SunnudagsMogginn - 23.05.2010, Síða 21
23. maí 2010 21
Útigangsmaður Þónokkuð er um betlara í París. Þessi valdi sér gjarnan brýrnar í nágrenni Notre
Dame og hafði tvo hvolpa til að hjúfra sig upp að.
Þ
að er til ógrynni af ljóðum og lögum sem
fjalla um vorið og allt sem það hefur í för
með sér fyrir menn, dýr og gróður. Annað
eins magn af óðum hefur verið samið um
París, þá iðandi stórborg rómantíkur og lista. Þegar
þetta tvennt leggst á eitt, vor og París, verður út-
koman ljóðræn fegurð sem ekki er hægt að gera sér
í hugarlund án þess að hafa upplifað hana í per-
sónu.
„Fólkið er léttklæddara og það flykkist í laut-
arferðir í almenningsgarðana sem byrja að fyllast á
þessum tíma árs,“ segir Gunnar Theodór Eggerts-
son, doktorsnemi í bókmenntafræði við Háskóla Ís-
lands sem býr í 20. hverfi Parísar, um breytingarnar
sem vorkoman hefur á borgarbúa. „Svo flæðir fólk
niður að kanalnum og auðvitað bökkum Signu. Þar
má sjá raðir af ungu fólki með rauðvín og bagettur.
Þetta er engin klisja með það enda eru klisjur klisj-
ur af góðri ástæðu.“
Gunnar flutti til borgarinnar í haust og er því að
upplifa sitt fyrsta vor í París. „Það er svolítið fyndið
í þessu vorveðri að koma frá Íslandi þar sem 20
stiga hiti er bara sumar og blíða. Svo heyrir maður
Parísarbúa kvarta yfir kulda og tala um hvað þá
langi til Suður-Frakklands því það sé svo kalt í Par-
ís.“ Aðalbreytingin á götulífinu við vorkomuna seg-
ir Gunnar vera ferðamennina. „Núna byrja að sjást
raðir út úr Notre Dame. Ég finn mikinn mun að fara
niður í miðbæ.“
Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér er
vorið sannarlega búið að taka völdin í París þar sem
kaffihúsin eru full af fólki sem drekkur í sig
stemmingu og götulistamenn skemmta gestum og
gangandi á götuhornum og torgum.
Vor í
París
Gluggagægir Þessi vaxmynd gægist út um glugga búðar við Passage Jouffroy sem er ein þeirra gatna í
Óperuhverfinu sem voru yfirbyggðar og upphitaðar á seinni hluta 19.aldar. Í þessum þröngu verslunargötum
má finna allt frá gömlum myndavélum til teiknimyndasögubóka.
Almenningsgarðar og árbakkar fyllast af
ungu fólki í lautarferð. Ferðamenn fylla
miðbæinn, kaffihús og söfn. Vorið er
sannarlega komið í París.
Myndir: Ómar Óskarsson omar@mbl.is
Texti: Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is
Ofgnótt osta Talið er að yfir þúsund mismunandi tegundir osta séu
framleiddir í Frakklandi. Hér er viðskiptavinur í ostabúð við Rue Saint Louis
en I’lle að dást að úrvalinu enda úr mörgu að velja.
Listir og viðskipti La Defense er háhýsabyggð viðskiptanna í vest-
urhluta borgarinnar sem hóf að rísa á sjöunda áratugnum til þess að hýsa
frönsk og alþjóðleg stórfyrirtæki. Síðan hefur mörgum torgunum verið breytt
í nokkurs konar listasöfn undir beru lofti. Þessi stytta af hálfu mannshöfði er
eitt fjölmargra listaverka sem berja má augum í La Defense.