Þar gerðu þeir
sóknarpresturinn og organleikar-
inn grein fyrir því, að nauðsyn
bæri til að kaupa nýtt hljóðfæri í
kirkjuna, eða að öðrum kosti
þyrfti að láta framkvæma kostnað-
arsama viðgerð á gamla hljóðfær-
inu, sem þó gæti verið hæpin ráð-
stöfun, að dómi fagmanna sem leit-
að hefur verið álits hjá um þessa
hluti. Ragnar H. Ragnar, skólastj.,
sem viðstaddur var á fundinum,
taldi það á allan hátt hyggilegra,
að kaupa nýtt hljóðfæri fremur en
kosta til viðgerðar á gamla organ-
inu.
Sóknarnefnd safnaðarins er fyr-
ir löngu ljóst að endurnýja þarf
í. B .í.
Skíðamót Islands fór fram hér á
Isafirði um páskana og sá Skíða-
ráð ísafjarðar um mótið, form.
þess var Konráð Jakobsson.
Frjálsar íþróttir. Aðeins eitt
mót fór fram á árinu. Keppt var
í 5 greinum: 100 m. hl., kúluvarpi,
kringlukasti, langstökki og þrí-
stökki. Emil Hjartarson, Ungm.fél.
Grettir á Flateyri, sigraði í öllum
greinunum að 100 m. hl. undan-
skildu, en þar sigraði Birgir Valdi-
marsson, Herði.
Sundíþróttin. Sund hefur alveg
legið niðri á árinu vegna viðgerð-
ar á Sundhöllinni.
Félagsmál. Haldið var áfram
byggingu búningsklefa við íþrótta-
völlinn. Miðaði því verki mjög vel
áfram og munu klefamir verða til-
búnir til notkunar nú í vor. Haldið
var námskeið í knattspyrnu og
stóð það yfir í 2y2 mánuð. Kennt
var í öllum flokkum. Kennari var
Ellert Sölvason frá Reykjavík.
Unnið var að endurbótum á knatt-
spyrnuvellinum og var það allt
unnið í sjálfboðavinnu. Tekin voru
upp bréfaviðskipti við vinabæi ísa-
fjarðar í Noregi (Tönsberg) og í
Danmörku (Roskilde). Samkomu-
lag hefur náðst við Tönsberg Tum-
forening um að Í.B.l. sæki þá heim
með knattspymulið nú í sumar.
Undirbúningur ^ferðarinnar er
þegar í fullum gangi og æfingar
stundaðar af miklu kappi.
hljóðfæri kirkjunnar og hefur
hún unnið að því máli að undan-
fömu m. a. með því að efla orgel-
sjóðinn, sem nú er að upphæð kr.
62.192,00,
Það er ekki Vonum fyrr sem
ráðast verður í kaup á hljóðfæri í
kirkjuna. Organið sem nú er not-
að var keypt árið 1934 úr Dóm-
kirkjunni í Reykjavík og hafði þá
verið notað þar um langan tíma.
Mun tæplega hafa verið búist við
að þetta gamla og slitna hljóðfæri
entist betur en raun hefur á orðið.
Gert er ráð fyrir að nýtt hljóð-
færi kosti uppkomið um 170—180
þús. kr. Það eru því um 120 þús.
kr. sem afla þarf meðal sóknar-
manna svo að fært verði að skipta
um hljóðfæri.
Vafalaust munu bæjarbúar al-
mennt og félagssamtök í bænum
bregðast vel við og láta af hendi
rakna nægjanlegt fé svo hægt
verði að kaupa hljóðfæri í kirkj-
una sem allra fyrst. Þess má til
fróðleiks geta að nú nýlega hafa
verið keypt hljóðfæri af fullkom-
inni gerð í Patreksfjarðar- og
Stykkishólmskirkjur og vom þessi
hljóðfæri að langmestu leyti keypt
fyrir fé sem safnaðist með frjáls-
um framlögum. Færi vel á að Is-
firðingar hefðu á þessu sama hátt.
Þess skal svo getið að ákveðið
er að hafa fjársöfnunardag til efl-
ingar organsjóðnum í kirkjunni í
byrjun næsta mánaðar. Verða þar
flutt létt og alþýðleg lög á vegum
Sunnukórsins. Gefst þá bæjarbúum
kostúr á því hvortveggja að njóta
góðrar skemmtunar og að leggja
af mörkum fjármuni svo hægt
verði sem allra fyrst að kaupa við-
unandi hljóðfæri í kirkjuna.
Ýmsar samþykktir voru gerðar
á þinginu varðandi framtíðaverk-
efni stjórnar Í.B.Í. o. fl. M. a. um
að athuga möguleika á að koma
upp grasvelli og ráða kennara.
Fagnað var batnandi horfum á
framkvæmdum við hið fyrirhug-
aða íþróttasvæði á Torfnesi. For-
maður var einróma endurkjörinn
Alfred Alfredsson. Varaformaður
var kjörinn Guðmundur Ingólfs-
son, Hnífsdal, og oddamaður í
stjórn Jens Sumarliðason. Þingið
fór í alla staði hið bezta fram.
Arsþing