SunnudagsMogginn - 14.03.2010, Side 24

SunnudagsMogginn - 14.03.2010, Side 24
24 14. mars 2010 Á þessum tíma var ég að gefa ráðleggingar til hægri og vinstri. Fólk stoppaði mig á götu og vildi fá sálgreiningu. Ég sá örvæntinguna í augum þessa fólks. Það kaldhæðn- islega var að ég af öllum mönnum var að veita heilræði um ást og kynferðismál. Ég sem hafði ekki neina reynslu af því að vera í sambandi við einn né neinn. Eina reynsla mín var höfnun. Ég var kominn út á hálan ís og var tilbúinn að verja lífsstíl minn með kjafti og klóm. Það gekk hvað lengst þegar ég fór alla leið í Hæstarétt vegna máls sem kom upp í sambandi við vinnuveitanda minn. Dr. Love- þátturinn var kostaður af erótískri verslun sem seldi hjálpartæki ástarlífsins og klámmyndir á vídeóspólum. Eigandi verslunarinnar greiddi mér laun og ég var tilbú- inn að gera allt fyrir vinnuveitandann minn, þar á meðal redda honum hommaklámi á vídeóspólum, sem ég lét hann fá úr einkasafni mínu. Hann fjölfaldaði vídeóspól- urnar og seldi í búðinni. Einn daginn mætti löggan og gerði allar spólurnar í verslun hans upptækar. Það tók lögregluna sjö mánuði að horfa á spólurnar til að úr- skurða hvort á þeim væri klám. Þar á meðal voru mínar spólur. Ég ætlaði ekki að láta lögguna rífa af mér kærast- ana mína þannig að ég bar vitni í þessu máli. Ég mæti í réttarsalinn og sagði að þessar spólur væru mín einka- eign og ég vildi fá þær til baka. Sannfæringarkraftur minn var svo mikill að dómarinn lét mig fá spólurnar til baka. Ég sótti þær upp á löggustöð í plastpoka. Það var nákvæmlega þarna í réttarsalnum sem ég átt- aði mig skyndilega og hugsaði: Palli, hvað ertu að gera? Hvert ertu kominn? Þú ert inni í réttarsal að verja klám- bransann. Maður sem er manna bestur í að deila tilfinn- ingum í gegnum tónlist. Þú ert að verja eitthvað sem er búið að stuðla að veruleikafirringu þinni í dágóðan tíma og hefur orðið til þess að þú getur ekki myndað neina nánd með neinum. Ég áttaði mig á að ég væri búinn að fjarlægjast það sem ég var að leita að í upphafi. Allan þennan tíma sem ég var í klámneyslu var ég bara að leita að einhverjum sem þætti vænt um mig, tæki mig í fangið, kyssti mig á munninn og væri góður við mig. Að leita að þessu í klámi er eins og að fara að leita að ljósi í myrkraherbergi, í dimmasta myrkri sem hægt er að hugsa sér.“ Ég þurfti hjálp Finnst þér þá að það eigi að banna klám? „Nei, það þýðir ekkert. Klám mun aldrei fara neitt og hefur aldrei verið jafn aðgengilegt og það er í dag. Ég vil ekki meina að öll klámneysla sé af hinu vonda. Alls ekki. Klám getur verið mjög upplýsandi kynfræðsla fyrir marga. Við þurfum bara öll að velja og hafna og læra að umgangast klám. Fylgifiskar klámbransans, eins og mansal og ofbeldi, eru ógeðslegir og ættu hvergi að viðgangast. Ég hef líka áhyggjur af unglingum sem upplifa klám mjög snemma til dæmis gegnum netið og halda að það sé kynlíf. Klám er ekki kynlíf. Um leið og einstaklingur er farinn að skapa sér að- stæður til að neyta kláms, hagræða kringumstæðum, ljúga sig veikan í vinnu, eyða peningum í þetta, og lætur mikilvæg verkefni mæta afgangi svo að hann hafi tíma til að skoða klám, þá er neyslan orðin stjórnlaus. Þá þarf P áll Óskar Hjálmtýsson fagnar í dag fertugs- afmæli sínu með tónlistarveislu á NASA þar sem vinir og vandamenn munu samfagna hon- um. Páll Óskar segist líta svo á að hann standi á tímamótum. „Ég lít til baka og velti fyrir mér hvað sé það merkilegasta sem hafi gerst síðustu fjörtíu árin,“ segir hann. Og hvað er það merkilegasta? „Ris, fall og endurkoma er í raun merkilegt fyrirbæri. Merkilegast finnst mér samt að ég fæ alltaf sömu spurn- inguna: Palli, af hverju áttu ekki kærasta? Það botnar enginn í því. Ég veit ástæðuna, hún hefur haft mikil áhrif á líf mitt og ég er tilbúinn að segja frá henni.“ Hver er hún? „Ég hef þrisvar sinnum á ævinni orðið ástfanginn. Til- finningar mínar í garð þessara karlmanna voru mjög heiðarlegar. En sama sagan endurtók sig. Þeir höfnuðu mér allir og byrjuðu með nýjum gaur nánast fyrir fram- an nefið á mér. Þegar þetta gerðist í þriðja sinn, alveg nákvæmlega eins og áður, þá glataði ég öllu trausti á karlmönnum. Síðan hefur verið mjög erfitt fyrir mig að treysta karlmönnum. Ég komst að þeirri niðurstöðu að allir karlmenn væru svín. Í kjölfarið hætti ég að um- gangast þá eins og manneskjur og fór að umgangast þá eins og hluti. Ég lokaði hjarta mínu og leyfði engum að komast að mér. Það myndaðist stórt, svart gat í maganum á mér, sem ég reyndi að fylla upp í með öllum tiltækum ráðum. Sumir sem verða fyrir svipuðu áfalli kjósa að fylla upp í þetta gat með því að lesa Rauðu ástarsögurnar, horfa á heilan helling af Hollywood-myndum eða þrjár seríur af Friends á einum sólarhring. Ég leitaði í hommaklám. Ég fór að upplifa karlmennina í klámbransanum allt í senn sem hetjur og kærastana mína. Ég leit upp til þeirra. En ég notaði hommaklám, ekki bara sem kærasta heldur einnig sem plástur á sárið. Klámið var líka nokkuð sem ég gat treyst, það var alltaf til staðar þegar ég vildi og hafnaði mér ekki. Það besta var að ég gat stjórnað því með fjarstýringunni. Þeir sem fara í svona neyslu einangrast. Ég varð einn í mínum heimi. Ef ég stundaði kynlíf með einhverjum í raunheimum, þá voru kröfur mínar orðnar svo miklar og fjarstæðukenndar að kynlífið olli mér alltaf von- brigðum. Ég var kominn á algjöra sjálfheldu. Þetta var allt einn stór flótti. Flótti frá raunveruleikanum.“ Fangi klámsins En sást það nokkurn tíma opinberlega? Þú hefur alltaf virst vera svo glaður og ánægður með lífið. „Ég held að þjóðina hafi hlotið að gruna að eitthvað væri að hjá mér. Ég káfaði í klofinu á mér í Evróvisjón fyrir framan milljónir manna. Ég gaf út plötu sem hét Deep Inside Paul Oscar. Ég byrjaði með útvarpsþátt sem hét Dr. Love þar sem ég talaði mjög opinskátt um kynlíf og ástarmál. Ég vil ekki gera lítið úr Dr. Love því það var full þörf á þeim þætti. Fólk sem hringdi inn til að leita ráða hjá mér var ekki að grínast og það var auðheyrt að það hafði engan til að tala við. Fólk kemur enn til mín og spyr af hverju Dr. Love sé ekki enn í loftinu. Ég segi allt- af það sama: Dr. Love er dáinn, jarðarförin hefur farið fram og blóm og kransar voru afþakkaðir. maður að viðurkenna að maður sé stjórnlaus og þurfi hjálp. Ég þurfti hjálp. Ég leitaði mér hjálpar og reyndi að skoða málið í stærra samhengi. Ég gerði það ekki einn. Það þýddi ekk- ert fyrir mig að reyna að hugsa mig sjálfan út úr þessu. Snilldarhugsanir mínar um karlmenn komu mér alla leið upp í hæstarétt. Maður þarf að vinna sig úr allri neyslu með einhverjum öðrum, taka blað og penna og skrifa niður hugsanirnar og bera þær svo undir aðra mann- eskju. Þannig fær maður lánaða dómgreind og nær að sjá atburðarásina í stærra samhengi. Við þá sem þurfa á að- stoð að halda segi ég: Þú getur fengið hjálp og notaðu alla þá aðstoð sem þér býðst. Notaðu sálfræðinginn þinn, geðlækni, prest, 12 spora kerfið, Guð, internetið, sjálfshjálparbækurnar, orkusteina, vini þína sem þú treystir. Farðu á fundi, lestu bækur, horfðu á bíómynd- ir, haltu dagbók. Það er hjálp allt í kringum þig. Þetta er búið að taka nokkurn tíma fyrir mig, það eru tíu ár síðan ég var í hæstarétti. Sárin eru næstum gróin. Ég er ennþá að læra að treysta karlmönnum. En ég er mjög bjartsýnn á framtíðina. Mér líður mun betur í eigin skinni. Ég ber meiri virðingu fyrir sjálfum mér og er far- inn að fíla sjálfan mig í botn. Þá fyrst er kannski hægt að fara að bjóða einhverjum öðrum í heimsókn.“ Hræðsla við karlmenn Hvernig sambandi viltu vera í? „Ég er búinn að gera það upp við sjálfan mig að fram- vegis munu ákveðnir karlmenn fá rauða spjaldið hjá mér. Ég mun ekki líta við þeim. Þetta eru giftir karl- menn eða karlmenn sem eru í samböndum, segja sífellt að þeir séu að fara að hætta með viðkomandi og byrja með mér af því ég sé svo fyndinn og skemmtilegur. Þetta mun ekki gerast framar. Það tók mig mörg ár að átta mig á því að J.R. Ewing í Dallas fór aldrei frá Sue Ellen. Það var alveg sama hvað hún var full og brjáluð og alveg sama hverju hann lofaði viðhöldunum sínum, hann yf- irgaf hana ekki. Ég sætti mig við það að vera viðhald. Sjálfsvirðing mín var ekki meiri en svo. Það er fullt af fólki sem er í sambandi við manneskju sem er ekki til staðar, líkamlega eða andlega. Ég vil ekki vera með giftum karlmanni sem getur ekki verið með mér á mikilvægum stundum af því samband okkar verður alltaf leyndarmál. Sá maður er ekki andlega til staðar. Ég hef prófað að eiga kærasta sem býr í útlönd- um. Sorrí, afsakið hlé, þetta er ekki samband. Ég vil að kærastinn minn sé til staðar af holdi og blóði og vil helst að hann búi í sama póstnúmeri og ég.“ Eru vonbrigðin í ástarlífinu það versta sem hefur hent þig? „Nei, höfnunin frá þessum þrem elskhugum var ekki verst. Það erfiðasta sem ég hef gert í lífinu var að koma mér uppúr þessum vítahring sem ég skapaði mér í kjöl- farið, þar sem ég þjáðist úr efasemdum um sjálfan mig. Meira að segja gjaldþrot er léttvægt í samanburði, það snerist jú bara um peninga. En ég hef reyndar unnið mig upp úr því gjaldþroti. “ Af hverju varðstu gjaldþrota? „Platan Deep inside Paul Oscar seldist ekki og eftir stóð ég með margra milljóna skuld. Ég var tekinn í rannsókn af Skattmann og auk þess féll á mig okurlán Viðtal Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Ég lokaði hjarta mínu Páll Óskar Hjálmtýsson fagnar fertugsafmæli sínu. Í dag lifir hann í sátt við sjálfan sig en fyrir tíu árum var hann óhamingjusamur og ráðvilltur eftir áföll í einkalífi og leitaði í hommaklám.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.