Ísfirðingur - 12.02.1960, Blaðsíða 1
Áskriftarsími blaSsins
er 332.
Kaupiö og lesið
ÍSFIRÐING
10. árgangur.
ísafjörður, 12. febrúar 1960.
3. tölublað.
Þao borgar sig ao
auglýsa.
AuglýsiS í
ÍSFIRÐINGI
Bjargráð ríkisstjórnarinnar eru stórfelld kjaraskerð-
ing. Samdráttur í atvinnumálum er fyrirsjáanlegur.
Ríkisstjúrnin hefur nú nylega lagt fram á Alþingi frum-
varp til fjárlaga fyrir árið 1960 og frumvarp til laga um efna-
hagsmál. Óhætt er að fullyrða, að hin nýja stefna ríkisstjórnar-
innar, sem þessi frumvörp boða, hafi komið eins og reiðarslag
yfir þjóðina, og að almenningur í landinu sé ótta sleginn yfir
þeirri kjaraskerðingu og kreppu í atvinnumálum sem alveg
óhjákvæmilega mun sigla í kjölfar þeirra lagasetninga sem hér
um ræðir, ef frumvörpin verða samþykkt eins og þau Uggja
fyrir.
Allar þessar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar eru í hrópandi
mótsögn við fullyrðingar stjórnarflokkanna fyrir kosningar í
haust, en þá var þjóðinni sagt, að stjórn Alþýðuflokksins sem
studd var af Sjálfstæðisflokknum, hefði tekist að stöðva dýrtíðr
ina, án fórna, og að leiðin til bættra lífskjara væri í því fólgin, að
veita Alþýðu- og Sjálfstæðisflokkunum brautargengií kosning-
unum. Hvað mun alþyða landsins hugsa nú, þegar sömu flokk-
ar beita sér fyrir gífurlegri kjaraskerðingu í formi gengisfell-
ingar, stórkostlega aukinna skatta og tolla og vaxtahækkana.
Úhjákvæmilega hljóta þessar ráðstafanir að hafa í för með sér
vaxandi dýrtíð, samdrátt í atvinnulífi og framkvæmdum og þar
af leiðandi stórfellda kjaraskerðingu hjá almenningi.
Hið nyja frumvarp ríkisstjórnarinnar um efnahagsmál
sem lagt var fram á Alþingi 3. þ. m. gerir m. a. ráð fyrir eftir-
farandi:
Gengislækkun sem á að hækka verð á erlendum gjaldeyri
um 132,5% frá skráðu gengi. Dollarinn verður á kr. 38,00.
Nýr skattur verður lagður á útflutning, 5% af fobverði út-
flutningsvara, sem mun nema 120 millj. kr. og á hann að jafna
halla d útflutningssjóði frá fyrra ári.
Álögurnar vegna útflutningsuppbótanna eiga að haldast
áfram að mestu leyti, þrátt fyrir hina gífurlegu gengislækkun.
Nýju álögurnar umfram gengislækkun og vaxtahækkun verða
350—400 milljónir króna auk 120 millj. króna útflutningsskatts-
ins.
Gert er ráð fyrir stórfelldri útlánsvaxtahækkun, en til þess
þarf ríkisstjórnin ,að fd okurlögunum breytt. Einnig krefst rík-
isstjórnin heimildar til þess að ákveða vexti og lánstíma, án
íhlutunar Alþingis, hjá öllum stofnlánasjóðum landsins, þar á
meðal hjá Byggingasjóði verkamanna, Byggingasjóði ríkisins
(íbúðalánasjóði) og Fiskveiðasjóði.
Seðlabankinn fái heimild til þess að ákveða, að innláns-
deildir kaupfélaganna eigi innstæður í Seðlabankanum og hve
háar þær séu.
1 greinargerð frumvarpsins er gerb ráð fyrir, að vísitala
framfærslukostnaðar muni stórlega hækka vegna gengislækk-
unarinnar. En með lögum á að banna að hækka kaupgjald í
hlutfalli við vísitölu.
152 millj. kr. á að verja til aukinna fjöiskyldubóta og ann-
arra tryggingábóta, — á móti álögunum, gengislækkuninni,
vaxtahækkuninni og öðrum ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar.
Skiptaverð til fiskimanna á að lögfesta óbreytt eins og það
er nú, þar til nýir samningar hafa verið gerðir, einnig afla-
verðlaun togarasjómanna.
Ákvæði um fiskverð innanlands verða afnumin.
Visitöluuppbætur á smáfisk til fiskimanna verða og af-
numndar.
Innflutningshöftum verður haldið áfram og verða a. m. k.
40% af innflutningnum háðar leyfisveitingum.
„Strangar aðgerðir til takmörkunar útlána" eru og boðaðar.
Þá vill ríkisstjórnin fá heimildina til þess að taka lán hjá
Evrópusjóðnum hækkaða úr 6 í 17 millj. dollara og að kvóti
Islands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði hækkaður um 9,75
millj. dollara „til þess að auka möguleika d stuttum greiðslu-
lánum" en þannig er það orðað í greinargerðinni með frum-
varpinu.
I útvarpsumræðunum á mánudagskvöldið eyddi fjármála-
ráðherrann miklu af ræðutíma sínum í að mæla bót þeim en-
demis áformum ríkisstjórnarinnar sem drepið hefur verið á hér
að ofan, — en sú túlkun mun flestum hlustendum hafa þótt hin
aumasta, eins og efni stóðu raunar til. Þó mun flestum hafa
fundist ræða Emils ennþá aumari og risminni, enda var svo að
heyra að manninum væri eitthvað „tregt tungu að hræra." Ef
til vill hafa flögrað að manninum fullyrðingar foringja Alþýðu-
flokksins hér áður fyrr um það, að Alþýðuflokkurinn taki aldrei
þátt í ríkisstjórn sem stæði að gengisfellingu, því verkanir henn-
ar kæmu jafnan verst við þá sem lélegust hefðu kjðrin.
Minningarorð:
Sveinn Guðmundsson, flóustððum
Sveinn Guðmundsson, bóndi og
fyrrum útvegsmaður að Góustöð-
um í Skutulsfirði, andaðist að
heimili sínu 4. þ. m. á 73. aldurs-
ári.
Hann var fæddur að Hafrafelli
27. apríl 1887. Foreldrar hans
voru merkishjónin Ólöf Sveinsdótt-
ir, f. 9. nóv. 1853, d. 27. maí 1927,
og Guðmundur Helgi Oddsson,
sýslunefndarmaður og útvegsbóndi
að Hafrafelli, f. 6. des. 1855, d. 1.
sept. 1907.
Sveinn ólst upp í foreldrahús-
um að Hafrafelli, og tók strax og
kraftar leyfðu virkan þátt í störf-
um heimilisins. Hann fór í ungl-
ingaskóla á Isafirði upp úr alda-
mótunum og á þeim árum tók
hann góðan þátt í störfum ung-
mennafélaganna og íþróttafélags-
skap. Hann hóf ungur sjómennsku
og varð, innan við eða um tvítugs-
aldur, formaður á bát úr Hnífsdal.
Næstu árin var hann svo formaður
á bátum frá Hnífsdal og Isafirði.
Sveinn Guðmundsson giftist 21.
sept. 1912 eftirlifandi konu sinni,
Guðríði Magnúsdóttur, frá Sæbóli
í Aðalvík, hinni mestu dugnaðar-
og ráðdeildarkonu. Þau fluttu
strax að Góustöðum í Skutulsfirði
og áttu þar jafnan heima síðan.
Árið 1919 byggðu þau hjónin upp
íbúðarhúsið að Góustöðum, og síð-
ar voru öll peningshús byggð upp
og miklar ræktunarframkvæmdir
voru unnar.
Auk búskaparins fékkst Sveinn
í mörg ár við útgerð. Stundaði t.d.
í fjölda mörg ár smásíldveiði í
landnót. í nokkur ár annaðist hann
einnig flutninga um Djúpið á bát-
um sínum, Bolvíking og Voninni.
Þeim Guðríði og Sveini varð níu
barna auðið. Tvö barnanna dóu í
fyrstu bernsku, og sonur þeirra,
Magnús ,andaðist 1938, tvítugur að
aldri, hinn mesti gáfu- og efnis-
maður.
Eftirlifandi synir þeirra erii:
Guðmundur,, netagerðarmeistari,
Isaf., Vilhjálmur, bifvélavirkja-
meistari, Hafnarfirði, Sigurður,
bifreiðastjóri, ísaf., Gunnar, kaup-
Framhald á 3. síðu.