Ísfirðingur - 10.04.1957, Side 3
ISFIRÐINGUR
3
Kjðrskrá
vegna atkvæðagreiðslu um hvort útsala Áfengisverzlunar ríkis-
ins skuli opnuð að nýju liggur frammi á bæjarskrifstofunni frá
25. marz til 25. apríl 1957.
Kærur út af því, að einhvern vanti á kjörskrá, eða sé þar of-
aukið, ber að afhenda á bæjarskrifstofuna, í síðasta lagi laugar-
daginn 20. apríl.
Isafirði, 21. marz 1957.
Bæjarstjóri.
Atkvæðagreiðsla
um opnun áfengisútsölu á Isafirði, fer fram sunnudaginn 28.
apríl n. k. og hefst kl. 1 e .h. í barnaskólanum.
Kosið verður í þremur kjördeildum:
A—G, H—N og O—Ö.
Atkvæðagreiðsla fyrir kjördag fer aðeins fram á Isafirði í
bæjarfógetaskrifstofunni og hefst 6. apríl n. k.
Talning atkvæða fer fram í Góðtemplarahúsinu mánudaginn
29. apríl n. k. og hefst kl. 2 e. h.
1 yfirkjörstjórn
Ásberg Sigurðsson. Guðmundur Ludvigsson.
Jóh. Gunnar Ólafsson.
STABF
slökkviliðsstjóra bæjarins auglýsist hér með laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 30. þ. m.
Upplýsingar gefur undirritaður.
Isafirði, 4. apríl 1957.
Bæjarstjóri.
Tilkynning
Nr. 12/1957. ’
Innflutningsskrifstofan hefir ákveðið, að framvegis sé óheim-
ilt að hækka verð á hverskonar þjónustu, nema verðlagsstjóra
hafi áður verið send ýtarleg greinargerð um ástæður þær, sem
gera hækkun nauðsynlega. Greinargerð þessi skal send, að
minnsta kosti 2 vikum áður en fyrirhugaðri hækkun er ætlað
að taka gildi.
Innflutningsskrifstofan hefir einnig ákveðið, að þeir aðilar
er tilkynning þessi snertir, skuli þegar í stað senda verðlags-
stjóra eða trúnaðarmönnum hans afrit af núgildandi verðskrám.
Reykjavík, 1. apríl 1957.
Verðlagsstjórinn.
Tilkynnino tíl innflytjenda
Nr. 10/1957
Innflutningsskrifstofan hefir ákveðið að framvegis skuli allir
innflytjendur skyldir að senda verðlagsstjóra eða trúnaðarmönn-
um hans verðútreikninga yfir allar vörur, sem fluttar eru til
landsins, hvort heldur varan er háð verðlagsákvæðum eða ekki,
og einnig þó um hráefni til iðnaðar sé að ræða. Skulu verðút-
reikningar þessir komnir í hendur verðlagsstjóra eða trúnaðar-
manna hans eigi síðar en 10 dögum eftir að varan hefir verið
tollafgreidd.
Óheimilt er með öllu að hefja sölu á vöru, sem háð er verðlags-
ákvæðum fyrr en söluverð hennar hefir verið staðfest af verð-
lagsstjóra eða trúnaðarmönnum hans. Óheimilt er einnig að hef ja
sölu á öðrum vörum fyrr en verðútreikningur hefur verið sendur.
Innflutningsskrifstofan hefir einnig ákveðið, að framvegis
skuli innflytjendum skylt að senda verðlagsstjóra eða trúnaðar-
mönnum hans samrit af öllum sölunótum yfir innfluttar vörur í
lok hverrar viku.
Reykjavík, 1. apríl 1957.
V erðlagsst j órinn.
Tilkynning til iðnrekenda
Nr. 11/1957.
Innflutningsskrifstofan hefir ákveðið, að framvegis sé óheim-
ilt að hækka verð á innlendum iðnaðarvörum, nema samþykki
verðlagsstjóra komi til.
Ennfremur skal því beint til þeirra iðnrekenda, sem ekki hafa
sent verðlagsstjóra lista yfir núgildandi verð, að gera það nú
þegar. Ella verður ekki komist hjá því að láta þá sæta ábyrgð
lögum samkvæmt.
Reykjavík, 1. apríl 1957.
Verðlagsstjórinn.