Ísfirðingur - 22.09.1960, Blaðsíða 4
Frá Flateyri
Hvað er í fréttum?
Hjúskapur.
Jónína Jakobsdóttir, kennari,
Sundstræti 23 ísafirði og Garðar
Guðmundsson, kennari, Smiðju-
götu 10 ísafirði voru gefin saman
í hjónaband laugardaginn 17. þ.m.
Gullbrúðhjón.
Þriðjudaginn 20. þ.m. voru 50
ár liðin frá því að hjónin Sigurrós
Finnbogadóttir og Helgi Finnboga-
son, Túngötu 22 Isafirði, voru gef-
in saman í hjónaband.
Fiskveiðar
á bátum héðan úr bænum hafa
lítið eða ekki verið stundaðar að
undanförnu. Handfæraveiðum er
fyrir nokkru hætt, og veiðar með
línu hafa ekki hafizt ennþá. Bátar
hafa hinsvegar verið á smokkfisk-
veiðum hér í Djúpinu, og hefur
smokkfiskaflinn verið sæmilegur
upp á síðkastið.
Haustslátrun
hófst s.l. þriðjudag hjá Kaupfé-
lagi ísfirðinga. I haust mun verða
slátrað 7—8 þúsund fjár á vegum
Kaupfélagsins.
Jón Kristmannsson
lögregluþjónn hefur sagt upp
starfi sínu frá 13. þ.m.
Ævisögu- og
ættfræðirit
Um s.l. áramót var Nýjum
kvöldvökum á Akureyri breytt í
ævisögu- og ættfræðirit. Eiga nú
landsmenn þar greiðan aðgang ,að
traustum heimildum um þessi efni.
Þegar er tekinn að safnast í rit-
inu dýrmætur ættfræðifróðleikur,
og nýtur ritið þar sérstaklega
óvenjulegs fróðleiks Einars
B j amasona r, ríki sendurskoðanda,
sem gerzt hefur einn af ritstjórun-
um. Fyrir utan framhaldsgrein
hans, íslenzkir ættstuðlar, hafa
þegar verið raktar vandlega ættir
allmargra manna, og mun þannig
mörgu'm íslendingum innan
skamms kleift að finna ætt sína í
ritinu.
Þannig mun haldið áfram að
safna í ritið æviágripum og ættar-
tölum manna hvaðanæva að af
landinu. Gefst hverjum þeim, sem
sendir ritinu góða grein um ætt-
ingja eða vini, kostur á að fá ætt-
artölu viðkomandi manna rakta
eftir traustum heimildum, en slíku
hafa menn ekki áður átt kost á.
Þeir, sem unna þjóðlegum fræð-
um, ættu að gerast áskrifendur
strax frá byrjun. Árangurinn kost-
ar aðeins kr. 70,00. Geta menn
snúið sér beint til útgáfunnar á
Akureyri eða til umboðsmanns
á viðkomandi stöðum.
Útgerðarfélagið Hjallanes h.f. var
nýlega stofnað á Flateyri. Hefur
félagið nú keypt bát frá Norðfirði
er hlotið hefur nafnið Ásgeir
Torfason, ís. 96. Er þetta hið
myndarlegasta skip, 64 smálestir
með 240—280 ha. Alfa-Dieselvél,
og er báturinn búinn radar og öll-
um öðrum venjulegum siglingar-
tækjum. Báturinn er nú á smokk-
fiskveiðum, en fer á línuveiðar
síðar í haust. Gert er ráð fyrir að
Kaupfélag Önfirðinga taki afla
bátsins, að mestu, til verkunar, en
eitthvað af aflanum kann að verða
selt hraðfrystihúsinu á Flateyri.
Aðaleigandi hins nýja útgerðar-
félags er Kaupfélag Önfirðinga,
en meðeigendur eru: Benedikt V.
Gunnarsson, skipstjóri, Haraldur
Olgeirsson, stýrimaður, Einar Jó-
hannesson, vélstjóri, og fleiri.
Morgunblaðið ber sig mjög illa
yfir því að afli hafi brugðist á
síldveiðum og verðfall orðið á fisk-
imjöli. Segir það síðan:
„Sérstaklega er ljóst, að alger-
lega er tilgangslaust fyrir einstak-
ar stéttir að ætla út i kaupgjalds-
baráttu meðan þessir erfiðleikar
vara, því að kjarabætur fást að-
eins með framleiðsluaukningu, en
þegar um framleiðslurýrnun er að
ræða, mega menn þakka fyrir að
halda sömu kjörum og áður.“
í þessu tilefni má minna á það,
að menn hafa nú ekki sömu kjör
og áður þó að þeir hafi jafnmiklar
tekjur að krónutölu.
í öðru lagi má svo spyrja, hvort
ríkisstjórnin hafi nú áttað sig á
því að það var ranglátt og heimsk-
ulegt að bæta kjör hátekjumanna
um tugi þúsunda á ári hverju með
breyttum reglum um álagningu
skatta? Sá hópur hefur fengið
kjarabætur að frumkvæði ríkis-
stjórnarinnar, einmitt á þeim tíma,
sem Morgunblaðið segir að eng-
inn jarðvegur sé fyrir neitt slíkt.
Ríkisstjómin verður vitanlega
að taka afleiðingum verka sinna.
Og þá er ekki nema eðlilegt, að
þeir, sem vinna erfiðustu störfin
og hafa ekki nema til hnífs og
skeiðar, vilji fá einhverja leiðrétt-
ingu sinna mála til jafnvægis við
þær kjarabætur, sem ríkisstjórn-
in gaf hátekjumönnunum.
„Kjarabætur fást aðeins við
framleiðsluaukningu", segir Morg-
unblaðið. Þetta hefði ríkisstjórnin
átt að hugleiða betur áður en hún
gerði samdráttarstefnuna að sinni
stefnu. Leiðin til að auka fram-
M/b Hjálmar, bátur sá sem
skipasmíðastöð M. Bemharðssonar
lauk við smíði á í sumar, verður
gerður út frá Flateyri í haust og
vetur. Hefur hraðfrystihúsið á
Flateyri tekið bátinn á leigu, og
verkar það aflann. Báturinn hefur
að undanförnu verið á smokkfisk-
veiðum á Amarfirði og ísaf jarðar-
djúpi.
Dýpkunarskipið Grettir hefur að
undanförnu verið á Flateyri, og
hefur verið unnið að dýpkun hafn-
armegin við bryggjuna. Skapar
þetta miklu betri aðstöðu fyrir
báta, sem út eru gerðir frá Flat-
eyri.
Slátrun hjá Kaupfélagi Önfirð-
inga hófst 20. þ.m. Gert er ráð
fyrir að slátrað verði 3700 fjár í
haust.
leiðsluna er ekki sú, að fækka
vinnustundunum, en stjórnarstefn-
an er einmitt sú að takmarka yfir-
vinnu og minnka eftirspurn eftir
vinnuafli.
Árferði og aflabrögð verður
sennilega lengstum misjafnt á ís-
landi og nokkrar sveiflur í þeim
efnum daglegt brauð. Stjórnar-
blöðin hafa nú skiljanlega tilhneig-
ingu til að gera sem mest úr erfið-
leikum af því tagi. En því meiri
sem þeir erfiðleikar eru því frá-
leitara hefur það verið, að bæta
kjör tekjuhæstu mannanna eins og
ríkisstjórnin gerði.
Til eru menn, sem halda því
fram, að bak við þessa ríkisstjórn
séu menn, sem hafi grætt á vax-
andi dýrtíð og verðfalli peninga og
vilji nú fá óðaverðbólgu til að
græða enn meira á næstu misser-
um. Þessir menn stjórni stjórn-
inni og ráði því að hún forðist
öll samráð við fjöldasamtök þjóð-
arinnar til að vinna ráðstöfunum
sínum samúð. Þeir ginni stjórnina
líka til að ögra alþýðu, sem gjalda-
byrðin er stórum þyngd á, með því
að létta byrðar hátekjumannanna
um leið. Þetta sé allt saman gert
til að minnka líkurnar fyrir því
að ríkisstjórnin ráði við vandann.
Sýzt skal því haldið fram hér að
ríkisstjórninni gangi annað en gott
til með því sem hún hefur gert, en
óneitanlega er mönnum ærin vork-
unn þó að þeir freistist til að trúa
því, að stjórnin sé raunverulega
leiksoppur þeirra glæframanna,
sem óska einskis fremur en óða-
verðbólgu,
H. Kr.
Malbikunin
Eins og sagt var frá hér í blaö-
inu á sínum tíma hófst malbikun
gatna hér í bænum 27. júlí s.l.
Síðan hefur stöðugt verið unnið að
malbikuninni og verkinu miðað vel
áfram. Hér er um að ræða fjár-
freka framkvæmd, en sem flestir
eða allir bæjarbúar munu þó ein-
dregið óska eftir að haldið verði
áfram með. Með auglýsingu 15.
ágúst s.l. bauð bæjarstjórn ísa-
fjarðar út handhafaskuldabréfalán
til malbikunarinnar, og eru vaxta-
kjör af bréfunum mjög hagstæð,
eða 1% hærri en almennir spari-
sjóðsvextir.
Þess er að vænta að bæjarbúar
og félagasamtök í bænum bregðist
vel við og kaupi nú umrædd hand-
hafaskuldabréf til þess að tryggja
áframhaldandi framkvæmd við
malbikun gatna í bænum.
16. þing A.S.V.
16. þing Alþýðusambands Vest-
fjarða var sett í Alþýðuhúsinu á
ísafirði kl. 16 þriðjudaginn 20. þ.m.
Björgvin Sighvatsson, forseti sam-
bandsins, setti þingið og lagði
fram dagskrá. Um 30 fulltrúar
verkalýðsfélaganna á Vestfjörðum
voru mættir til þinghalds, svó og
forseti Alþýðusambands íslands,
Hannibal Valdimarsson. Forsetar
þingsins voru kjörnir þeir Marías
Þ. Guðmundsson og Karvel Pálma-
son. Ritarar: Eyjólfur Jónsson og
Sigurður Jóhannsson. Þá var og
kosið í nefndir, samþykkt laga-
breyting og reikningar sambands-
ins lagðir fram. Fundi var síðan
frestað til kl. 20,45.
Kl. 20.45 hófst fundur að nýju.
Þá flutti forseti Alþýðusambands
íslands, Hannibal Valdimarsson,
ræðu. Að henni lokinni flutti for-
seti A.S.V., Björgvin Sighvat$son,
yfirlitsræðu um starfsemi sam-
bandsins á s.l. tveimur árum. Þá
hófust umræður um skýrslu
stjórnarinnar og um útlitið í
kjaramálunum. Margir tóku til
máls, og stóð fundur til kl. 3 um
nóttina. Umræðum varð ekki lokið
og hófst fundur aftur kl. 16 í gær.
Frá samþykktum þingsins verð-
ur sagt í næsta blaði.
Rækjuvinnslan.
Rækjuveiðibátar héðan úr bæn-
um hófu aftur veiðar 27. ágúst s.L,
og hefur afli verið ágætur. Fyrir
Guðmund & Jóhann fiska 4 bátar,
og í verksmiðjum þeirra vinna
40—50 manns. Fyrir Niðursuðu-
verksmiðjuna h.f. fiska 2 bátar,
og vinna þar 60—70 manns. Fyrir
verksmiðju Ole N. Olsen fiska 2
bátar og þar vinna 40—50 manns.
Rækjuvinnslan er mjög þýðing-
armikill þáttur í atvinnurekstrin-
um í bænum.
Fara nú stjórnarbloðin að sjá?