Ísfirðingur - 13.05.1964, Blaðsíða 4
Aðalfundur K.Í.
Aðalfundur Kaupfélags ís-
firðinga var haldinn í sam-
komusalnum í húsi félagsins
3. maí sl. Rétt til setu á
fundinum höfðu 49 fulltrúar
frá öllum deildum félagsins.
Fundarstjórar voru kjörnir
þeir Björgvin Sighvatsson og
Haliði Ólafsson, og ritarar
þeir Konráð Jakobsson og
Karvel Pálmason.
Formaður félagsstjórnar,
Marías Þ. Guðmundsson, setti
fundinn, kynnti dagskrá og
flutti stutta ræðu. Þá flutti
kaupfélagsstjórinn, mjög
greinargóða skýrslu um
rekstur og afkomu féagsins.
Taldi hann m.a. að hinar
miklu kauphækkanir sem
urðu á síðasta ári svo og
óbreytt verðlagsákvæði hefði
hvorttveggja skapað mun lak-
ari afkomu fyrir verzlunar-
reksturinn.
Að öðru leyti var mjólkur-
stöðvarmálið aðalumræðu-
efni fundarins, en það mál
er ennþá á athugunarstigi'.
Úr stjórninni áttu að
ganga Birgir Finnsson og
Marías Þ. Guðmundsson, en
þeir voru báðir endurkjörnir.
Einnig gekk Páll Sólmundar-
son úr stjórninni og var Jens
Hjörleifsson kjörinn í hans
stað. Aðalendurskoðandi var
kjörinn Sverrir Guðmunds-
son.
— ?—
Alþýðusamband Vestfjarða
Fulltrúafundur Alþýðusam-
bands Vestfjarða var haldinn
á Isafirði 10. þ.m. Á fundin-
um voru mættir 20 fulltrúar,
auk stjórnar A.S.V.
Til fundarins var fyrst og
fremst boðað til að ræða um
kaupgjalds- og kjaramálin,
og um afstöðu og aðgerðir
vestfirzku verkalýðsfélaganna
í þeim málum, en stéttarfé-
lögin á Vestfjörðum hafa um
langt árabil gengið sameigin-
lega til samninga, og hefur
því heildarsamningur milli
A.S.V. og atvinnurekenda á
Vestfjörðum gilt fyrir allt
sambandssvæðið.
Forseti A.S.V., Björgvin
Sighvatsson, hafði framsögu
á fundinum um kaupgjalds-
málin. Hann gerði grein fyrir
þróun þeirra mála seinni árin
og beim viðhorfum, sem nú
hafa skapazt í þeim efnum.
Eftirfarandi tillögur voru
samþykktar samhljóða:
„Fulltrúafundur ASV hald-
inn á Isafirði 10 maí 1964
fagnar þeim viðræðum, sem
nú eiga sér stað á milli full-
trúa verkalýðssamtakanna,
atvinnurekanda og ríkis-
stjórnarinnar um kaupgjalds-
og kjaramálin.
Fundurinn væntir þess, að
þessar viðræður leiði til frið-
samlegrar lausnar á því
margþætta vandamáli, sem
hér er við að stríða, og tryggi
verkalýðnum aukið efnahags-
legt öryggi, aukna vinnu-
vernd og batnandi lífskjör."
n.
„Fulltrúafundur ASV beinir
þeim tilmælum til sambands-
félaganna, að þau segi upp
samningum sínum við at-
vinnurekendur um kaup og
kjör landverkafólks, sam-
kvæmt uppsagnarákvæðum
þeirra, það er fyrir 21. þ.m.."
HI.
„Fulltrúafundur ASV hald-
inn á Isafirði 10. maí 1964
samþykkir, að ef sambands-
félögin hafa ekki gerzt með-
limir í Verkamannasamband-
inu áður en viðræður hefjast
við atvinnurekendur um kaup
og kjör, að nauðsynlegt sé
að félögin og ASV hafi sem
nánast samstarf við Verka-
mannasambandið varðandi
undirbúning samninga, svo og
samstöðu í samningsviðræð-
um við atvinnurekendur, og
þá á þeim grundvelli, að um
landssamning verði að ræða
varðandi öll helztu kaup-
gjalds- og kjaraákvæði.
Fundurinn samþykkti því
ennfremur að beina þeim til-
mælum til félaganna, að þau
hagi aðgerðum sínum í mál-
inu samkvæmt því, að um
umrætt samstarf verði að
ræða."
IV.
„Fulltrúafundur ASV hald-
inn á ísafirði 10. maí 1964
vill vekja athygli sambands-
félaganna á nauðsyn þess að
fjárhagur verkalýðsfélaganna
verði efldur sem mest, og
skorar því á félögin innan
ASV að hækka ársgjöld með-
lima sinna verulega frá því,
sem nú er, að minnsta kosti
upp í 500,00 krónur."
V.
„Fulltrúafundur ASV skor-
ar á sambandsfélögin að
greiða þátttökugjald minnst
ÍWtól
m^!R
ímpw
BLAÐ TRAMSOKNAKMANNA I l/ESTFJARDAKJOROÆMI
Aflabrögð i Vestfirðingafjðrðungi
i aprilmánuði 1964
Gæftir voru einmuna góðar
allan aprílmánuð og góður
afli. Barst nú nálega helmingi
meiri afli á land á Vestfjörð-
um, en á sama tíma í fyrra,
enda hamlaði tíðarfarið þá
mjög sjósókn. Línubátarnir
fengu nú dágóðan steinbíts-
afla fram eftir mánuðinum,
og eru aflahæstu línubátarnir
nú með yfir 200 lestir í mán-
uðinum, en í fyrra náðu að-
eins 8 línubátar 100 lesta afla
í aprílmánuði.
Netabátarnir sóttu sinn
afla að mestu leyti suður í
Breiðafjörð og þeir bátar,
sem áttu net sín hér í Djúp-
inu, drógu upp fyrir mánaða-
mótin og héldu suður eftir.
68 bátar stunduðu róðra
frá Vestfjörðum í mánuðin-
um. Voru 32 með net, 25 með
línu, og 9 með færi og 2
með nót við suðurland. Fer
færabátunum nú ört fjölg-
andi, ef tíð verður sæmileg.
Heildarafli vestfirzku bát-
anna í apríl varð 9.770 lestir,
en var á sama tíma í fyrra
5.155 lestir. Er heildaraflinn
frá áramótum þá orðinn
28.562 lestir, en var á sama
tíma í fyrra 25.376 lestir.
Langsamlega aflahæstu bát-
arnir í fjórðungnum í apríl
voru Dofri frá Patreksfirði
með 493 lestir og Framnes
frá Þingeyri með 475 lestir,
en mestan afla frá áramótum
hefur Loftur Baldvinsson 1406
lestir. Mestan afla í apríl-
mánuði í fyrra hafði Helgi
Helgason, 333 lestir. Hann
hafði einnig mestan heildar-
afla frá áramótum, 1241 lest.
Aflinn í einstökum ver-
stöðvum:
PATREKSF JÖRÐUR:
lest. róðr.
Dofri n. 493 17
Loftur Baldvinsson n. 388
Sæborg n. 311 14
Tálknfirðingur 1. 221 26
Valur 1. 98 19
tveggja félagsmanna hvers
félags á væntanlegt fræðslu-
og kynningarnámskeið, sem
ASV efnir til dagana 23. og
24. þ.m. í skíaðskálanum
Skíðheimar á Seljalandsdal."
T ALKN AF JÖRÐUR:
lest. róðr.
Sæúlfur n. 229 14
Guðm. á Sveinseyri n. 183 13
Sæfari n. 171 14
BILDUDALUR: lest. róðr.
Andri n. 246 13
Pétur Thorsteinss. 163 12
MNGEYRI:
Framnes n.
Þorgrímur n.
Fjölnir n.
lest. róðr.
475 13
231 13
206 13
FLATEYRI: lest. róðr.
Hinrik Guðmunds n. 224 11
Sæfell n. 212 12
Bragi 1. 135 20
Einar Þveræingur 1. 109 20
Mummi 1. 101 16
SUÐUREYRI: lest. róðr.
Freyja 1. 209 21
Ásgeir Torfason 1. 168 19
Hávarður 1. 165 20
Friðbert Guðmunds. n. 159 9
Draupnir 1. 123 20
Stefnir 1. 108 19
Gyllir 1. 51 16
BOLUNGARVÍK: lest. róðr.
Einar Hálfdáns n. 222 22
Guðm. Péturs n. 216 12
Heiðrún 1. 206 22
Hafrún n. 186 2
Þorlákur Ingim.s. n. 156 13
Sólrún n. 122 2
Guðrún n. 115 22
Húni 1. 82 20
Hrímnir n. 70 21
Freyja 1. 58 14
Haflína f. 19 14
Þorvaldur f. 14 14
Guðjón f. 14 11
Sædís f. 11 7
HNIFSDALUR:
Páll Pálsson n.
Rán n.
Mímir n.
Einar 1.
fSAFJÖRÐUR:
Guðbjörg n.
Guðbj. Kristján n.
Víkingur II. n.
Hrönn 1.
Gunnhildur n.
Guðný 1.
Guðrún Jónsdóttir
Straumnes 1.
Gunnvör 1.
Gylfi n.
Sæbjörn 1.
Framhald á
lest. róðr.
226 12
, 210 13
208 11
88 20
lest. róðr.
298 13
229 13
221 13
188 20
179 11
176 19
n. 173 11
135 19
134 20
116 17
62 12
3. síðu
Sumaráætlun Flugíélagsins
Sumaráætlun innanlands-
flugs Flugfélags Islands gekk
í gildi 1. maí. Alls verða
flognar 48 ferðir á viku frá
Reykjavík til annara stað á
landinu.
Til Isafjarðar verða ferðir
alla daga vikunnar.
Sérstök athygli skal vakin
á hringferðum kringum land,
sem Flugfélagið byrjaði á í
fyrrasumar og urðu strax
mjög vinsælar. Þessir staðir
eru í hingferðinni: Reykja-
vík, Isafjörður, Akureyri,
Egilsstaðir, Höfn í Homa-
firði og Fagurhólsmýri í ör-
æfum.
Þessar ferðir hefjast 1.
júní. Hægt er að hef ja hring-
ferðina á hverjum framan-
greinds staðar og stanza á
hverjum viðkomustað, en
ferðinni verður að ljúka inn-
an mánaðar frá því lagt er
af stað.
Flugfélag Islands hefir nú,
til viðbótar litprentaðri á-
ætlun á ensku, gefið út lit-
prentaða sumaráætlun á ís-
lenzku.
Til innanlandsflugs í sumar
hefir Flugfélag íslands þrjár
flugvélar af gerðinni DC-3 og
ennfremur Skymaster-flugvél,
sem tekin var á leigu í Bret-
landi. Þessi flugvél, sem hefir
sæti fyrir 64 farþega, mun
fljúga á leiðunum Reykjavík,
Akureyri, Egilsstaðir. Hún
hóf flug á innanlandsflug-
leiðum 4. maí
Þess skal hér getið að
Flugfélag Islands hefur nú
nýlega stofnað nokkur ný
söluumboð, þar á meðal í
Bolungarvík og annast Elías
H. Guðmundsson, stöðvar-
stjóri, söluumboðið þar.