SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Síða 44

SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Síða 44
44 25. apríl 2010 Tónlistarmaðurinn Ben Folds og rithöfund- urinn Nick Hornby eru að vinna að plötu sam- an, en Folds greindi frá því í viðtali við tímarit- ið Paste á dögunum. Sagan segir að þeir félagar hafi setið saman á veitingahúsi, feng- ið hugmyndina og ákveðið að vinna að plötu saman. Mun Hornby sjá um textasmíði á meðan Folds sér um útsetningar á lögunum. Hornby er kannski best þekktur fyrir bækur sínar High Fidelity og About a Boy á meðan Folds var forsprakki Ben Folds Five áður en hann hóf sólóferli sinn. Folds og Hornby vinna að plötu Ný plata frá Ben Folds og Nick Hornby kem- ur út síðar á árinu. Það verður forvitnilegt að heyra ný lög Stu- arts Leslies Goddards eða Adams Ants. Fimmtán árum eftir að Stuart Leslie Godd- ard, betur þekkur sem Adam Ant, sendi frá sér sína síðustu sólóplötu hefur hann stað- fest við tónlistartímaritið NME að hann sé að vinna að nýrri plötu. Á plötunni, sem hef- ur fengið nafnið Adam Ant Is The Blueblack Hussar in Marrying The Gunner’s Daughter, fær Ant til liðs við sig fyrrverandi meðlimi Oasis, 3 Colors Red ásamt Boz Boorer sem lengi hefur unnið við lagasmíðar með Morr- issey. Ant samdi nýverið lag til minningar um fyrrverandi umboðsmann Sex Pistols, Mal- colm McLaren, en hann var á sínum tíma einig umbosðmaður Adam & The Ants. Ný plata á leiðinni frá Adam Ant Djasspíanistinn Horace Tapscott naut aldrei þeirrar hylli sem hann átti skilið, eða svo fannst mér í það minnsta þegar ég komst yfir skífuna The Dark Tree með kvartett Horace Tapscott og svissneska plötufyrirtækið HatHut gaf út fyrir áratug eða svo. Á skífunni var mögnuð tónleikaupptaka frá búllu í Hollywood 1989 þar sem Tapscott spilaði með John Carter á klarínett, Cecil McBee á bassa og Andrew Cyrille á trommur. Þegar í fyrsta lagi skífunnar, titillaginu sem er rúmar 20 mínútur að lengd, var maður kominn á ókunnar slóðir, klif- unarkennt píanó með kraumandi bassa- leik og líflegum trommum og svo var það þessi geggjaði klarínettleikari. Þegar hér var komið sögu var Tapscott 55 ára gamall og í fullu fjöri. Hann var þá búinn að vera að harka í djassinum á vestur- ströndinni, í Los Angeles, þar sem hann bjó frá barnsaldri. Þó að hann sé þekktastur sem píanóleikari í dag fékk hann fyrsta starfið sem básúnu- leikari í stórsveit Lionels Hamptons og fór með Hampton til New York þar sem hann bjó um tíma og spilaði þá meðal annars með John Coltrane og Eric Dolphy. Hann sneri þó aftur vestur og hóf þátt- töku í baráttu fyrir réttindum blökku- manna, en upp úr því starfi stofnaði hann stórsveit sem hann stýrði í mörg ár og var ætluð fyrir unga tónlistarmenn. Stjórn- málaþátttaka hans varð þó til þess að margir veigruðu sér við að ráða hann í spilamennsku, en hann hélt sínu striki alla tíð. Fyrsta breiðskífan kom út 1969, en það var ekki fyrr en hann tók að taka upp fyrir smáfyrirtækið Nimbus undir lok áttunda áratugarins og síðan fyrir HatArt að menn tóku eftir honum. Áður en hann gat nýtt sér meðbyrinn veiktist hann af lungnakrabba sem dró hann til dauða 1999. Þess má geta að lokum að John Carter lést 1991. HatHut hefur gefið The Dark Tree út að nýju með öðru umslagi en því sem hér sést. arnim@mbl.is Poppklassík The Dark Tree – Horace Tapscott Klifunarkennt píanó með kraumandi bassaleik Þ að eru líklega ekki margir tónlist- armenn sem hafa á sér jafnmargar hliðar og maður frá Kentucky-ríki, Will Oldham. Á síðastliðnum tuttugu árum hefur hann komið fram undir nöfnum á borð við Palace, Palace Brothers, Palace Music, Palace Songs, Bonnie „Prince“ Billy, Bonny Billy ásamt því að gefa út undir sínu eigin nafni. Á nýjustu plötu sinni notast Oldham við það nafn sem honum virðist líða best með og notast oftast við, nefnilega Bonnie „Prince“ Billy. Plata ber heitið The Wonder Show of the World og fær Oldham hér til liðs við sig gítarleikarann Emmett Kelly, sem er forsprakki hljómsveit- arinnar Cairo Gang ásamt Shahzad Ismaily og mynda þeir félagar tríóið Bonnie „Prince“ Billy & The Cairo Gang. Á sínum fyrri plötum hefur Oldham valið samstarfsfólk sitt af mikilli kostgæfni og þessu sinni er engin undantekning þar á. Hefur Old- ham fundið sér sérlega góða menn til að vinna með. Raddir þeirra félaga fara einstaklega vel saman í harmóníum laganna og eru á tímum ekkert ósvipaðar því sem liðsmenn Crosby, Stills, Nash & Young gerðu svo listilega vel á sínum tíma. Virðist sem prins myrkursins eins og Old- ham hefur oft verið kallaður, sé aðeins farinn að mýkjast með árunum. Sú svartsýni sem oft má heyra í eldra efni hans hefur að hluta til verið sett ofan í skúffuna að þessu sinni, en skúffunni var greinilega ekki lokað nægilega vel og er laumast í hana til að ná í nokkrar lag- línur svona inni á milli. Minnir þessi mýkri tónlist sem Oldham er senda frá sér núna svo- lítið á menn á borð við Neil Young og James Taylor. Eldgosaeyjan okkar í Norður-Atlantshafinu er Oldham ekki ókunnug. Hélt hann sína fyrstu tónleika hér árið 1999 og segja þeir sem þar voru á troðfullum Gauk á Stöng að heyra hefði mátt saumnál detta á milli laga svo dáleiðandi var hann á sviði. Sjálfur var ég ekki svo heppinn að vera á þeim tónleikum en ég man vel eftir seinni tón- leikum Oldhams á Gauk á Stöng veturinn 2001 á vetrarhátíð Hljómalindarinnar sálugu. Þar fór hann á kostum einn með gítarinn á sviði. Söngur hans var svo magnaður að hann hefði allt eins getað sleppt gítarnum og látið röddina sjá um alla vinnuna. Það væri því óskandi að þessi mikli prins myrkursins myndi sjá sér fært að halda tónleika hér aftur í nánustu framtíð, helst strax í kvöld. Hver er maðurinn? Á dögunum kom út ný hljóðversplata frá tónlistar- manninum Will Oldham, en þær telja nú hátt í annan tug. Að þessu sinni er hann Bonnie „Prince“ Billy og nýtur hann hjálpar liðsmanna Cairo Gang á plötunni. Matthias Árni Ingimarsson matthiasarni@mbl.is Will Oldham til hægri ásamt Emmett Kelly. Þeir eru meðlimir Bonnie „Prince“ Billy & The Cairo Gang. Ljósmynd/Jesse Fischler Will Oldham lætur sér ekki nægja að vera bara tónlistar- maður. Hann hóf ferilinn sem leikari í heimaborg sinni Lou- isville í Kentucky aðeins 17 ára gamall. Oldham flutti til Hollywood í von um frama í leiklistinni en fékk fljótlega nóg af bransanum og hætti ár- ið 1989. Hann hefur þó tekið að sér smáhlutverk í litlum myndum á borð við Julien Donkey-Boy og Junebug. Eftir að Oldham hætti í leiklistinni og sneri sér að tónlist hefur hann einnig getið sér nafn sem ljósmyndari. Plötuumslag meistaraverksins Spiderland með Slint prýðir til dæmis mynd eftir Oldham. Plötuumslag Spiderland með Slint prýðir mynd Oldhams Tónlistarmað- ur, leikari og ljósmyndari Tónlist Eftir að lög af nýrri plötu hljómsveitarinnar LCD Soundsystem láku nýverið á netið ákvað forsprakki sveitarinnar, James Murphy, að setja hana á heimasíðu sveit- arinnar þar sem hægt er að hlusta á hana í heild sinni frítt, í stað þess að flýta útgáfu- degi hennar. Á plötunni, sem kemur út um miðjan maí, má finna níu lög úr smiðju Murphys og fé- laga. Hljómsveitin er nú á tónleikaferðalagi í Evrópu, sem hefur raskast lítillega sökum eldgossins í Eyjafjallajökli. Hægt er að hlusta á nýju plötu LCD Soundsystem á heimasíðu sveitarinar Nýja LCD á netið

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.