SunnudagsMogginn - 16.05.2010, Blaðsíða 42
42 16. maí 2010
K
ynslóðir koma og fara, þar
með taldar „ódauðlegar“
kvikmyndastjörnur, sem
skilja eftir sig skörð sem
fjöldinn allur telur að aldrei verði fyllt.
Það er nokkuð til í því, en gleymum ekki
að maður kemur í manns stað. Það átti
enginn að ná með táslurnar þar sem
Humphrey Bogart, Gary Cooper, Spencer
Tracy, Cary Grant eða Paul Newman, að
ógleymdum John Wayne, Clint Eastwood
og Steve McQueen, höfðu hælana, svo
örfá nöfn séu nefnd. Nú eða harðjaxlar og
karlmennskuímyndir á borð við Lee Mar-
vin, Charles Bronson, einhver nefnir
örugglega Sylvester Stallone, Arnold
Schwarzenegger, Denzel Washington,
Bruce Willis og Nicolas Cage. Allir hafa
þeir náð þeim himinhæðum að verða
goðsagnakennd átrúnaðargoð um allan
heim. Við, aðdáendur þeirra, lokum eyr-
unum ef menn voga sér að líkja ein-
hverjum nýstirnum við hetjurnar okkar.
En undarlegt nokk höfum við til allrar
guðs lukku jafnan fengið verðuga arftaka
í tröllum á borð við Johnny Depp, Brad
Pitt, Leonardo Di Caprio, Tom Cruise. Í
fyllingu tímans verður missir þeirra
örugglega óbætanlegur. Mark Wahlberg,
Daniel Craig, Jeff Bridges, Mel Gibson,
George Clooney, Will Smith, Matt Dam-
on, Viggo Mortensen, Jim Carrey, Russell
Crowe, Will Smith og Heath Ledger,
hefði hann lifað. Og hvað með Javier Bar-
dem, mundi einhver spyrja. Það er vænn
hópur á bekknum sem laðar að í bíó í dag
og vegur á móti mélkisum á borð við Or-
lando Bloom, Joss Hartnett, Cliff Owen,
Colin Farrell, Ryan Reynolds, Gerard
Butler, Keanu Reeves, Jude Law, Hugh
Jackman og hvað þær nú heita, allar
þessar mannborlegu, innantómu dæg-
urflugur sem suða á tjaldinu um sinn uns
óverulegur gjóluskratti feykir þeim inn í
tómthús gleymskunnar. Svo eru það
leikararnir sem áttu heiminn en hafa
brennt allar brýr að baki sér; Al Pacino,
Robert De Niro, Dustin Hoffman …
Hvað er í gangi með manninn, gleymir
hann kvenþjóðinni? Nei, hreint ekki, ég
sýti hins vegar mjög hversu fá ærleg hlut-
verk eru skrifuð fyrir leikkonur, í hvaða
kvikmyndagrein sem er. Helst að þær fái
umtalsverð tækifæri í dramatíkinni og
laufléttum rómantískum gamanmynd-
um. Kynjamisréttið er himinhrópandi.
Obbinn af þessum fáu feitu bitum fellur í
hlut Meryl Streep, Cate Blanchett og
Naomi Watts, þær eru ígildi Depp, Pitt og
Di Caprio af „veikara kyninu“. Það er
sægur af mögnuðum leikkonum, þótt
þær fái færri og oft bragðdaufari tækifæri.
Hilary Swank þarf ekki að kvarta, Rachel
Weisz, Keira Knightley, Scarlett Joh-
ansson, Penélope Cruz, Thandie Newton,
Rachel McAdams, Nicole Kidman. Ellen
Page er vonandi ekki á útleið nú þegar,
sumir eru einfaldlega of sérstakir og alltof
snjallir fyrir glansmyndaiðnaðinn sem
heldur gangandi kvikmyndahúsum
heimsbyggðarinnar.
Hlédrægt hæfileikafólk
Það er ótrúlegt hvað glæsilegar stór-
leikkonur eins og Susan Sarandon, Juli-
anne Moore, Helena Bonham Carter,
Diane Lane og Uma Thurman eru lítið í
sviðsljósinu, miðað við hæfileika og útlit.
Sama má segja um margan staffírugan
karlpeninginn, nefnum aðeins Sean
Penn, Kevin Bacon, John Cusack, Chris
Cooper, Tim Robbins, Joaquin Phoenix
mun hafa kosið fásinnið. Og hvað í
ósköpunum varð af jafn frábærum leik-
urum og Don Cheadle og Jamie Foxx?
Á síðustu öld voru til drottningar hvíta
tjaldsins, risar á borð við Bette Davis,
Joan Crawford, Elizabeth Taylor, Kather-
ine Hepburn, Sophiu Loren, Marilyn
Monroe, listinn er langur. Nú eru það
helst hin ósökkvanlega Meryl Streep, An-
gelina Jolie og Kate Winslet sem fylla
þennan flokk ásamt Nicole Kidman (til
skamms tíma). Helen Mirren er alltaf jafn
stórfengleg líkt og Judi Dench.
Plássið er að fyllast og tímabært að
nálgast framtíðina. Við sjáum hana e.t.v. í
Shia LaBeouf, einkum ef hann spjarar sig í
nýju Wall Street-myndinni hans Olivers
Stones. Channing Tatum er á siglingu í
myndunum Public Enemy (Pretty Boy
Floyd), G.I. Joe og á næstunni fer hann
með aðalhlutverkið í stórmyndinni The
Eagle of the Ninth (ásamt Mark Strong,
öðrum eftirtektarverðum leikara); The
Brotherhood of the Rose og The Stanford
Prison Experiment, svo eitthvað sé nefnt.
Josh Brolin er kominn upp undir toppinn
með hjálp magnaðrar frammistöðu í
vænum myndum og margar forvitnilegar
á leiðinni. Thomas Jane vakti athygli í
Boogie Nights og er, líkt og Brolin, sönn-
un þess að sígandi lukka er best. Hann er
að færa sig upp úr miðlungsmoði eftir
sögum Stephens Kings (The Mist,
Dreamcatcher), upp í aðalhlutverk og
leikstjórastólinn í The Devil’s Comm-
andos. Við skulum ekki gleyma Jason
Statham, þótt hann fái örugglega aldrei
svo mikið sem Golden Globe-tilnefn-
ingu. Hann hefur einfaldlega sannað það
í flestum sínum B-myndum að hann er
býsna skemmtilegur karakter á tjaldinu,
heldur hlutunum gangandi með sinni
groddaútgeislun. Dálítill Rourke í hon-
um. Sam Worthington (Avatar, Clash of
the Titans) er með mest áberandi leik-
urum dagsins en hann á eftir að sanna
hvort hann hefur seigluna. Látum
myndir eins og Last Night, Dracula Year
Zero og einkum The Debt (þar sem hann
fær að spreyta sig með þungavigtarfólki
eins og Mirren, Ciarán Hinds og Tom
Wilkinson) skera úr um það. Það má
nefna Gabriel Macht, Chris Pine og sjálf-
sagt fjölda annarra til sögunnar en látum
Christian Bale vera piparkornið í pylsu-
endanum. Hann þarf ekki að kvarta
undan atvinnuleysi þótt ég spái honum
gleymsku eftir svo sem fimm ár – svo
maður sé örlátur.
Kvennablóminn ótæmandi
Kvennablóminn er ótæmandi í leikara-
stéttinni og líklega er Kristen Stewart sú
sem ríkir í dag hjá nýstirnunum. Það á
hún að þakka fínni frammistöðu í Twi-
light-seríunni, sem er álíka vinsæl og
best gerist í bálkum um ofurhetjur með
hreðjar. Stewart er með margar myndir í
takinu, sumar athyglisverðar, eins og
Backwoods, Paani og An American Girl.
Zoe Saldana er önnur, brennheit og fersk
eftir metaðsóknarmyndina Avatar. Hún
mun m.a. leika í næstu Star Trek-mynd
og er væntanleg í einum fimm myndum í
ár. Ég minntist áður á Ellen Page og það
væri þvert á sannfæringu mína að skipa
henni ekki í flokk með stjörnum fram-
tíðarinnar. Sama máli gegnir um Rachel
McAdams, sem stóð sig engu síður en
karlarnir í Sherlock Holmes og State of
Play. Hún er væntanleg í aragrúa
mynda, þ.á m. Ness eftir David Fincher,
í hrikalegu karlamoði: Matt Damon
(Eliot Ness), Gary Oldman og Casey Af-
fleck. Þá fer hún með aðalkven-
hlutverkið í nýjustu mynd Terrences
Malicks, á móti Bale og Bardem. Ekki
slorlegur félagsskapur. Ég veðja líka á
Maggie Gyllenhaal, og svo er það alltaf
hún Reese litla Witherspoon …
Greinin var unnin á fullkomlega óvís-
indalegan hátt, aðeins stuðst við tilfinn-
inguna.
Johnny Depp.
Reuters
Hverjir erfa hvíta tjaldið?
Það líður ekki svo árið að einhverjum vænum
pilti og stúlku sé ekki spáð frægð og frama –
hvert svo sem framhaldið verður. Könnum
hverjir eru heitir í dag og hverja þeir erfa.
Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is
Scarlett Johansson. Meryl Streep.Brad Pitt.
Sunnudagur 16. maí 2010 kl. 21.30. (RÚV)
RÚV heldur áfram að sýna athyglisverðar
myndir á sunnudagskvöldum, þær eru fá-
gætt ljós í myrkrinu. Kvöldið í kvöld er engin
undantekning, boðið upp á sviðsetta banda-
ríska heimildarmynd um einn af þeim hræði-
legu glæpum sem japönsku hermennirnir
frömdu í tengslum við síðari heimsstyrjöld-
ina. Þetta er hin kraftmikla Nanking, sem
segir af fórnunum sem íbúar þessarar kín-
versku borgar þurftu að færa er Japanar her-
tóku hana rétt fyrir stríðsbyrjun. Brugðið er
ljósi yfir aðstoðina sem samfélag um
200.000 erlendra íbúa borgarinnar veitti
heimamönnum sem voru hólpnir ef þeir
komust inn á friðað svæði útlendinganna.
Kínverskar konur voru einkum grátt leiknar
af japönsku villimönnunum sem smöluðu
þeim saman í tugþúsundatali og sendu vítt
og breitt sem kynlífsþræla fyrir hermenn
keisara sólarinnar. Skaðabótamálum þeirra
er nýlokið. Sviðsett eru viðbrögð nokkurra
íbúa á hlutlausa svæðinu, notuð brot úr
gömlum heimildarmyndum og lesið úr bréf-
um og skýrslum og rætt við Kínverja sem
lifðu af djöfulskapinn. Myndin hefur fengið
afburðadóma og er sannkallaður hvalreki.
Meðal þeirra sem koma fram: Woody Harrel-
son, Mariel Hemingway, Jürgen Prochnow og
Stephen Dorff. Leikstjórar: Bill Guttentag og
Dan Sturman.
Nanking
Laugardagur 15. maí 2010 kl. 23.50.
Hallam Foe (Bell) er ungur Skoti sem syrgir
nýlátna móður sína og hefur búið um sig í
tréhúsi þar sem hann fylgist náið með hátt-
um nágrannanna, beinir ekki síst sjónauk-
anum að föður sínum (Hinds) og nýju kon-
unni hans (Forlani), en hann grunar þau um
verknaðinn. Það sem í upphafi voru grun-
semdir breytast í þráhyggju og sjúklega eft-
irsjá. Að endingu flýr Foe fortíðina til Ed-
inborgar, þar sem hann kemst með góðrar
konu hjálp á réttan kjöl.
Óvenjulegt sálfræðiblandað gamandrama
vaknar til lífsins í höndunum á „undra-
barninu“ Bell (Billy Elliott), sem þrátt fyrir
heldur ósæmilega hegðun gluggagægis og
aðrar vafasamar hvatir vinnur mann á band
söguhetjunnar. Forvitnileg, var sýnd á veg-
um Græna ljóssins. Leikstjóri: David Mac-
kenzie. Aðalleikarar: Jamie Bell, Sophia Myl-
es, Ciaran Hinds, Claire Forlani.
Myndir vikunnar í sjónvarpi
Hallam Foe
Kvikmyndir