Ísfirðingur


Ísfirðingur - 19.10.1960, Síða 1

Ísfirðingur - 19.10.1960, Síða 1
Fimmtugur: flalldór Krisíjánsson, Kirkjnbóli. Vaxtaokrinu og lánsfjár- kreppunni verði nú þegar aflétt Þingmenn Framsóknarflobksins í neðri deild Alþingis hafa lagt fram frumvarp til laga um breyt- ingu á lögum þeim um efnahags- mál sem sett voru á síðasta þingi. Efnahagsmálaaðgerðir ríkisstjórn- arflokkanna hafa að undanförnu verið að grafa grunninn undan at- vinnulífi þjóðarinnar. Með sam- þykkt umrædds frumvarps mimdi þá þegar verða aflétt því gífur- lega vaxtaokri og lánsfjárkreppu sem núverandi ríkisstjórnarflokk- ar réttu þjóðinni og atvinnuveg- unum skömmu eftir valdatöku sína. Frumvarpið er svohljóðandi: 1. gr- 31. gr. laganna orðist svo: Vextir af afurðavíxlum, sem endurkeyptir eru laf Seðlabankan- um, mega eigi vera hærri en 5,5%. 2. gr. 32. gr. laganna falli niður, og falla jafnframt úr gildi allar þær ákvarðanir um vexti og lánstíma, sem teknar hafa verið siamkv. á- kvæðum þeirrar greinar. 3. gr. 33. gr. laganna orðist svo: Síðasti málsliður 2. málgr. 16. gr .laga nr. 63 1957 orðist þannig: Stjómum banka og sparisjóða skal skylt að veita Seðlabankanum upplýsingar um starfsemi sína, svo sem um innlán og útlán. 4. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt eru úr gildi numin lög nr. 58 28. júní 1960 um bann við okri, dráttarvexti o. fl. Samtímis koma í gildi lög nr. 73 1933 um bann við okri, drátatrvexti o. fl„ og lög nr. 75 1952, um breytingar á þeim lögum. í greinargerð með frumvarpinu segir m. ia.: Stefna framleiðsluaukn- ingar og uppbyggingar Síðastliðið liaust var um tvær meginleiðir valið í efnahagsmál- um: Annarsvegar þá leið, sem Framsóknarflokkurinn vildi fara og barðist fyrir. Halda áfram framfarasókninni og leggja höf- uðáherzlu á að auka framleiðsl- una og koma í veg fyrir kjara- skerðingu. Jafna hallann í efna- hags- og framleiðslukerfinu, sem af forustumönnum stjórnarliðs- ins var metinn 250 millj. eða svo, með því að skattleggja eyðsluna og með hófiegri hækkun yfir- færslugjaldsins. Draga þannig úr uppbótakerfinu í áföngum. Halda fjárfestingunni hæfilegri með því að velja úr og láta bíða þær framkvæmdir, sem minnsta al- menna þýðingu höfðu, en liafna með öllu þeirri leið að gera fram- kvæmdir almemiings svo dýrar, að menn fengju með engu móti við þær ráðið. Halda áfram hóf- legum lántökum erlendis til arð- gæfra framkvæmda, jafnóðum og eldri lán væru greidd niður. Þess- ari leið var algerlega hafnað. Var þó með þessu móti hægt að leysa vandann með smávægilegum ráð- stöfunum, miðað við það, sem gert var. Samdráttar- og kjara- skerðingarstefnan Hins vegar er sú leið, sem rík- isstjómin beitti sér fyrir, sam- dráttar- og kjaraskerðingarleiðin. Sú leið að magna dýrtíðina og koma þannig í framkvæmd kjara- skerðingu og stórfelldum sam- drætti. Erlendar lántökur til fram- kvæmda og þar með framleiðslu- aukningar voru settar í bann, en undirbúin stórfelld gjaldeyrislán- taka til almennra vörukaupa. Gengið var fellt, mörg hundruð millj. krónia nýjar álögur lögfest- ar með almennum neyzlusköttum til að hækka verð á almennum neyzluvörum og dregið þar með úr kaupmætti almennings. Ofan á þetta var svo bætt stórfelldari vaxtahækkun en dæmi munu til úr nálægum löndum a. m. k. og enn þar á ofan beitt mörgum ráðum til þess að drag saman lánastárf- semi í landinu, þ. á. m. lán til framleiðslunnar .... Þann 2. þ. m. átti Halldór bóndi á Kirkjubóli í önundarfirði fimm- tugsafmæli. Það er svo langt síð- an við kynntumst Halldóri sem fastmótuðum og harðskeyttum þjóðmálamanni, að okkur furðar að æviárin skuli ekki vera fleiri. Hann er raunar á ýmsan hátt óvenjulegur maður. Hann er manna ritsnjallastur og rökvís svo af ber. Ræðumiaður er hann ekki síður ágætur, einkum af í odda skerst á fundum. Er hann ekki auðsóttur, hvorki á ritvelli né málþingum. Sýndi hann það m. a. ótvírætt á framboðsfundum í Al- þingiskosningunum í fyrra. En Halldór getur talað um fleira en stjómmál líðandi stundar. Hann hefir bókmenntaþekkingu stað- góða, bæði á ljóðum og skáldrit- um, trútt minni og skörp skiln- Yextir lækki tafarlaust Þetta frumvarp fjallar um ráð- stafanir, sem knýjandi er að koma í framkvæmd nú þegar til þess að draga nokkuð úr því öngþveiti, sem framundan er. En þær eru þessar: Færa vextina í það horf, sem þeir voru, áður en efnahagsráð- stafanir ríkisstjómarinnar voru gerðar. Hætta tafarlaust að draga sparifé landsmanna inn í Seðla- bankann út úr sparisjóðum, inn- lánsdeildum kaupfélaganna og viðskiptabönkum....... Nú er fram komið, svo að ekki verður um villzt, að engin fram- leiðsla né atvinnurekstur á ls- ingsgáfa gerir honum umtalsefn- ið skemmtilegt. En þrátt fyrir þetta er Halldór þó hinn eljusami bóndi, sem svo að segja lætur aldrei verk úr hendi falla. Ber ræktun og byggingar á Kirkjubóli þeim bræðrum gott vitni, sem prýðilegum búhöldum, er búa vel og snyrtilega að ábýli sínu. Eins og nærri má geta hefir Halldór tekið mjög mikinn þátt í féiagsmálum sveitar sinnar og sýslu og skal það ekki rakið hér. Hann er nú 2. varaþingmaður Framsóknarmanna í Vestfjarða- kjördæmi. Engar getur skulu leiddar að því hvort eða hvenær Halldór kann að setjast á þing- bekk. Hitt er víst að hann myndi reynast þar ágætlega hæfur starfsmaður, jafn fær og hann er til nefndarstarfa og ræðuhalda. Halldór er kvæntur Rebekku Eiríksdóttur frá Sandhaugum í Bárðardal, greindri og góðri konu. Hafa þau alið upp 3 fósturböm. Heill sé Halldóri á hálfrar ald- ar afmælinu. Megi honum auðn- ast mörg æviár til að vinna að hugðarmálum sínum. K. Um leið og tekið er undir ám- aðaróskir í tilefni fimmtugsafmæl- is Halldórs á Kirkjubóli, þakkar blaðið honum ágæta liðveizlu fyrr og síðar og væntir að mega sem oftast njóta þekkingar hans og rithæfni. landi getur risið imdir þessum okurvöxtum, livað þá almenn- ingur, sem þarf á lánsfé að halda til íbúðabygginga, framleiðslu- tækja og annarra brýnustu nauð- synja. Ríkisstjórnin sagði, að vaxta- hækkunin ætti að verða til að draga úr eftirspurn eftir lánsfé. Ráðstafanir ríkisstjómarinnar og þ. á. m. vaxtahækkunin sjálf hafa á hinn bóginn þrengt svo kosti al- mennings og atvinnufyrirtækj- anna, að eftirspurn eftir lánsfé til að bjarga frá framleiðslustöðvun og eignamissi er meiri en nokkm sinni fyrr. Er alveg augljóst, að fjöldi landsmanna missir fram- leiðslutæki sín, íbúðir og laðra Framhald á 2. síðu.

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.