Ísfirðingur


Ísfirðingur - 13.05.1964, Qupperneq 2

Ísfirðingur - 13.05.1964, Qupperneq 2
2 ÍSFIRÐINGUR Æm BIAD TKAMSÓKNA&4ANM / VtiTTJARtXIKJÖKtXMI Útgefandi. Samband Framsóknarfélaganna í Vestfjarðakjördæmi. Ritstjórar: Halldór Kristjánsson og Jón Á. Jóhannsson, áb. AfgreiSslumaöur: Guðmundur Sveinsson, Engjavegi 24, sími 332. Skutull minnist á stefnu Haraldur fiuðmuudsson I Skutli, sem út kom 1. maí, er látin í ljós furða yfir því, að á æskulýðssíðu Tímans var einhverntíma minnst á verkamannaflokk- inn norska svo sem þar væru skoðanabræður ungra Fram- sóknarmanna á íslandi. Þetta þykja Skutli svo mikil tíð- indi, að hi3nn mælist til þess að út verði gefið sérstakt hátíðablað af Isfirðingi. Jafnaðarstefna, þjóðnýting og sóíalismi eru allt saman orð með nokkuð rúma merk- ingu. Stjómmálaflokkur sá í Noregi, sem hér er um að ræða, kennir sig ekki við neitt slíkt, heldur aðeins verkafólkið, því að hann heitir Arbeider Parti. I því tilefni, að Alþýðu- flokksmenn á Islandi hafa löngum nefnt þennan norska flokk ALþýðuflokkinn norska mætti gera nokkurn saman- burð. Enginn flokkur í Nor- egi nýtur jafnmikils fylgis í sveitum og verkamanna- flokkurinn og hann er ein- lægur samvinnuflokkur. Þetta tvennt mætti út af fyrir sig nægja til hugleiðingar í tveimur Skutulsblöðum. Ann- aðhvort er hér munur á flokkum eða þjóðum. Fyrirsögn viðtalsins, sem Skutull prentar upp úr Tím- anum, er á þessia leið: Takmark jafnaðarmanna að þjóðin nái yfirráðum yfir efnahagslífinu. Þar gæti Skutull fengið efni í hugleiðingu um það, hvort stefna núverandi stjórn- ar miði fremur að því að safna eignum á fáar hendur eða dreifa þeim. Sömuleiðis hversu vasklega ríkisstjómin er á verði gegn því að ís- lenzka þjóðin ljái öðrum þjóðum vald eða yfirráð í efnahagslífi sínu. Ætli það væri annars ekki tilhlýðilegt að Skutull gæfi út hátíðablað til að ræða af- söðu Alþýðuflokksins til jafnaðarstefnunnar ? Haraldur Guðmundsson, skipstjóri lézt á sjúkrahúsi í Reykjavík 7. apríl, rúmlega 66 ára að aldri, f. 23. sept- ember 1897. Haraldur var einn af elztu og fremstu skipstjórum hér og þótt víðar væri leitað. Hafði hann verið skipstjóri í 35 ár alls, fyrst á Ásbirni Samvinnufélags Isfirðinga, og síðar á Ásúlfi eign Skutuls- félagsins, þar sem Hanaldur var aðleigandinn, en var nú hættur skipsstjórn. — Honum hlekktist aldrei á Haraldur Guðmundsson. á skipstjórnarferli sínum, né missti mann. — Má slíkt teljast óvenjulega farsæll skipstjóraferill. — Hann seldi Ásúlf síðastliðið haust og fagnaði því, að vera laus við erfiðan útgerðarekstur, og geta greitt áhvílandi skuldir útgerðarfélagsins, enda var hann mesti skilamaður í við- skiptum. — Mun hann hafa átt nokkum afgang í ver- tíðarlokin. Má því segja að honum hafi tekist að aka heilum vagni heim af sviði útgerðarrekstursins. Hiaraldur tók jafnan mikinn þátt í málefnum útgerðar og sjómennsku, — bæði í skip- stjórafélagi hér í bænum, og var þar oft í stjórn. Hann var og oft fulltrúi á þingum Farmanna- og fiskimanna- sambandsins. — Einnig var hann í mörg ár fulltrúi á fjórðungsþingum fiskideilda Vestfjarða, og var gjaldkeri þess sambands lengi. — Þá var hann Fiskifélagsfulltrúi tvö síðustu árin. og sat fiski- þing aoeins nokkra daga í vetur, áður en hann lagðist banaleguna. — Haraldur var einn af stofnendum Sam- vinnufélgs ísfirðinga og í stjórn félagsins í nokkur ár. í bæjarsjórn átti hann sæti í tvö kjörtímabil. Ýmsum fleiri félagsmálum sinnti hann. Ég kynntist Haraldi fyrst á fundum og í stjórn Sam- vinnufélags Isfirðinga. — Þar var raunar mikið átak gert, á þeirra tíma mælikvarða, í útgerðarmálum bæjarins, og nýstárlegt skipulag tekið upp, sem skoðanir voru skiptar um. Haraldur gerði sér fulla grein fyrir skipulagi félags- ins. Hann gerði sér meira far um en flestir aðrir, sem ég hefi haft fundasamstarf við, að kynna sér málefnin cg var óspar á að láta í ljós, ef honum fannst óheppi- lega að framkvæmdum unnið, en jafnan af hreinskilni og djörfung. —■ Ekki vorum við ávallt sammála um ýmis mál, og oft á andstæðri skoðun, en jafnan fór þó vel á með okkur. Hann var ekki jafn sléttmáll á fundum, sem ýms- ii aðrir, en menn hlutu að veita orðum hann athygli þótt eigi væru honum sam- mála. Haraldur var kvæntur Jónínu Einarsdóttur Gunn- arssonar héðan úr bænum: Hún lézt 1957. Einkadóttir þeirra, Sveinbjörg, er gift Svavari Tryggvasyni úr Svarfaðardal. Þau hjón eru búsett í Blaine á Vesturströnd Kanada. — Kom Sveinbjörg heim til iað vera við útför föður síns. Fósturböm þeirra eru tvö: Ólöf Hinreksdóttir gift og búsett á sömu slóðum og Sveinbjörg, og Leifur Jón- asson, sjómaður hér í bænum. Haraldur var jarðsettur hér í bænum, að viðstöddu fjöl- menni 15. f.m. Kr. J. MESSA í ísafjarðarkirkju á Hvíta- sunnudag kl. 2 e.h.; í Hnífs- dal kl. 4 e.h. Hugrún ÍS 7 Nýlega kom til Bolungar- víkur nýtt skip, Hugrún 1S-7, eign Einars Guðfinnssonar hf. Er þetta hið glæsilegast skip 206 lestir, og er smíðað í Marstrand í Svíþjóð. 1 skip- inu er 675 ha. Nohab-Polar vél og það er búið öllum ný- tízku tækjum. Skipstjóri verður Hávarður Olgeirsson. Sænskt olíusoðið masonit væntanlegt. Pantanir teknar. Kanpfélao tsfirðinoa sími 206. Karlmannaskór. Strigaskór. Gúmmískór. SKóvurzlnn Leíis Itf. fsafirði. Reiðhjól og varahlutir. a-------------------------------------------------n Sjátaríitveyiirinn Á flokksþingi Framsóknarflokksins í marz var í simbandi við sjávarútvegsmálin samþykkt eftirfarandi ályktun: Sjávarútveginn ber að efla m.a. með því: að gera skipulegt átak i hafnarframkvæmdum og sé gerð um það sérstök framkvæmdaáætlun til fjögurra ára í líkingu við vegaáætlunina. að auka vísindalegar rannsóknir á fiskistofnum, m.a. með útgerð rannsóknarskips, efla fiskleitarstarfsemi, gera tilraunir með veiðiaðferðir og tækni, og skipu- leggja notkun veiðisvæðanna. að vinna að því af einbeitni að tryggja fslendingum yfirráð alls landsgrunnsins. að auka stórlega fiskiðnaðinn með hliðsjón af þeim afla, sem sérfræðingar telja að gera megi ráð fyrir fle'it ár og taka upp nýtízku tækni og liagræðingar- aðferðir. að styðja heilbrigt einstaklingsframtali, en stemma stigu fyrir þeirri þróim, að atvinnutæki og fjármagn safnist ú fárra manna hendur. 1 því skyni ber m.a. að efla oamvinnurekstur í fiskiðnaði. 0--------------------------------------------------E Á flokksþingi Framsóknarflokksins í vetur var í sambandi við húsnæðismálin gerð eftirfarandi sam- þykkt: Endurskoða skal liúsnæðismálalöggjöfina með það fyrir augum: að tryggja hagkvæm lán, sem svarar tveim þriðju hlutum byggingarkostnaðar út á allar íbúðir af hóf- legri stærð. að efla stórlega þá starfsemi, sem miðar að því að lækka byggingarkostnað með aukinni tækni og hag- kvæmni. Komið verði á fót lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn og það fjármagn, sem safnast, notað til að stuðla að lausn liúsnæðismálanna.

x

Ísfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.