Ísfirðingur


Ísfirðingur - 13.09.1960, Síða 1

Ísfirðingur - 13.09.1960, Síða 1
Áskriftarsimi blaSsins er 332. Kaupið og lesið ÍSFIRÐING Það borgar sig aO auglýsa. Auglýsið í ISFIRÐINGI Héraðsmót Framsóknarmanna i Strandasýslu Framsóknarmenn í Strandasýslu héldu héraðsmót að Hólmavík laugardaginn 27. f. m. Jósep Rósin- karsson, form. Félags ungra Fram- sóknarmanna í Strandasýslu setti mótið og kynnti dagskráratriði. Ræður fluttu: Hermann Jónasson, alþingismaður, Jónas Jónsson, frá Melum, og Páll Þorgrímsson, frá Sambandi ungra Framsóknar- manna. Erlingur Vigfússon söng einsöng við undirleik Fritz Weisshappel. Gestur Þorgrímsson og Haraldur Adólfsson fluttu skemmtiþætti. Að lokum var dansað. Héraðsmótið var ákaflega fjöl- mennt og hið glæsilegasta og á- nægjulegasta í alla staði. Áskoranir á rikisstjórnina um að hvika í engu frð 12 mílna fiskveiðalogsogu Eftir að þau óhugnanlegu tíðindi urðu kunn, að ríkisstjórnin hefði fallist á samningaviðræðui* við Breta í sambandi við fiskveiðalögsög- una, hefur áskorunum ringt yfir ríkisstjórnina hvaðanæva að af land- inu, um að hvika í engu frá skýlausum rétti Islands til 12 milna fisk- veiðalandhelgi. Er þetta í samræmi við vilja allrar þjóðarinnar og áð- ur gerðar samþykktir Alþingis. Áskorun bæjarstjórnar Isafjarðarkaupstaðar. Á fundi bæjarstjómar Isafjarðarkaupstaðar sem haldinn var 7. þ. m. var eftirfarandi áskorun samþykkt með atkvæðum allra bæjarfulltrúa: „I tilefni þess að ríkisstjórn Islands hefur tekið upp viðræð- ur við brezk stjórnarvöld um Iandhelgismálið, ítrekar bæjar- stjórn ísafjarðar fyrri samþykktir í því máli og skorar ein- dregið á ríkisstjórnina að hvika í engu frá núgildandi reglu- gerð um 12 mílna fiskveiðilögsögu.“ Ályktun sýslunefndar Vestur-Isafjarðarsýslu. Á fundi í sýslunefnd Vestur-ísafjarðarsýslu, sem haldinn var á ísa- firði 2. september s.l., var samþykkt með öllum atkvæðum eftirfarandi ályktun í landhelgismálinu: „Sýslunefnd Vestur-lsafjarðarsýslu skorar á ríkisstjórnina að gera enga þá samninga um landhelgismálið, sem í nokkru hviki frá fullum rétti lslendinga til 12 mílna fiskveiðalögsögu." Samþykkt aðalfundar Stéttarsambands bænda. Á aðalfundi Stéttarsambands bænda var eftirfarandi tillaga sam- þykkt samhljóða: „Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn í Bifröst 5.—6. september 1960, lýsir fullum stuðningi við ákvörðunina um 12 mílna Iandhelgi Islands og skorar á stjórnarvöldin að hvika í engu frá einróma samþykktum Alþingis og halda á málinu með festu og einurð.“ Þann 1. september s.l. voru tvö ár liðin frá útfærslu fiskveiðaland- helginnar. Með árangur þeirrar ráðstöfunar geta Islendingar verið ánægðir. Allar þjóðir, að Bretum einum undanteknum, hafa í verki við- urkennt fiskveiðatakmörkin. Bretum einum hefur þótt það sæma að Ávarp til ísfirðinpa Bæjarstjórn ísafjarðar beinir máli sínu til allra bæjar- búa og vekur athygli þeirra á því, að auglýst er eftir láns- fé til malbikunar gatna í kaupstaðnum. Undanfarin ár hefur verið unnið að undirbúningi þessa mikilsverða nauðsynjamáls og sameiginlega áhugamáls allra bæjarbúa. Leitað hefur verið til verkfræðinga, sem eru sérfræðingar í þessum efnum, og hafa aflað sér víð- iækrar reynslu. Þeir hafa annast verkfræðilegan undir- búning, ráðið áhaldakaupum og haft yfirumsjón með framkvæmdum. Það þarf ekki að vekja athygli á árangr- inum af góðum undirbúningi. Sjón er sögu ríkari. Bæjar- búar liafa fylgzt með því verki, sem unnið hefur verið. Það hófst fyrir aðeins fjórum vikum, eða 27. f. m. Þó enn sé skammt á veg komið, geta bæjarbúar borið sam- an ástand þeirra götukafla, sem búið er að malbika, við ástand þeirra áður. Mismunurinn kemur enn skýrar í Ijós, þegar búið verður að tengja saman í eina heild götu- kaflana, sem búnir eru og þá, sem Ijúka á við í sumar. Bæjarbúar eiga líka mjög auðvelt með að gera sér í hug- arlund umskiptin, sem verða á bænum, þegar búið verður að malbika flestar eða allar göturnar. En hvenær getur það orðið? Er það ekld bara framtíðardraumur? Láta mun nærri að götur bæjarins séu samanlagt 100 þúsund fermetrar. Ef allir bæjarbúar sameinast, og vinna að því sem einn maður, að hrinda þessu velferðarmáli í framkvæmd á sem skemmstum tíma, og hver og einn styður það fjárhagslega af fremsta megni, með því að káupa skuldabréf, þá er vel hugsanlegt að það megi Ijúka verkinu á 5—6 árum. Þetta getur orðið ef bæjarbúar eru samtaka. Sýnið öll viljann í verki. Munið að margt smátt gerir eitt stórt. Ávaxtið fé ykkar í nauðsynlegum og heillaríkum fram- kvæmdum bæjarfélags ykkar, og stuðlið með því að upp- byggingu ísafjarðar. Hreinum götum fylgir lireint andrúmsloft, hrein hús, hreinir garðar og hreinn gróður. Isafirði, 2h. ágúst 1960. 1 bæjarstjórn Isafjarðar Birgir Finnsson. Bjarni Guðbjörnsson. Matthías Bjarnason. Halldór Ólafsson. Jón H. Guðmundsson. ■Marzellíus Bernharðsson. Iiögni Þórðarson. Símon Helgason. Björgvin Sighvatsson. Jón Guðjónsson, beita ofbeldi. Þeir hafa verndað veiðiþjófnað fiskiskipa sinna með vopnavaldi. íslenzka þjóðin mun ekki sætta sig við það, að ríkisstjórnin setjist að samningaborði með ofbeldismönnunum. Við þá er um ekkert að semja í sambandi við landhelgismálið. Þannig hefur þjóðin í heild lit- ið á það mál.

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.