Ísfirðingur - 21.06.1957, Qupperneq 1
Áskriftarsími blaðsins
er 332.
KaupiS og lesiS
ISFIRÐING
Þafi borgar sig að
auglýsa.
AuglýsiS í
ÍSFIRÐINGI
á ísafirði
Aðalfundnr ísafjarð-
ardeildar K.l.
Hátíðahöld dagsins hófust á því
að safnast var saman kl. 13,30 við
Austurvöll. Þar lék Lúðrasveit
ísafjarðar nokkur lög, undir stjórn
H. Herlufsen. Kl. 13,45 var lagt af
stað í skrúðgöngu frá Austurvelli
að hátíðasvæðinu við Túngötu,
með Lúðrasveit Isafjarðar, skáta
og íþróttamenn í fararbroddi.
íþróttamenn og skátar báru fána.
Skrúðgangan var mjög fjölmenn,
og líklega sú fjölmennasta sem
hér hefur sést. Eins og við var að
búast höfðu börnin fjölmennt til
skrúðgöngunnar. og báru þau flest
smærri fána. Á hátíðasvæðinu við
Túngötu hófust dagskráratriðin
kl. 14 með því að hátíðin var sett
af formanni 17. júní-nefndarinnar,
Þorgeiri Hjörleifssyni, og kynnti
hann jafnframt dagskrána. Þá lék
Lúðrasveit Isafjarðar nokkur lög,
en að því loknu flutti Björn H.
Jónsson, skólastjóri, aðalhátíða-
ræðuna og var ræðan snjöll og hin
athyglisverðasta. Að ræðu hans
lokinni söng Sunnukórinn nokkur
ættjarðarljóð, undir stjórn Ragn-
ars H. Ragnar. Að því loknu lék
Lúðrasveit ísafjarðar á ný nokk-
ur lög.
Næsta atriði var það, að flutt
var ávarp Fjallkonunnar, en það
gerði frú Kristjana Jónsdóttir, og
Kappleikir 17. júni
17. júní fóru hér fram kappleik-
ir í handknattleik (stúlkur) og
knattspyrnu milli Harðar og
Vestra. 1 handknattleiknum var
keppt um ,,17. júní-bikarinn“, gef-
inn af þjóðhátíðarnefndinni í
fyrra, en handhafi bikarsins var
ksf. Hörður. Var leikur þessi afar
skemmtilegur og spennandi, áreið-
anlega sá bezti leikur sem sézt hef-
ur hér í mörg ár. Leiknum lauk
með sigri Harðar 6:5. í knatt-
spyrnunni sigraði Hörður einnig
með 3:0, öll mörkin voru skoruð í
seinni hálfleik. Keppt var um svo-
nefndan KR-bikar, gefinn af
Knattspyrnufélagi Reykjavíkur.
Er þetta í 3ja sinn, sem Hörður
vinnur þennan bikar (’53, ’55 og
1957), en Vestri hefur unnið hann
tvisvar (’54 og 1956). Til þess að
vinna bikarinn til eignar þarf sama
féiag að vinna hann þrisvar í róð
eða fimm sinnum alls.
fórst henni það mjög vel. Strax
að loknu ávarpi Fjallkonunnar
söng Sunnukórinn þjóðsönginn, og
var þar með lokið fyrri hluta úti-
hátíðahaldanna. Mjög mikið fjöl-
menni var viðstatt hátíðahöldin,
enda var veður hið blíðasta. Há-
tíðasvæðið var fánum prýtt, og
hafði verið komið fyrir söng- ög
ræðupalli.
Kl. 16 hófust svo hátíðahöld,
sem sérstaklega voru ætluð böm-
unum. Lúðrasveit Isafjarðar lék,
Guðjón Kristinsson, skólastjóri,
flutti ræðu og leikinn var einleik-
ur á harmoniku. Það gerði Ásgeir
Sigurðsson, Brunngötu 10 hér í
bænum, 15 ára gamall. Þá fór fram
almennur söngur undir stjóm
Gunnlaugs Jónassonar, en lúðra-
sveitin lék undir. Þá skemmti
Barnaskólinn.
Bamaskóla ísafjarðar var slit-
ið 23. maí s.l. 1 skólanum vom í
vetur tæplega 400 börn, og luku nú
í vor 59 burtfararprófi. Hæstu
einkunn við burtfararpróf hlaut
Margrét Jóelsdóttir, 9,3 og var það
jafnframt hæsta einkunn yfir skól-
ann.
Við skólaslitin flutti skólastjór-
inn, Björn H. Jónsson, ræðu. Hann
mun nú í haust láta af skólastjórn
og þau hjónin flytja búferlum suð-
ur. Er nánar minnst á kennslu-
störf þeirra hjóna á öðmm stað
hér í blaðinu, en þau hafa verið
vinsælir kennarar og Björn H.
Jónsson farsæll skólastjóri.
Gagnfræðaskólinn.
Gagnfræðaskólanum var slitið
21. f. m. að viðstöddu fjölmenni,
og hófst athöfnin með almennum
söng, er söngkennarinn, Ragnar H.
Ragnar, stjórnaði. Arngrímur Fr.
Bjarnason, kaupmaður, flutti ræðu
og afhenti verðlaun fyrir ritgerð
um bindindismál, en Umdæmis-
stúka Vestf jarða efndi til ritgerða-
samkeppninnar. Tvenn verðlaun
voru veitt og hlutu þau sex nem-
endur.
Fyrstu verðlaun hlutu þau
Agnes óskarsdóttir, Margrét Guð-
mundsdóttir og Sighvatur Björg-
vinsson. önnur verðlaun hlutu þau
Gestur Þorgrímsson bömunum
með sögum og leik.
Hér á eftir fór svo fram hand-
knattleikur stúlkna, og að þeim
leik loknum fór fram knattspymu-
keppni á íþróttavellinum og er
nánar sagt frá þessum leikjum á
öðrum stað í blaðinu.
Þar með lauk útihátíðahöldum
dagsins er höfðu tekist ágæta vel.
Merki dagsins vom seld allan
daginn á götum bæjarins. Um
kvöldið vom svo haldnir dansleikir
í Alþýðuhúsinu, Uppsölum og
Templarahúsinu. Þar skemmti
einnig Gestur Þorgrímsson.
1 17. júní nefndinni vom auk
formannsins sem fyrr er nefndur,
þeir Jón H. Guðmundsson, Guðjón
Kristinsson, Guðmundur í. Guð-
mundsson og Magnús Þórðarson.
Ásthildur ólafsdóttir, Katrín
Jónsdóttir og Sæmundur Guð-
mundsson.
Skólastjórinn, Guðjón Kristins-
son, flutti yfirlitsræðu um skóla-
starfið. Nemendur í vetur vom um
140 og luku 12 gagnfræðaprófi. 40
luku unglingaprófi og 22 miðskóla-
prófi úr 3 bekk verknámsdeildar.
Undir landspróf gengu 12 nem-
endur.
Hæstu einkunn yfir skólann
hlaut Leó Kristjánsson í 2. bók-
námsdeild, 9,29. Hæstueinkunn við
gagnfræðapróf hlaut Agnes Ósk-
arsdóttir, 9,23, og hæstueinkunn úr
landsprófsdeild fékk Ingibjörg S.
Guðmundsdóttir, 8,50. Skólastjór-
inn afhenti gagnfræðingum próf-
skírteini og árnaði þeim heilla.
Verðlaun voru veitt fyrir náms-
afrek og fyrir vel rækt trúnaðar-
störf.
Að lokum var sungið undir
stjóm Ragnar H. Ragnar.
Tónlistarskólinn.
Tónlistarskólanum var slitið 1.
júní s.l. og hafði hann þá starfað
í 8 mánuði. Skólastjórinn Ragnar
H. Ragnar flutti yfirlitsræðu um
starfið á s.l. vetri.
1 skólanum vom í vetur 47 nem-
endur, þar af 36 sem lögðu stund
á píanóleik. Auk skólastjórans
kenndu við skólann frk Elísabet
Aðalfundur Isafjarðardeildar
Kaupfélags Ísfirðinga var haldinn
í Templarahúsinu 4. þessa mánað-
ar. Þar voru rædd ýms Kaupfé-
lagsmál, af áhuga og fjöri. For-
maður deildarinnar bauð hinn nýja
kaupfélagsstjóra, Jóhann T.
Bjarnason, velkominn til starfa í
þjónustu kaupfélagsins. Kosnir
voru 30 fulltrúar á Aðalfund K.í.
og 13 varamenn. Stjóm deildarinn-
ar var endurkosin, þeir Kristján
Jónsson frá Garðsstöðum, formað-
ur, Jón H. Guðmundsson og Guð-
mundur G. Kristjánsson. Vara-
menn Helgi Finnbogason og Jón
A. Jóhannsson.
-----oOo-----
Kristjánsdóttir og Guðmundur
Árnason, sem kenndu á píanó,
Jónas Tómasson, kenndi á orgel og
H. Herlufsen á blásturshljóðfæri.
Auk píanóleiks kenndi skólastjór-
inn tónfræði.
Þann 29. maí s.l. hélt skólinn
vorhljómleika í Alþýðuhúsinu er
voru vel sóttir. Komu þar fram 30
af nemendum skólans. Við skóla-
slitin léku 3 nemendur verk eftir
Beethoven. Verðlaun voru veitt 6
nemendum fyrir leikni og kost-
gæfni við námið. Þessi hlutu verð-
laun:
Ásdís Ásbergsdóttir, Kristjana
Kjartansdóttir, Lára S. Rafnsdótt-
ir, Nanna Jónsdóttir, Sigríður
Ragnarsdóttir Ragnar og Sigrún
Guðmundsdóttir.
Húsmæðraskólinn.
Húsmæðraskólanum á ísafirði
var slitið 7. júní.
Við skólaslit skýrði skólastjóri
frá starfsemi skólans á liðnu skóla-
ári.
29 stúlkur hafa stundað nám við
skólann í vetur. Aðalbjörg Ing-
varsdóttir frá Syðra-Lóni í Norð-
ur-Þingeyjarsýslu hlaut hæstu
einkunn við burtfararpróf, 9,3.
Voru henni veitt verðlaun (árituð
silfurskeið) úr Verðlaunasjóði frú
Camillu Torfason.
Framhald á 2. síðu.
Skólaslit