Ísfirðingur - 03.10.1957, Blaðsíða 2
2 *
ISFIRÐINGUR
Aímæli
e '
ISFIEÐINGUK
tJtgefandi:
Framsóknarfélag IsfirOinga.
Aby rgðarmaöur:
Jóa Á. Jóhannsson
Af greiðslomaðar:
Guðmundur Sveinsson
Engjaveg 24 — Sími 332
-
SpariflársSfnnn
skólabama
Sparifjársöfnun skólabama hef-
ur nú starfað í 3 ár. Hafði hún í
upphafi það markmið, að vera
börnum til leiðbeiningar í spar-
semi og ráðdeild.
Þetta starf var, svo sem menn
muna, hafið að frumkvæði Lands-
bankans og kostað af honum, og
gert í samráði við yfirstjórn
fræðslumálanna og kennarasam-
takanna í landinu. Á þessum 3 ár-
um hafa verið stofnaðar í sam-
bandi við þessa söfnun, um 10 þús-
und sparisjóðsbækur í Landsbank-
anum í Reykjavík og útibúum
hans, og munu innstæður í þeim
samanlagt nema um 3,5 millj. kr.
Er því ekki hægt annað að segja
en að góður árangur hafi náðst.
í greinargerð Snorra Sigfússon-
ar, er blaðinu hefur borist, um
þessi mál, segir m. a.
„Þess vegna er það mikilsvert
fyrir þroskaferil barns, ef takast
má að glæða skilning þess á gildi
ráðdeildar með fjármuni, þótt í
smáum stíl sé, og fá það til að
virða þau verðmæti, sem það hef-
ir með höndum, því að sóun verð-
mæta, í hvaða formi sem er, er
tjón og menningarskortur, sem
mjög er áberandi í þjóðlífi voru
nú.“
—-oOo—
Gjaíir og áheit til björgunar-
sjóðs Vestfjarða.
Til minningar um Katarínus
Jónsson, Fremri-Arnardal, gefið á
90 ára afmæli hans, 13. júní 1957,
frá ónefndum kr. 500. Frá H. E.
ísafirði, áheit kr. 70,00. Til minn-
ingar um Rögnvald Þóroddsson,
Alviðru, Dýrafirði frá Guðmundi
Helga og fjölsk. kr. 50. Frá göml-
um form. karladeildar, Sigurjóni
Sigurbjörnssyni kr. 100,00. Frá
gömlum vélstjóra kr. 500,00. Frá
Ólafi Guðmundssyni, Hesteyri, af-
hent af systkinum Ólafs, samkv.
fyrirmælum hans v/ kaupa björg-
unarskýlis á Sléttu kr. 1090,00.
Alls kr. 2210,00.
Kærar þakkir. — Gjöfum og
áheitum ávallt veitt viðtöku.
Kr. Kristjánsson,
Sólgötu 2, Isafirði.
Marsellíus Bernharftsson, skipa-
smíðameistari, varð sextugur 16.
ágúst s.l. Marsellíus er kunnur at-
orku- og dugnaðarmaður. Hann
rafcur hér í bænum skipasmíðastöð
í Neðstakaupstað og skipabraut á
Torfnesi og vinnur að staðaldri við
fyrirtæki hans milli 40 og 50
manns. Auk skipasmíðanna hefur
Marsellíus oft tekið að sér að
framkvæma ýms vandasöm verk.
Marsellíus er kvæntur Albertu Al-
bertsdóttur og eiga þau 8 börn á
lífi, öll hin mannvænlegustu.
Fjöldi manns heimsótti Marsell-
íus á afmælisdaginn.
Kristján Jónsson, skólastjóri í
Hnífsdal varð sextugur 18. ágúst
s.l. Hann hefir verið skólastjóri og
kennari í Hnífsdal á fjórða tug
ára við góðan orðstýr. Hann hefir
líka tekið mikinn og góðan þátt
í félagsmálum Hnífsdæla, verið
lengi í hreppsnefnd og hreppstjóri
hefir hann verið undanfarin ár.
Gísli H. Guðmimdsson, Sund-
stræti 21 hér í bænum, átti fimm-
tugsafmæli 17. f. m. Hann er
kvæntur Þorbjörgu Líkafrónsdótt-
ur og eiga þau 5 mannvænleg börn.
Baldvin Jónsson, Fjarðarstræti
47, varð áttræður 19. f. m. Hann
er fæddur á Kjalarnesi, en hefur
átt heima hér í bæ frá 1903. Kona
hans er Ingibjörg Benónýsdóttir,
og hafa þau eignast 8 börn, en 2
barnanna eru dáin.
Halldór Jónmundsson, yfirlög-
regluþjónn, átti fimmtugsafmæli
20. f. m. Hann er fæddur að Barði
í Fljótum, en fluttist 1918 með
foreldrum sínum að Stað í
Grunnavík. Hann stundaði nám á
Hvanneyri og útskrifaðist þaðan
vorið 1929. I ársbyrjun 1935 flutt-
ist Halldór til ísafjarðar og hefur
átt hér heima síðan. Fyrstu árin
hér í bænum stundaði hann ýmsa
vinnu, var m. a. bústjóri á Selja-
landi. Árið 1940 var hann ráðinn
lögregluþjónn á ísafirði og það
hefur hann verið síðan, og yfir-
lögregluþjónn frá því í marz 1956.
Síðan hefur hann einnig gegnt
störfum heiíbrigðisfulitrúa. Hall-
dór er drengskaparmaður og sam-
vizkusamur starfsmaður. Hann er
kvæntur Ingibjörgu Einarsdóttur
og eiga þau þessi börn: Guðmund,
við verkfræðinám í Kaupmanna-
höfn, Sesselju, við nám í Svíþjóð,
Hermanníu og Ástu, sem báðar eru
ungar og í foreldrahúsum.
Á afmælisdegi Halldórs var
mjög fjölmennt á heimili þeirra
hjóna.
Baldvin Þórðarson, bæjargjald-
keri, átti sextugsafmæli 22. sept-
ember s.l.
Baldvin er fæddur á ísafirþi og
hefur jafnan átt hér heimili. Hann
er prýðilegur starfsmaður og vin-
sæll. Hér í bænum hefur hann
gegnt fjölda trúnaðarstarfa, t. d.
var hann hér á árunum áður
starfsmaður Oliuverzlunar íslands
og síðar skrifstofumaður hjá
Samvinnufélagi ísfirðinga. Hann
var í 7 ár gjaldkeri Sjúkrasamlags
ísafjarðar, og í nærfellt 10 ár
hefur hann verfð bæjargjaldkeri.
Baldvin hefur verið aðalendur-
skoðandi Kaupfélags Isfirðinga í
14 ár. Hann var einn af stofnend-
um Félags opinberra starfsmanna
á Isafirði, var kosinn í fyrstu
stjórn félagsins og hefur öll árin
átt sæti í stjórn eða varastjórn
þess.
Baldvin er kvæntur Maríu Jóns-
dóttur, Bjarnasonar.
Á afmælisdegi húsbóndans var
mjög fjölmennt á heimili þeirra
hjóna.
Grímur Ivristgeirsson, fyrrv.
bæjarfulltrúi hér í bænum, átti
sextugsafmæli 30. f. m. Grímur
átti lengi heima hér á Isafirði og
tók mikinn þátt í bæjar- og fé-
lagsmálum. Hann er nú búsettur
í Reykjavík. Kona hans er Svan-
hildur ólafsdóttir Hjartar, frá
Þingeyri og eiga þau einn son.
—oOo—
Fj órðungsþingið
Framhald af 1. síðu.
þingi verði falið að semja og af-
greiða nýja stjórnarskrá og kosn-
ingalög. Er í tillögunni gerð nán-
ari grein fyrir hugmyndum þings-
ins um framkvæmd þessa máls.
Ýmsar aðrar merkar tillögur
voru samþykktar á fjórðungsþing-
inu, en ekki er rúm til að geta
þeirra nánar að þessu sinni.
í fjórðungsstjórn voru kjörnir:
Sturla Jónsson, forseti, Ari
Kristinsson, gjaldkeri og Jóhann
Salberg Guðmundsson, ritari.
Varastjórn: Sigurður Elíasson,
Jóh. Gunnar Ólafsson og Hjörtur
Hjálmarsson.
Skýliö á Breiðadals-
heiði
Þann 8. f. m. bilaði bíllinn minn
í ófærð vestan til á Breiðadals-
heiði. Þetta er kannske ekki í frá-
sögur færandi, en varð þó til þess
að mér lærðist að skilja hve mik-
ils virði sæluhúsið á heiðinni er
þeim, sem í nauðir kann að rata
á þessum slóðum, en skýlið er
rekið af deildum Slysavarnafé-
lagsins hér í bænum.
Hrakningasaga mín er ekki löng
en tók þó til fimm og hálfrar
klukkustundar í norðaustan nepju
og kaíaldsmuggu. Af þessum tíma
naut ég skjóls og kosta skýlisins
um eina og hálfa klukkustund,
sem hefði öðruvísi orðið vanbúnu
bílafólki.
En auk húsaskjóls og hlýju
gafst mér þarna kostur að ná til
byggða með aðstoð símans og út-
vega hjálp.
Gestabók skýlisins vitnar um
þörf þess og líka um þá margvís-
legu aðstoð sem það þegar hefur
veitt fjölda manns, en fæstir hafa
um þetta getið eða goldið gxæið-
ann með viðurkenningu fyrir það
verk sem þarna er af kærleika
unnið.
Vegfarendur, í skýlinu er bát-
ur, látið hann afla fyrir afnota-
gjaldi símans, að minnsta kosti.
Ragnar Ásgeirsson.
—oOo—
G agnf ræðaskólinn
var settur 1. þ. m. Skólastjórinn
Guðjón Kristinsson, skýrði frá því
í skólasetningarræðu sinni að nem-
endafjöldi við skólann yrði í vet-
ur 162 í 7 deildum. Hefur nemend-
um fjölgaö um rúmlega 20 frá síð-
asta skólaári.
Þær breytingar hafa orðið á
kennaraliði skólans að brott hafa
flutt Ásta Sveinsdóttir og Magnús
Sveinsson, en í stað Ástu hefur frú
Guðný Frímannsdóttin verið ráðin.
til sölu.
Daníel Sigmundsson,
Sími 293.
Jorðin Arnardalur neðri
(Heimabær)
er hér með auglýst til leigu. Æskilegt væri að leigutaki tæki
við jörðinni í haust, jafnvel þó hann gæti ekki flutt þangað fyrr
en síðar.
Semja ber við bæjarráð IsafjaySar.
ísafirði, 19. september 1957.
Bæjarstjóri.