Ísfirðingur - 13.05.1964, Page 1
14.
BMÐ TRAMSOKNAQMANNA t i/ESTFJARÐAKJORDÆMI
árgangur. Isafjörður, 13. maí 1964. 7.
tölublað.
Hlitnr Vestfiroiiga í vegaféai
störlega skertar
Síðastliðinn föstudag hófst
í sameinuðu þingi síðari um-
ræða um vegaáætlunina fyrir
1964. Þá mælti Sigurvin
Einarsson alþingismaður fyrir
breytingartillögu við vegaá-
ætlunina, sem hann flytur á-
samt Hermanni Jónassyni og
Hannibal Valdimarssyni, um
hækkun á fjárhæð til nýbygg-
inga vega á Vestfjörðum um
3,8 milljónir króna.
Sigurvin sagði: „Á síðasta
ári var hlutur Vestfjarða í
nýbyggingafénu 19,5% af
Sigurvin Einarsson
heildarfjárhæðinni. Skv. til-
lögum fjárveitingarnefndar á
að lækka hlutfallið niður í
14% af heildarfjárhæðinni.
Þrátt fyrir hina gífurlegu
þörf Vestfjarða er lagt til að
hlutur Vestfjarða í nýbygg-
ingarfénu verði lækkaður um
26%. Þetta er gert á sama
tíma og kaupstaðir og kaup-
tún fá 30 milljóna nýtt fram-
lag til vega og gatnamála
og stórfé tekið að láni til
Reykjanesbrautar, sem út af
fyrir sig er hvort tveggja
nauðsynlegar og æskilegar á-
kvarðanir, sem allir hafa
verið sammála um að styðja.
En í þessu kemur fram herfi-
leg mismunun og óréttlæti
gagnvart þeim landshlutum,
sem verst eru settir. Við Her-
mann Jónasson höfum flutt
5 ár í röð frumvörp um lán-
töku til vegagerðar á Vest-
fjörðum en þessi frumvörp
hafa verið svæfð eða drepin
af stjómarliðinu. 1 vetur
fluttum við við afgreiðslu
fjárlaga tillögu um 10 milljón
króna lánsheimild til vega-
gerðar á Vestfjörðum og 10
milljón króna framlag til að
koma í veg fyrir eyðingu
byggðar og fólksflótta frá
Vestfjörðum. Þessar tillögur
voru drepnar af stjórnarlið-
inu, og þeir menn réðu úr-
slitum, sem nú eru að koma
hér upp eins og Sigurður
Bjarnason og kvarta yfir
því, hve hlutur Vestfjarða sé
lítill. Breytingartilliaga okkar
um 3,8 milljón króna hækkun
á framlögum til vega á Vest-
fjörðum er ekki ýkja stór
upphæð t.d. borið saman við
Reykjanesbraut, en því er
þessi upphæð valin, að með
henni til viðbótar myndu
Vestfirðir halda hlutfalli sínu
í nýbyggingarfénu miðað við
það, sem það var í fyrra.
Mun nú koma í ljós, hver
sé vilji þeirra manna, sem
eru að kvarta undan því að
hlutur Vestfjarða sé lítill og
þurfi að vaxa.“
Eins og fram kom í ræðu
Sigurvins hefur hann ásamt
Hermanni Jónassyni hvað
eftir annað á undanfömum
þingum flutt frumvörp um
lántökur til vegagerðar á
Vestfjörðum. En fyrir brýn-
um þörfum Vestfirðinga í
þessum efnum hafa ríkis-
stjórnarflokkamir jafnan
lokað augunum og ekkert á-
tak viljað gera til að rétta
hlut Vestfjarða í vegamál-
unum. Bendir þetta eindregið
til þess að ríkisstjóranar-
liðið hafi litinn áhuga fyrir
Vestfjörðum að öðru leyti,
því bætt vegakerfi og auknar
Herinann Jónasson
samgöngur er grundvallarat-
riði fyrir fjölþættu og þrótt-
miklu athafnalífi.
Sfðustu afrek
kingmeiri'
blntans
Sjúkrahúsfrumvarpið
svæft í nefnd. Frum-
varpið um menntaskóla
á Vestfjörðum svæft í
nefnd. Frumvarpið um
Vestfjarðaskip svæft í
ne:nd. Hlutur Vestfirð-
inga stórlækkaður í
vegafénu.
Barnaskólinn
Barnskólanum á Isafirði
verður slitið 20. þ.m. í IOGT-
húsinu kl. 4.
Handavinnusýning skólans
verður á annan dag Hvíta-
sunnu í skólanum kl. 2—10
síðdegis.
Deildaskipting
Landsspítalans
Á þinginu í vetur fluttu
þeir Hannibal Valdimarsson,
Ingvar Gislason og Lúðvík
Jósefsson mjög athyglisvert
frumvarp um deildaskiptingu
Landsspítala Islands.
í frumvarpinu fólst að
Landsspítalinn ræki sem deild
frá sér eitt sjúkrahús í
hverjum landsfjórðungi. Er
mál þetta hvorttveggja í senn
mauðsynlegt og aðkallandi.
Á fundi bæjarstjómar Isa-
fjarðar 6. þ.m. var einróma
samþykkt eftirfarandi tillaga
frá bæjarráði:
„Þar sem frumvarp til laga um Landsspítala Islands,
sem þeir Hannibal Valdimarsson, Lúðvík Jósefsson og
Ingvar Gísiason, flytja í neðri deild Alþingis, felur í sér,
að dómi bæjarstjórnar ísafjarðar, mikilvægt spor í þá átt
að tryggja landsbúum sem jafnast og fullkomnast öryggi
í heilbrigðismálum án tillits til búsetu og léttir jafnframt
af ýmsum bæjarfélögum verulegum fjárhagsbyrðum vegna
reksturshalla sjúkrahúsa, skorar bæjarstjórnin á Alþingi
að samþykkja frumvarpið á yfirstandandi þingi.“
»Vestanflug(i
Á sumardaginn fyrsta kom
hingað til bæjarins í fyrsta
skipti ný flugvél tveggja
hreyfla, af gerðinni Piper
Apache. Eigandi véiarinnar
Guðbjörn Charlesson, flug-
maður. Fjöldi manns tók á
móti vélinni á flugvellinum og
Halldór Ólafsson 2. varafor-
seti bæjarstjórnar, ávarpaði
Guðbjöm og bauð hann vel-
kominn til bæjarins með hina
nýju og glæsilegu flugvél.
Bæjarstjórn bauð Guðbimi
o.fl. til kafidrykkju að Mána-
kaffi og tóku þar ýmsir til
máls. Guðbjöm þakkaði hlýj-
ar móttökur og fyrirgreiðslu
bæjarstjómar.
Með því að ráðast í kaup
og rekstur þessarar flug-
vélar hefur Guðbjörn Char-
lesson sýnt merkilegt fram-
tak, mikinn dugnað og lofs-
verðan áhuga fyrir bættum
samgöngum við Vestfirði.
Mun Guðbjörn annast far-
þegaflug og sjúkraflug á
Vestfjörðum, og á ísafirði
mun flugvélin verða staðsett
eftir að upp hefur verið kom-
ið flugskýli.
Anars er það athyglisvert,
að áhugi fyrir úrbótum í
samgöngumálum virðist vera
ættgengur, ef svo mætti
segja, í ætt Guðbjöms. Afi
hans, Bjarni, stuðlaði að bætt-
um samgöngum að þeirrar
tíðar hætti með hestvögnum.
Synir hans, og má þá sér-
staklega nefna Þóri, tóku svo
bílana í þjónustu sína. Og
nú kemur Guðbjöm Char-
lesson með nýtizku flugvél,
og eru honum færðar heilla-
óskir með fyrirtæki sitt.
—□ —
Nýr bátur
ólafur Friðbertsson heitir
nýr fiskibátur, 193 lestir, sem
nýlega kom til Súgandafjarð-
ar. Eigandi bátsins er hf.
Von á Suðureyri. Báturinn
er smíðaður í Flekkefjord í
Noregi. Hann er með 495 ha.
Lister-vél og er búinn full-
komnustu siglingatækjum.
Skipstjóri er Filip Hösk-
uldsson.