SunnudagsMogginn - 16.05.2010, Síða 19
16. maí 2010 19
vopnaður hamri – en hamarinn segist staðfastur vera töfrum
gæddur.
Tilbrigði við goðafræði
CAOZ-menn segja myndina tilbrigði við norræna goðafræði
fremur en að hún fylgi forskriftinni í einu og öllu. Karakterarnir
séu þó trúir sinni upprunalegu gerð. „Við lútum lögmálum
skemmtanaiðnaðarins og fyrir vikið er óhjákvæmilegt að færa í
stílinn. Við leggjum samt áherslu á að gera þetta í sátt og sam-
lyndi við sagnaarfinn og efndum meira að segja til málþings í
samstarfi við Árnastofnun. Ekki var annað að heyra á mönnum
þar en að þeim litist ágætlega á,“ segir hinn framleiðandinn,
Arnar Þórisson, og bætir við að vonandi komi myndin til með að
glæða áhuga á norrænni goðafræði.
Hönnun myndarinnar er í höndum Gunnars Karlssonar, sem
jafnframt er aðstoðarleikstjóri, handritið á Friðrik Erlingsson,
aðalleikstjóri er Óskar Jónasson og klippingu annast Elísabet
Rónaldsdóttir en öfugt við leiknar myndir er teiknimynd klippt
samhliða framleiðslunni.
CAOZ er enginn nýgræðingur á sviði þrívíddarhönnunar. Fyr-
irtækið var stofnað fyrir níu árum en eigendur þess eru Títan
fjárfestingafélag, Brú II Venture Fund, Hilmar Gunnarsson og
lykilstarfsmenn CAOZ. Fyrirtækið hefur þegar framleitt tvær
tölvuteiknaðar stuttmyndir, Litlu lirfuna ljótu (2002) og Önnu og
skapsveiflurnar (2007), auk þess að framleiða fjöldann allan af
auglýsingum. Myndirnar hafa gert víðreist og báðar verið heiðr-
aðar með verðlaunum. „Með þessum myndum höfum við mark-
visst verið að búa okkur undir stóra verkefnið,“ segir Hilmar Sig-
urðsson. „Lærdómskúrfan er mjög brött í þessu fagi og maður
verður að hafa svigrúm til að prófa sig áfram. Þór verður mis-
kunnarlaust borinn saman við Hollywoodmyndirnar enda gera
börn engan greinarmun á framleiðslulöndum.“
Þór er skilgreind sem fjölskyldumynd en helsti markhópurinn
er börn á aldrinum átta til tólf ára.
Óbilandi þrjóska
CAOZ ákvað að ráðast í gerð myndarinnar Þór – í heljargreipum
um áramótin 2004/05. Á þeim tíma gerðu menn sér grein fyrir
því að mikil vinna væri framundan.
Engan óraði fyrir því að verkefnið
ætti eftir að taka hálft áttunda ár. „Ef
við hefðum gert okkur grein fyrir því
hvað þetta yrði flókið ferli hefðum við
sennilega ekki ráðist í þetta,“ segir
Arnar Þórisson en flýtir sér að bæta við
að hann sé ákaflega feginn því að menn
skyldu taka slaginn. „Það þarf óbilandi
þrjósku til að standa í svona löguðu,“
segir hann brosandi.
Greinarhöfundur getur skrifað upp á
það. Hann hefur spilað fótbolta með
Arnari og hann kemur alltaf aftur sama
hversu oft maður telur sig hafa hrist hann
endanlega af sér.
Það tók CAOZ fjögur ár að þróa og fjár-
magna verkefnið og notaði fyrirtækið til
þess upphæð sem svarar framleiðslukostnaði
á venjulegri íslenskri kvikmynd. Svo dýrt er
verkefnið að Arnar segir það frá upphafi
óhjákvæmilega hafa verið hugsað fyrir al-
þjóðamarkað. „Það er jákvætt aðhald að hugsa
stórt,“ segir Óskar Jónasson.
Sjóðbisness
Það hefur gengið á ýmsu. „Í raun má segja að
við höfum verið kýld köld niður þrisvar sinn-
um í fjármögnunarferlinu,“ segir Hilmar. „Í
hruninu töpuðum við 250 milljóna
króna fjármögnun en í stað
þess að gefast upp
bitum við á
jaxlinn og
fundum þessa
upphæð á
endanum aftur. Fólk
vann líka kauplaust í lengri tíma vegna þess að það hefur óbifandi
Söguhetjan, Þór.
Freyja og Óðinn íbyggin
á svip í Valhöll.