Ísfirðingur - 04.12.1964, Blaðsíða 2
2
ÍSFIRÐINGUR
^^sfir^imDur
BtAÐIMnSÓKNAVMANNA / VlSTrjARMICJÓKHtMI
Vtgefcmdi.
Samband Framsóknarfélaganna í Veslfjarðakjördæmi.
Rilstjórar:
Halldór Kristjánsson og Jón Á. Jóhannsson, áb.
Afgrei'ðsluma&ur:
Guðmundur Sveinsson, Engjavegi 24, sími 332.
Viðreisnarhrónur
STJÓRNARBLÖÐIN hafa nú
enn um sinn harðnað í grobbi
sínu yfir háum tölum í fjár-
lagafrumvarpi og víðar. Stöð-
ugt er látið dynja á mönnum
að „Viðreisnarstjórnin" hafi
stórhækkað framlög til ýmsra
menningarmála og fram-
kvæmda, bótagreiðslur al-
mannatrygginga o.s.frv.
Þetta má heita samfellt her-
óp stjórnarliðsins. Það er
aldrei þagnað til fulls um
þessa dýrð, en hert á herópinu
þegar nýtt fjárlagafrumvarp
birtist, en þó vintanlega alveg
sérstaklega í áhlaupum kosn-
ingabaráttunnar, þegar að
henni kemur.
Sú var tíðin, lað launakjör
á landi hér voru almennt
bundin við verðlag og vísitölu.
Þá hækkaði kaup sjálfkrafa á
eftir verðlaginu. Engir nefndu
það launahækkun.
Einu sinni var lika siður, að
umreikna tekjur manna áður
en skattur var lagður á. Þá
hækkaði persónufrádráttur og
skattskyldar tekjur lækkuðu
þar með sjálfkrafa í hlutfalli
við aukna dýrtíð. En enginn
hugðist nefna það skattalækk-
un.
En nýir siðir koma með nýj-
um herrum.
Nú er ekki talað um það,
hvað krónurnar hafa minnkað.
Fjölgun þeirra er auglýst með
miklu yfirlæti og kölluð vöxt-
ur.
Sú var tíðin að 10 krónur
þóttu sæmilegt dagkaup. Þá
var persónufrádráttur í
skattalögum 900 krónur fyrir
einstakling, 1800 krónur fyrir
hjón og 600 krónur fyrir
hvert barn. Þá voru 300 krón-
ur gott mánaðarkaup.
Þessar tölur eru aðeins
nefndar hér, til að minna á
hve hrottaleg ógætni það er,
að líta ekki neitt á gildi taln-
anna en aðeins á hæð þeirra.
Stjórnarblöðin virðast ætl-
ast til þess, að menn geri sér
enganveginn grein fyrir gildi
talna. Þjóðin á ekki að átta
sig á því, að fjárhæðirnar nú
eru taldar í „Viðreisnarkrón-
um“.
Og Viðreisnarkrónurnar
þurfa að vera talsvert fleiri
en gömlu krónurnar til að gera
sama gagn ag hafa sama gildi.
Það lætur nærri, að til sé
eitt algilt svar við öllum á-
róðri háu talnanna. Dýrðin og
ljóminn hjaðnar býsna mikið
þegar það svar er athugað:
Þetta eru bara Viðreiasnar-
krónur.
H. Kr.
Sundhallarmótið
Sundhallarmótið fór fram í
Sundhöll Isafjarðar 29. f.m.
Úrslit í einstökum greinum
urðu sem hér segir:
100 m í'jáis aðferð karla:
Þar var mest spennandi
keppni dagsins, milli þeirra
Tryggva Tryggvasonar, 14
ára, og Fylkis Ágústssonar,
en þar bar sá litli sigur af
hólmi.
1. Tryggvi Tryggvason 1:04,3
ísl.met sveina.
2. Fylkir Ágústsson 1:05,9
3. Björn Egilsson 1:06,4
50 m frjáls aðferð telpna:
1. Sigrún Halldórsdóttir 33,5
2. Jóna Magnúsdóttir 33,5
3. Margrét Jónsdóttir 34,2
50 m frjáls aðferð sveina:
1. Tryggvi Tryggvason 31,1
2. Einar Einarsson 33,6
3. Sveinb. Sveinbjömss. 35,0
100 m bringusund kvenna:
1. Kolbrún Leifsdóttir 1:28,5
Vestfjarðamet.
2. Elín Jóhannsdóttir 1:32,0
3. Sigríður Níelsdóttir 1:34,8
50 m flugsund karla:
1. Fylkir Ágústsson 32,4
Vestfjarðamet.
2. Einar Einarsson 38,5
Ofantaldir keppendur eru
Illllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllll||illl||||||||||||||||||||||||||||||||||||||!l|||||||||||||il|||||||||||||| illllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllH
I Nýiar bæknr frá LEIFTRI
| HVIKUL ER KONUÁST
| eftir Guðrúnu frá Lundi.
| Þessi saga Guðrúnar hefur
| hvergi birzt áður.
í HEILLAR MIG SPÁNN
| eftir Fredrik Wislöff. Spánn
| er heillandi land og saga
| Spánar er stórbrotin. Bókin
1 er falleg og ákaflega
| skemmtileg.
| FULLNUMINN VESTAN-
I HAFS
| eftir Cyril Scott. Þýðandi
| Steinunn Briem. Fullnuminn
| Vestanhafs er framhald
| hinnar frægu bókar tón-
| skáldsins og rithöfundarins
1 Cyril Scott — Fullnuminn —
I þar sem hann segir frá kynn-
E
1 um sínum af dularfullum
1 spekingi.
| LENDING MEÐ LIFEÐ AÐ
| VEÐI
| skáldsaga eftir J. Castle og
| Arthur Haily. Þýðandi Her-
| steinn Pálsson. Viðburðarík
1 og spennandi bók.
| BÓNDINN í ÞVERÁRDAL
= skáldsaga eftir Unu Þ. Áma-
| dóttur. Una er skagfirzk og
1 er þetta fyrsta bók hennar.
| Þetta er bók sem vekja mun
| athygli.
1 I VÖKULOK
| ljóðabók eftir Margréti Jóns-
| dóttur. Margrét er landskunn
| bæði af sögum sínum og ljóð-
| um.
| SYSTURNAR
Í skáldsaga úr Reykjavíkur-
| lífinu eftir Ingibjörgu Jóns-
1 dóttur. — Ástarsaga.
| MADDAMAN MEÐ KÝR-
| HAUSINN
| eftir Helga Hálfdanarson, er
| bók sem mikla athygli mun
| vekja. Hér setur höfundur
1 fram athyglisverða tilgátu
Í um upphaflega gerð Völu-
| spár.
SMÁFÓLK
tíu sögur eftir Guðrúnu Jac-
obsen. Þetta er 5. bók höf-
undar. Tvær síðustu bækurn-
ar hefur hún sjálf mynd-
skreytt.
STJÖRNUSPÁIN
eftir R. H. Nylor. Þetta mun
mörgum þykja athyglisverð
bók.
LIFIÐ I KRINGUM OKKUR
eftir Ingimar Óskarsson.
Ingimar er landskunnur af
útvarpserindum sínum og
greinum í blöðum og tímarit-
um. 1 þessari bók lýsir hann
á sinn skemmtilega hátt
fjöldamörgum sérkennilegum
dýrum, bæði á sjó og landi.
Fjöldi mynda prýðir bókina.
TODDA FRÁ BLÁGARÐI
eftir Margréti Jónsdóttur, en
Margrét er þjóðkunn bæði af
sögum og Ijóðabókum. Sagan
segir frá ýmsum ævintýrum
sem Todda lendir í.
BÖRNIN I LÖNGUGÖTU
eftir Kristján Jóhannsson.
Sagan gerist í Reykjavík.
Höfundurinn er ungur kenn-
ari.
RÓSALIN
eftir Johanne Spyri. Þýðandi
Freysteinn Gunnarsson.
Rósalín er átta ára. Þetta er
falleg saga.
ÞRJÁR I SUMARLEYFI —
TRILLA, TRÍNA OG ÉG
skólanum er lokið og þrjár
telpur í sólskinsskapi halda
í sumarleyfi. Fylgist með.
PÉTUR OG TÓBI
Bókin er í senn litabók og
lestrarbók. Þetta er bókin
sem barnið vantar.
ZORRO-BÆKURNAR
Zorro og dularfulla sverðið
og Zorro berst á báðar hend-
ur. Spennandi lýsingar.
HANNA TEKUR ÁKVÖRÐ-
UN
Hanna er komin á þann aldur
að ástin er farin að ólga í
blóði hennar og alvara lífs-
ins að taka í taumana.
MATTA-MAJA VERÐUR
FRÆG
Matta-Maj'a er líka að kom-
ast á leiðarenda. Hún er orð-
in kunn dansmær, en braut
frægðarinnar er stundum
erfiðleikum háð.
JÓI OG FLUGBJÖGUNAR-
SVEITIN
eftir Örn Klóa og er þetta
8. bók hans.
SAGAN AF TUMA LITLA
eftir Mark Twain. Ekki þarf
að kynna höfundinn. Hann er
heimsfrægur. Sagan hefur
áður komið út á íslenzku, en
verið ófáanleg í mörg ár.
KIM-BÆKURNAR
Kim og gimsteinahvarfið
(10. Kim-bókin) og Kim og
brennuvargarnir (11. Kim-
bókin). Bækumar um Kim
og félaga hans eru orðnar
svo kunnar, að ekki þarf
annað en minna á þegar ný
Kim-bók kemur.
BOB MORAN-BÆKURNAR
Kjarnorkuleyndarmálið og
Smyglaraskipið, í þýðingu
Magnúsar Jochumssonar.
Bob Moran bækurnar eru
hetjusögur og sérstæðar
unglingabækur.
NANCY OG LEYNDAR-
DÓMAR GAMLA HÚSSINS
Nancy er dóttir lögfræðings
og hefur gaman af leynilög-
reglusögum.
BLÓÐREFUR
eftir Karl May, sem er þýzk-
ur rithöfundur og talinn með
þeim snjöllustu, sem skrifað
hafa Indíánasögur.
Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllll lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
allir í sunddeld Vestra.
Ilcraðsslíóli...
3x50 m þrísund kvenna:
1. A-sveit Vestra 1:53,5
2. B-sveit Vestra 1:53,5
3x50 m þrísund karla:
1. Sveit Vestra 1:45,2
2. Sveit Harðar 1:47,3
Framhald af 1. síðu
háttvirtu Alþingi, að það fái
afgreiðslu á þessu þingi, svo
að skólabygging geti hafizt
strax, er nauðsynlegum undir-
búningsframkvæmdum væri
lokið.“
Jólablað
ÍSFIRÐINGS
kemur
út
eftir
nokkra
daga.
dlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllMlllllllllllllMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIMIMIIIIMIIIIMIIIIIIllllMIMIIIIIIIIIIIIIIIIMIilllllllllllMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIilllllllUIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIMIMIIIIIIIIIIMIMIMII: