SunnudagsMogginn - 17.10.2010, Side 23

SunnudagsMogginn - 17.10.2010, Side 23
17. október 2010 23 Hrossakjöt er herra- mannsmatur Þ á er komið að árlegu hrossablóti okkar Skagfirðinga hjá Svönu og Tótu á Hótel Varmahlíð í samstarfi við Sögusetur ís- lenska hestsins. Það er við hæfi að aðrir landsmenn taki þátt í þessari skemmtilegu veislu sem löngu er orðið uppselt í með því að elda fol- aldakjöt á grillinu sem fer nú væntanlega von bráðar að fá hvíld eftir gott grillsumar. Einhverjum gæti þótt það skrítið að Skagfirðingar sem oft eru taldir bestu vinir hestsins geri þetta, en það sýnir vel hvað Skagfirðingar eru opnir og jákvæðir, þeir flykkjast á hverju ári til að borða margrétta kvöld- verð sem búinn er til úr afurðum íslenska hestsins. Sumir hér á höfuðborgarsvæðinu eru með glósur á hestamenn um að þeir séu að leika sér með mat- inn en ég held að þetta fari bara vel saman og rétt sé að njóta matarins til fullnustu eins og garð- yrkjubændur sem nostra við matjurtirnar sum- arlangt og uppskera síðan að hausti. Hrossakjöt er og hefur lengi verið herramanns- matur hér á Íslandi sem og annars staðar, til dæmis borga Norður-Ítalir meira fyrir kílóið af góðu hrossakjöti en nautakjöti. Einnig má nefna að í As- íu þykir vel feitt hrossakjöt sérlega góður matur. Ég hef oft baunað því á Húsvíkinga að þeir ættu að taka Skagfirðinga sér til fyrirmyndar og halda al- mennilega hvalaveislu þar sem hvalaskoðun, hvalaréttir, hvalasögur, hvalarímur, hvalasöngvar og annað tengt ræður ríkjum, en það er önnur saga. Hér á eftir kemur skemmtileg grilluppskrift fyrir lengra komna: Beikonvafðar heilgrillaðar hrossalundir með perlulauk, sveppum, grilluðum kartöflum og rauðvínssósu fyrir 4 til 6 manns 1,5 kg hrossalundir ½ kg beikon (fitulítið) 6 stk. bökunarkartöflur (stórar) 200 g sveppir (litlir) 250 g perlulaukur (ferskur) 2 msk. rósmarín (ferskt) 3 msk. timjan ( ferskt) 1 fl rauðvín 100 g smjör 1 dl ólífuolía ½ dl rauðvínsedik ½ l nautasoð Hreinsið sinina af lundunum og vefjið beik- onsneiðunum þétt utan um kjötið. Gott er að gera þetta kvöldið áður og pakka lundunum þá vel inn í plastfilmu. Hitið upp að suðu helminginn af rauð- víninu ásamt helmingnum af edikinu, ögn af rósmarín og salti. Setjið perlulaukinn (óflysjaðan) út í rauðvínsblönduna og geymið í kæli yfir nótt. Matarþankar Friðrik V. Morgunblaðið/Skapti Tveimur dögum fyrir kosningar gafst blaðamanni færi á að sækja fram- boðsfund stærsta flokksins í Republika Srpska, SNSD, sem hefur ver- ið að færa sig upp á skaftið með harðri aðskilnaðarstefnu. Um 20.000 manns sóttu útifundinn og hlýddu á frambjóðendur hafna Sarajevó sem höfuðborg og boða aðskilnað frá Bosníu og Hersegóvínu. Síðasti ræðumaður kvöldsins var Milorad Dodik, þá forsætisráð- herra Republika Srbska og nú forseti, eftir kosningarnar. Dodik hefur ítrekað ýjað að því að halda eigi þjóðaratkvæðagreiðslu meðal Bosníu- Serba um sjálfstæði frá Bosníu og í febrúar á þessu ári samþykkti serbneska þingið lög sem greiða leiðina að þjóðaratkvæðagreiðslu. Í þessu felst talsverð ögrun gagnvart sambandsríkinu en hingað til hafa yfirlýsingar Dodiks þó verið orðin tóm. Ef af slíkri þjóðaratkvæða- greiðslu verður gæti það kveikt ófriðarbál að nýju. Dodik var mátulega fagnað á framboðsfundinum og ljóst að boðskapur hans um aðskilnað á góðan hljómgrunn meðal Bosníu-Serba. Stjórnmálaáhugi almennings er þó ekki meiri en svo að flestir fundargestir voru í raun mættir til að berja augum poppsöngkonuna Svetlönu Ražnatovic eða Cecu, sem tróð upp í lokin. Ceca er vinsælasti tónlistarmaður Bosníu-Serba og ekkja serbneska stríðsherrans Željkos Ražnatovic, öðru nafni Arkan. Herflokkur hans, Tígrarnir, vann mörg voðaverk í Bosníu og Króatíu í nafni „þjóðern- ishreinsana“ og var Arkan eftirlýstur af stríðsglæpadómstól Samein- uðu þjóðanna (ICTY) fyrir glæpi gegn mannkyni. Hann var myrtur árið 2000 áður en kom til réttarhalda. Stríðsglæpir hans eru öllum kunnir en það breytir engu um vinsældir ekkju hans. Á framboðsfundinum nú í byrjun október uppskar Ceca mun meiri fagnaðarlæti en stjórn- málamennirnir, sem fengu þó að baða sig í frægðarljóma hennar. Hvort sem það var henni að þakka eða ekki vann SNSD kosninga- sigur í Republika Srpska. Í kjölfarið gaf Dodik þá yfirlýsingu til fjölmiðla að hann hefði engan hug á því að vinna að vegsemd Bosníu- Hersegóvínu á kostnað serbneska hlutans. Niðurstöður kosninganna urðu Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilefni til að sækja landið heim. Átti hún fundi með nýkjörnum ráðamönnum í vik- unni og hvatti þá til að láta af þjóðernishyggju til að hraða framþróun landsins. Aðskilnaðarsinnar unnu sigur landflótta. Á síðustu árum hefur mikill árangur náðst í uppbyggingu samfélags- ins en afleiðingar stríðsins eru samt enn alltumlykjandi. Sveitir landsins eru með ólíkindum fallegar en hálfhrunin, yf- irgefin hús og virk jarðsprengjusvæði setja mark sitt á fegurðina. Alþjóðleg við- vera er enn mikil í landinu og Evrópu- sambandið og Nató hafa virkt eftirlit með framgangi mála. Þegar allt kemur til alls vilja íbúar Bosníu og Hersegóvínu þó fá að ákveða framtíð sína sjálfir án inngrips. Minningu stríðsins halda þeir hátt á lofti í þeirri von að það endurtaki sig aldrei. stríðslok. Það er dapurlegt að ganga á milli legsteina mörghundruð ungra manna sem allir dóu á tímabilinu frá 1992-1995. REUTERS Selena Celovic hefur fengið nóg af stríði en segir suma telja að það brjótist aftur út.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.