SunnudagsMogginn - 13.06.2010, Side 2
2 13. júní 2010
18 Bak við tjöldin
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir og Ómar Óskarsson upplifðu stemn-
inguna við höfnina á Geirsgötu.
27 Stríðið er hafið
Ian Buruma, prófessor í mannréttindamálum, fjallar um heimsmeist-
aramótið í knattspyrnu sem hófst í gær og vonar að Holland vinni.
28 Bitur hestur í Síberíu
Ragnar Axelsson segir söguna bak við myndina.
32 Að skilja þennan
nýja heim
Íslendingar hafa meðal annars tekið á móti
flóttamönnum frá Kólumbíu. Nanna Gunn-
arsdóttir rýnir í hvernig til hefur tekist.
36 Hvers vegna var
reimt í Höfða?
Árstíðaferðir er nýtt fyrirtæki sem býður upp á rafhjólatúra um götur
Reykjavíkur og margvíslegan fróðleik í bland.
Lesbók
48 Upphaf norrænna nútímabók-
mennta
Fyrir 120 árum kom út bók um hungraðan flæking í Ósló eftir norska
rithöfundinn Knut Hamsun. Henni var fálega tekið þá.
52 Raddir borgarinnar
Írski rithöfundurinn Colum McCann hélt til Bandaríkjanna að skrifa
mikla skáldsögu sem gerast myndi þar í landi.
53 Ljóðaferð um Ítalíu
Jón Pálsson hélt til ársdvalar á Ítalíu að læra ítölsku og sneri aftur
með ljóðabók í farteskinu.
24
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Golli af Ísabellu Töru Antonsdóttur.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags-
moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirs-
dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
38
Augnablikið
F
ullorðnir geta lært ýmislegt af stelpunum í
sjötta flokki í fótbolta, sem kepptu á hnát-
umóti ÍR í byrjun vikunnar.
Stemningin er mikil á vellinum þegar
stúlkurnar mæta til leiks, en ekki síður á hliðarlín-
unni þar sem sungin eru fjölmörg afbrigði af bar-
áttusöngvum. En pabbinn lærði að vísu einungis
söngva síns liðs, svo pistillinn ber keim af því.
„Áfram Grótta, fílibomb, fílibomb, sóla einn, sóla
tvo, skora svo …“
Stelpurnar sem bíða eftir að komi að sér eru í
„sprengju“. Þær sitja á grasinu og hver fær þrjár
sekúndur til að grípa boltann og kasta til þeirrar
næstu og það má bara koma við hann einu sinni.
Annars springa þær.
Ein þeirra þarf þó fljótlega að hætta í leiknum,
því henni er skipt inn á fyrir aðra stelpu í liðinu,
sem meiddi sig og kemur grátandi út af. Þegar hún
hefur jafnað sig er henni skipt inn á fyrir aðra grát-
andi stelpu, sem meiddi sig líka. Það gengur á
ýmsu. En alla jafna eru stelpurnar harðar af sér –
bíta á jaxlinn.
„Er dómarinn í hinu liðinu?“ spyr stúlka í gulum
og bláum búningi í hálfleik.
Önnur stúlka, sem er í „hinu liðinu“, gengur
niðurlút til móður sinnar og kvartar líka: „Það er
svo leiðinlegur dómari!“ Þær eru strax búnar að
læra lögmál leiksins.
„Ef ég segi Grótta, þá segi ég …“ og allar taka
undir: „Grótta best, Grótta best!“
Leikmaður Gróttu tæklar mótherja sinn og pabb-
inn hrópar stoltur á hliðarlínunni: „Stórkostlegt!“
En lætur svo lítið fyrir sér fara þegar mótherjinn
liggur í grasinu og stendur ekki upp strax.
„Gróttustelpur koma hér, bláar eins og krækiber,
mörkin eru óteljandi, við erum alveg ósigrandi …“
„Skjóta bara!“ kallar þjálfarinn ábúðarfullur inn á
völlinn. „Ákveðnar bara!“
Þetta er keppni. Ein af mömmunum á hliðarlín-
unni rifjar upp fyrsta leik dótturinnar, en þá var
hún sex ára í Siglufirði og andstæðingarnir röðuðu
inn sex mörkum gegn engu. Þegar dóttirin kom út
af spurði hún móður sína spennt: „Unnum við?“
pebl@mbl.is
Það er nóg að gera hjá stelpunum bæði inni á vellinum og utan hans.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Unnum við?
Einbeitingin leynir sér ekki.
13 júní Á degi villtra blóma býður Grasagarður Reykjavíkur upp á leiðsögn
um Laugarnestanga. Gönguferðin er frá kl. 11-13 í dag, sunnudag. Hjört-
ur Þorbjörnsson safnvörður fjallar um gróður svæðisins og starfsemi
Flóruvina. Áhugasamir mæti við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar kl. 11.
Þeir sem eiga plöntuhandbækur og stækkunargler eru hvattir til að taka
þau með í gönguna. Eftir gönguna verður boðið upp á piparmintute. Upp-
lýsingar um skoðunarferðir um allt land í dag eru á heimasíðu Flóruvina:
http://www.floraislands.is/blomdag.htm.
… degi villtra blóma
Við mælum með …
13 júní Leiðsögn
um listaverkin í
Viðey verður í
dag, sunnudag.
Heiðar Kári Rann-
versson ræðir um Friðarsúlu
Yoko Ono og Áfanga eftir banda-
ríska listamanninn Richard
Serra. Heiðar Kári útskrifaðist
með BA-gráðu í listfræði frá HÍ
vorið 2009 og fjallaði lokaverk-
efni hans um
listaverkin í Viðey.
17 júní Lykkjur –
prjónalist er yf-
irskrift sýningar
sem hefst í Nor-
ræna húsinu 17. júní, kl.
13.30. Það er vel við hæfi að
Dorrit Moussaieff, sem hefur
beitt sér í þágu íslenskrar hönn-
unar úr ull, opni sýninguna. Þá
mun þekktur prjónahönnuður,
Evelyn Clark, halda erindi.
Uppstoppaðar manneskjur undir yfirskriftinni „Spegill tímans“ eru á sýn-
ingu Gunther von Hagen Koerperwelten eða heimi líkamans, sem opnuð
hefur verið í Istanbul. Á sýningunni eru yfir 200 líkamar, bæði manneskjur
og dýr, og á það við um heila líkama sem og einstök líffæri og gegnsæjar
sneiðmyndir af líkamanum.
Veröldin
Reuters
Spegill tímans