Ísfirðingur - 01.05.1971, Page 3
ÍSFIRÐINGUR
5
*----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------*
1. MAÍ 1971
Samvinnufélögin
eru eign fnlksins
Hvarvetna um landið vinnur samvinnu-
hreyfingin að því að skapa æ fjölbreytt-
ari og berti lífsskilyrði; þannig ávaxtar
fólkið eign sína á hverjum stað.
Sterk samvinnuhreyfing er trygging þess,
að fjármagn hverrar byggðar nýtist
heima fyrir, þar sem þess er aflað hörð-
um höndum, og velmegun hins vinnandi
fólks er jafnframt trygging þess, að
samvinnuhreyfingin eflist.
Samvinnuhreyfingin og verkalýðshreyf-
ingin eru tvær greinar á sama meiði.
Samvinnufélögin árna hinu vinnandi
fólki til lands og sjávar aiira heilla á
hinnm iöngu helgaða baráttu- og
hátíðisdegi alþjóðlegrar verkaljðs-
hreyfingar.