SunnudagsMogginn - 16.05.2010, Blaðsíða 48
48 16. maí 2010
S
öfnunarárátta er mörgum í blóð
borin. Fólk safnar servíettum,
frímerkjum, fingurbjörgum og
jafnvel bjórglösum. Ég safna am-
bögum, einkum úr fjölmiðlum, og hef
gert það lengi. Ég er með litla kompu ná-
lægt sjónvarpstækinu og í hana fara ýmis
orð og setningar sem vekja eftirtekt
mína. Athugasemdir rata líka stundum á
litla miða, aftan á umslög eða annað sem
hendi er næst. Og af nógu er að taka. Ef
marka má viðbrögð við síðasta pistli
mínum er ég ekki ein um þessa áráttu –
sem sumum þykir þó bera keim af smá-
smygli. Meðal þess sem er að finna í am-
bögusafni mínu eru mýmörg dæmi þar
sem eintöluorð eru notuð í fleirtölu.
Fjöldi þessara dæma er alveg merkilegur
og það virðist sem eitthvert fleirtölufár
hafi gripið um sig.
Eitt af einkennum nafnorða er að þau
geta staðið bæði í eintölu og fleirtölu, sbr. ein tölva, margar tölvur. Hins vegar eru til
mörg nafnorð sem aðeins eru notuð í eintölu eða í fleirtölu, oft kölluð eintöluorð og
fleirtöluorð. Sem dæmi um eintöluorð má nefna orðin megrun og árátta. Ég sló þeim
upp á google.is og fékk þá upp tæplega 600 notkunardæmi um megranir. Um 1.250
notkunardæmi komu upp ef ég sló inn orðið áráttur. Ég hef nokkrum sinnum rekið
mig á að hafa álitið orð vera eintöluorð en svo séð í orðabók að fleirtölumyndin er líka
gefin upp. Ég hélt t.d. að fyrirsögnin Hættuleg eiturgös við eldstöðvar væri dæmi um
ambögu en sá svo í orðabók að fleirtalan er gefin upp, sbr. gas H -s, gös. Og þar með
strikaði ég yfir setninguna í kompunni – þótt ég væri ekki alveg sannfærð.
Til að gefa nokkra mynd af fjölda þeirra orða sem teljast til eintöluorða eða fleirtölu-
orða hef ég tekið saman eftirfarandi lista og einnig svolítið dæmasafn þar sem ég sýni
hvernig orð sem flokkast sem eintöluorð eru notuð í fleirtölu.
Nokkur eintöluorð
árátta, hveiti, sykur, mjólk, verð, máln-
ing, kvíði, hatur, þreyta, hungur, tölvu-
póstur, áskorun, fiður, fólk, kaffi, kjöt,
nám, verð, vinna, bann, kaffi, kjöt, nám,
megrun, sannleikur, úrval
Nokkur fleirtöluorð
buxur, börur, dyr, feðgar, harðindi,
hjón, jól, kynni, líkur, mistök, mæðgur,
páskar, samtök, skæri, sifjar, tónleikar,
páskar, tíðindi, vandræði, vanskil
Vandað mál
Við eigum mjög góðan herrailm.
Sama góða verðið í gildi.
Góður afsláttur er veittur.
Það er gott bragð af þessum eplum.
Þetta er mikil áskorun.
Allur þessi tölvupóstur er þreytandi.
Við veitum ekki neinn greiðslufrest.
Mikil röskun hefur orðið á flugi.
Flug var fellt niður í dag.
Hún er alltaf í fleiri en einni vinnu.
Bannið tekur strax gildi.
Niðurstöður forvals eru áhugaverðar.
Átröskun er alvarlegt mál.
Ég er með söfnunaráráttu.
Þú hefur oft farið í megrun.
Ég hef hafið námið í báðum greinunum.
Óvandað mál
Við eigum mjög góða herrailmi.
Sömu góðu verðin í gildi.
Góðir afslættir eru veittir.
Það eru góð brögð af þessum eplum.
Þetta eru miklar áskoranir.
Allir þessir tölvupóstar eru þreytandi.
Við veitum enga greiðslufresti.
Miklar raskanir hafa orðið á flugi.
Flug voru felld niður í dag.
Hún er alltaf í mörgum vinnum.
Bönnin taka strax gildi.
Niðurstöður forvala eru áhugaverðar.
Átraskanir eru alvarlegt mál.
Ég er með söfnunaráráttur.
Þú hefur oft farið í megranir.
Ég hef hafið bæði námin.
Nú má vera að sumir afgreiði þetta fleirtölufár sem svokallaðan samtímanlegan
breytileika. Það getur vel átt við um orð eins og íþróttakeppni sem er notað fullum
fetum í fleirtölu án þess að hjartsláttur okkar málfarslögganna aukist til muna. En hvar
á að draga mörkin? Eigum við bara að yppa öxlum, taka ofan lögguhúfuna og kalla all-
ar ambögur samtímanlegan breytileika. Líka þegar við heyrum allt í kringum okkur
„ég vill“, „talva“, „úlpan heingur“, „hjá systir minni“, „honum langar“ og „henni
vantar“ – svo fátt eitt sé nefnt?
Hversdagsvillur II
Sumir safna servíettum, frímerkjum, fingurbjörgum, bjórglösum eða þjóðbúningadúkkum.
Pistilshöfundur safnar ambögum, einkum úr fjölmiðlum, og hefur gert það lengi.
Morgunblaðið/Heiddi
’
Hvar á að draga
mörkin? Eigum við
bara að yppa öxlum,
taka ofan lögguhúfuna og
kalla allar ambögur sam-
tímanlegan breytileika?
Tungutak
Svanhildur Kr.
Sverrisdóttir
D
avid Byrne var sumarlega
klæddur, í hvítum buxum og
strigaskóm og léttur í lund
þegar blaðamaður náði tali af
honum í Hafnarhúsi miðvikudaginn sl.
Reyndar þurfti blaðamaður að fara í
stutta fjölmiðlabiðröð, á eftir sjónvarps-
og útvarpsfólki sem ræða vildi við þenn-
an merka mann. Byrne tók þessu litla ís-
lenska fjölmiðlafári af stóískri ró, enda
margreyndur í samskiptum við fjölmiðla.
Byrne fæddist í Skotlandi 14. maí
1952 og er því nýorðinn 58 ára (til ham-
ingju, Byrne). Foreldrar hans fluttu til
Kanada þegar hann var tveggja ára og um
sex árum síðar til Maryland. Núna býr
hann í New York.
Byrne er þekktur fyrir margs konar
listsköpun og afrekaskráin er æði löng.
Þekktastur er hann án efa fyrir störf sín
með hinni áhrifamiklu nýbylgjusveit
Talking Heads sem hann stofnaði ásamt
öðrum árið 1975, gegndi í henni stöðu
söngvara og var helsti lagasmiður sveit-
arinnar. Talking Heads lagði upp laupana
árið 1991. Auk þess að fást við tónlist, búa
til tónlistarmyndbönd og hanna ýmislegt
sem hljómsveitum fylgir hefur Byrne
haldið sýningar á ljósmyndum sínum og
öðrum myndlistarverkum, skrifað bæk-
ur, hannað eitt og annað, m.a. hjólreiða-
standa (hann er mikill áhugamaður um
hjólreiðar og hefur ritað um það bækur)
og espressóbolla, framleitt tónlist og
kvikmyndir, leikið í kvikmynd, samið
dansverk og þannig mætti áfram telja.
Listinn er langur. Af verðlaunum sem
Byrne hefur hlotið má nefna Óskars-
verðlaun (fyrir tónlist við kvikmynd
Bernardo Bertolucci, Síðasti keisarinn),
Grammy-verðlaun og Golden Globe.
Stórmerkilegur maður, sum sé, og sann-
kallaður fjöllistamaður.
Fyrir viðtalið fékk blaðamaður þau
fyrirmæli (tvisvar) að spyrja Byrne ekki
um Talking Heads. Sveitin ætlaði ekki að
snúa aftur. Greinilegt að Byrne er orðinn
þreyttur á því að vera spurður út í mögu-
lega endurkomu. Enda kemur Talking
Heads verkum hans á Listahátíð ekkert
við og því ætti maður þá að spyrja?
Ekkert svar er hið rétta
Byrne sýnir tvenns konar verk á Listahá-
tíð. Annars vegar ljósmyndir í gluggum
Hafnarhússins, myndaröð sem hann
nefnir Inside Out og sýnir glugga og dyr í
ýmsum ónefndum húsum og hins vegar
verk í upplýsingastöndum víða um borg-
ina þar sem hann leggur fram erfiðar
valspurningar með þremur mögulegum
svörum. Ljósmyndir af eftirlitsmynda-
vélum voma yfir textanum, sá sem svarar
er minntur á að einhver gæti verið að
fylgjast með honum og hverju hann svar-
ar. Eins gott að svara rétt! En ekkert
svaranna er þó hið rétta, þau eru í raun
öll rétt en um leið öll röng, allt eftir því
hvernig hver og einn lítur á það. Þessa
syrpu kallar hann Moral Dilemmas, eða
Siðferðisklípur.
Eitt þessara verka virðist eiga sér-
staklega vel við íslenskt samfélag í dag
því spurt er hvað viðkomandi myndi gera
ef bróðir hans væri bankastarfsmaður
sem hagnast hefði á hruninu og vildi
deila gróðanum með honum. Myndi við-
komandi a) segja til hans, b) gefa sinn
skerf til góðgerðarmála eða c) afþakka og
segja engum frá. Byrne verður prakk-
aralegur á svip þegar blaðamaður spyr
hann út í siðferðisklípurnar, hvaðan
hugmyndin hafi komið að þeim.
„Ég held að ég hafi fengið hugmyndina
út frá persónuleikaprófum þar sem
valspurningar eru lagðar fyrir mann.
Þegar menn leggja slík próf fyrir fólk
segja þeir fólki oft að hafa engar áhyggj-
ur, ekkert svar sé rétt. Í þessu tilfelli er
ekkert svar gott,“ segir Byrne og hlær
innilega að hugmyndinni. Öll svörin séu í
raun slæm.
- En þó eru þau um leið öll rétt?
„Einmitt, það er í raun ekkert rétt eða
rangt. Yfirleitt er um mjög slæmt ástand
að ræða og engin góð lausn á því.“
- Og eftirlitsmyndavélarnar fylgjast
með manni …
„Já, fylgjast með því sem gerist.“
- Þú hefur greinilega áhuga á slíkum
myndavélum?
„Já, þær eru alls staðar, sérstaklega á
Englandi, þær eru úti um allt þar …“ segir
Byrne og horfir hugsi út um gluggann á
bókasafninu í Hafnarhúsinu, eftirlits-
myndavélarnar valda honum heilabrot-
um. Byrne hefur tekið fjölda ljósmynda af
slíkum eftirlitsmyndavélum í ólíkum
borgum heimsins, m.a. New York og
London. „Hver er að skoða allar þessar
Bannað að tala
um Talking
Heads
Listamaðurinn David Byrne sýnir ljósmyndir í
gluggum Hafnarhúss á Listahátíð í Reykjavík og
spyr áleitinna, siðferðilegra spurninga á upplýs-
ingastöndum víða um borgina. Og það er bannað
að tala um Talking Heads.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Lesbók