SunnudagsMogginn - 13.06.2010, Qupperneq 4
4 13. júní 2010
50%afsláttur
kr.
kg1749
Ungnauta piparsteik
Verð áður 3498 kr./kg
fyrir heimilið
Ó
fáir landsmenn
taka núna þátt í
getraunaleikjum
fyrir heimsmeist-
aramótið í knattspyrnu sem
hófst á föstudag í Suður-
Afríku. Á vinnustöðum, í
vinahópum og á netinu láta
menn reyna á spádómsgáfuna,
rýna í liðin og reyna að segja
fyrir um hvert þeirra muni
standa uppi sem sigurvegari
eftir síðasta spark mótsins
hinn 11. júlí í Jóhannesarborg.
Þá er oft til veglegra verðlauna
að vinna en yfirleitt er það þó
upphefðin að vera getspak-
astur þátttakenda sem mestu
máli skiptir.
Viðmælendur Morgunblaðs-
ins létu sér þó ekki nægja að
spá fyrir um væntanlega
heimsmeistara heldur freista
þeir þess að nefna markakóng-
inn, skemmtilegasta og leið-
inlegasta liðið auk besta leik-
manns mótsins. Sitt sýnist
hverjum en spekingarnir eru
þó á einu máli um að gul-
klæddir Brassar, auk Evr-
ópumeistara Spánverja muni
standa upp úr. Þá kemur á
óvart hversu margir spá Arg-
entínumönnum góðu gengi
þrátt fyrir hrakfarir hingað til
undir óútreiknanlegum þjálf-
ara sínum, sjálfum Diego
Maradona. Þeir hljóta að
treysta á að guðleg hönd hans
muni stýra leikmönnunum til
sigurs.
Talandi um leikmenn mun
lærisveinn og arftaki Marado-
nas, Leo Messi frá stórliði
Barcelona, bæta enn einni rós-
inni í hnappagat sitt á mótinu
ef marka má sparkspekingana.
Við minna og verra er búist af
Norður-Kóreumönnum sem þó
fáir hérlendis þekkja til eða
hafa séð spila. Vonir eru
bundnar við léttleikandi Spán-
verja að halda uppi fjörinu en
stjörnuleikmenn eins og David
Villa, Xavi Hernández og
Andrés Iniesta eru taldir lík-
legir til frekari afreka.
Boltaleggingar
Spekingar spá í fótboltaspilin
fyrir HM í Suður-Afríku
1. Spánn
2. England
3. Argentína
David Villa (Spáni) Argentína. Slóvakía. Xavi (Spáni)
1. Argentína
2. Þýskaland
3. Spánn
David Villa (Spáni)
Spánverjar út af leikstíl þeirra og
gæðaleikmönnum. Dugir samt því
miður ekki til sigurs.
Held að Otto Rehagel með
Grikki bursti þá deild.
N-Kóreumenn eru líklegir til
að halda sig í skotgröfunum
líka.
Sergio Agüero hjá Argentínu fær
að springa út. Mikil pressa frá
Maradona tengdapabba að
standa sig.
1. Argentína
2. Serbía
3. Spánn
Serbinn Milan
Jovanovic. Væri mjög
gott fyrir serbnesku
þjóðarsálina að
ganga vel. Þeir eiga
það skilið.
Fílabeinsströndin. Það er um
að gera að velja afrískt lið.
Sviss. Þeir eru og verða
alltaf fúlir blessaðir.
Gonzalo Higuaín hjá Argentínu.
Búinn að vera spólandi góður fyrir
Real Madrid í vetur.
1. Brasilía
2. Spánn
3. England
Robin van Persie
(Hollandi)
Hlýtur að vera Spánn með
Xavi og Iniesta.
Norður-Kórea mun reyna að
loka markinu eins og Kim
Jong-il lokar landinu.
Kaká (Brasilíu) getur sprungið út
eftir erfitt tímabil hjá Real
Madrid. Mun koma á óvart og
vera lykilmaður heimsmeistara
Brassa.
1. Argentína
2. Brasilía
3. Spánn
Leo Messi mun
springa út. Út frá
riðlinum og því sem
ég veit um þennan
gulldreng spái ég
honum þessum titli.
Hefur yfirleitt verið lið frá Afríku með
sinn sérstaka stíl. Held það verði
Fílabeinsströndin eða Kamerún eftir
því hvort þeirra kemst lengra.
N-Kórea mun líklega ekki
gera frábæra hluti. Ítalía
mun sennilega komast
langt en það verður bara á
góðum varnarleik, þeir eru
líka heppnir með riðil.
Ef ég hef rétt fyrir mér með
Argentínu þá verður þetta Messi.
Annars einhver listamaður á
miðjunni hjá Spáni eins og Xavi
eða Iniesta.
1. England
2. Brasilía
3. Spánn
Wayne Rooney
(Englandi)
Eflaust verður gaman að fylgjast
með Argentínu og Spánverjum
með alla sína flottu leikmenn. Svo
gætu lið eins og Holland, Fílabeins-
ströndin, Kamerún og Suður-Kórea
glatt augað.
Líklega ekkert lið sem slær
Ítalíu við í þeim efnum.
Helst að Frakkar gætu gert
tilkall til þess þetta árið.
Fari Brassar alla leið verður
það Kaká. Ég ætla hins vegar
að gerast svo djarfur að spá
Englendingum besta gengi í 44
ár. Steven Gerrard eða Wayne
Rooney taka þetta.
1. Brasilía
2. Holland
3. Portúgal
Robin van Persie
(Hollandi)
Suður-Afríka. Held það verði
skemmtileg stemmning í kringum
þá og þeir hafa engu að tapa.
Þýskaland með sitt ofur-
skipulag. Varnarsinnaðir
og pottþéttir.
Ef Cesc Fábregas verður í standi
þá verður hann virkilega góður.
1. Spánn
2. Brasilía
3. Argentína
David Villa (Spáni)
Holland. Sóknarlínan með van
Persie, Robben, van der Vaart og
Sneijder verður skemmtileg en léleg
vörn verður þeim að falli.
Serbía og Úrúgvæ. Serbar
spila varnarbolta og
Úrúgvæjar eru alltaf eins,
grófir, spila upp á marka-
laust jafntefli og vona að
Forlán poti inn einu marki.
Xavi Hernández verður fyrir
valinu. Hann mun leggja upp fyrir
David Villa og Fernando Torres
til skiptis.
1. Brasilía
2. Spánn
3. Argentína
Leo Messi (Argentínu)
Finnst alltaf mest gaman að horfa á
Brasilíu. Einkennir liðið hvað allir
leikmennirnir eru flinkir með
boltann.
Einhvern veginn hafa
Þjóðverjar alltaf farið í
taugarnar á mér. Þeir ná
samt alltaf árangri á svona
mótum.
Leo Messi. Segi að þetta
verði mótið hans.
Þrjú efstu
sætin?
Markahæsti
leikmaður? Skemmtilegasta liðið? Leiðinlegasta liðið?
Besti leikmaður
keppninnar?
Vikuspegill
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is