Ísfirðingur - 06.11.1971, Side 4
Hlj ómleikar
BLAÐ TRAMSOKNATWANNA / l/ESTFJARÐA/'JOPDÆM/
Samvinnntryoaingar 25 ára
Það er orðið fátítt hin síð-
ari ár að tónlistarmenn heim-
sæki ísafjörð til að syngja
eða leika á hljóðfæri fyrir al-
menning. Það eru því góð tíð-
indi að hingað koma bráðum
þeir Kristinn Hallsson, söngv-
ari, og Rögnvaldur Sigurjóns-
son, píanóleikari. Hefur Tón-
listarfélag ísafjarðar fengið
þá til að halda sameigin-
lega hljómleika í Alþýðuhús-
inu föstudaginn 19. nóvember
n.k.' Mun Rögnvaldur leika
einleik á píanó og leika auk
þess með söng Kristins. Efn-
isskráin verður bráðlega birt
Á fundi bæjarstjórnar ísa-
fjarðar 21. október voru eft-
irtaldir bæjarfulltrúar kosnir
í bæjarráð kaupstaðarins:
Högni Þórðarson, Kristján
J. Jónsson og Jón Baldvin
Hannibalsson. Varamenn:
Guðmundur Ingólfsson, Garð-
Menntaskólinn á ísafirði
var settur 2. október s.l. af
Jóni Baldvin Hannibalssyni
skólameistara, sem við það
tækifæri flutti ræðu og skýrði
frá starfsemi skólans og
framtíðarverkefnum.
í skólanum eru nú 75 nem-
endur, þar af 40 í 1. bekk
og 35 í 2. bekk. Frá ísafirði
eru nú í skólanum 33 nem-
endur og af Vestf jörðum utan
Isafjarðar 27 nemendur. Ann-
arsstaðar frá eru 15 nemend-
ur.
Fastráðnir kennarar við
skólann eru nú tveir auk
Barnaskólinn í Hnífsdal
var settur 5. október s.l. af
skólastjóranum Bernharði
Guðmundssyni, sem við það
tækifæri flutti ræðu og skýrði
frá starfsemi skólans. Fjöl-
menni var við skólasetning-
una. í vetur stunda 58 nem-
endur nám í skólanum.
Nú er aðeins um að ræða
barnakennslu í skólanum, því
1. og 2. bekkur unglinga-
deilda sækja nú skóla á ísa-
firði eftir sameiningu sveit-
arfélaganna.
almenningi og verður hún
fjölbreytt Vonast er eftir
mikilli aðsókn og eru öll sæti
í húsinu tölusett.
Tónlistarfélagið á kost á
að fá hingað ágætt söngfólk,
píanó-, fiðlu- og cellóleikara,
og jafnvel flokk strengjaleik-
ara og söngfólks. En til þess
að það sé mögulegt verður al-
menningur að sýna áhuga
sinn og fylla húsið þegar um
slíkar skemmtanir er að
ræða. Þá væri með réttu hægt
að kalla ísafjörð menningar-
og tónlistarbæ.
ar Einarsson og Sverrir
Hestnes.
Forseti bæjarstjórnar ísa-
fjarðar var kjörinn Högni
Þórðarson, fyrri varaforseti
Kristján J. Jónsson og annar
varaforseti Garðar Einarsson.
—★—
skólameistara, þeir Finnur
Torfi Hjörleifsson og Axel
Carlquist, en hann var ráðinn
að skólanum í haust. Auk
þeirra starfa 7 stundakenn-
arar við skólann í bóklegum
greinum.
Ólafía Sveinsdóttir og Hans
Haraldsson sem kenndu við
skólann s.l. vetur hættu
kennslu í haust.
Eins og áður er Mennta-
skólinn til húsa í gamla
barnaskólahúsinu á Isafirði,
en auk þess þurfti skólinn nú
að fá kennslustofu annars-
staðar.
Sú breyting hefur orðið á
kennaraliði að Pétur Garð-
arsson lét nú af kennslu, en
við tók Valgerður Eiríksdótt-
ir, sem nýlega hefur lokið
kennaraprófi. Rannveig Páls-
dóttir kennir leikfimi við
skólann og frú Guðrún Jóns-
dóttir kennir handavinnu,
eins og áður. Fyrrverandi
skólastjóri Kristján Jónsson
kennir söng við skólann. Þess
má geta að þetta er 53.
starfsár hans við skólann í
Hnífsdal.
Skömmu eftir að Vilhjálm-
ur Þór tók við forstjórastarfi
Sambands íslenzkra sam-
vinnufélaga árið 1946, var
hugmyndin um stofnun sam-
vinnutryggingafélags á ís-
landi fyrst rædd alvarlega,
en hann hafði þegar árið
1936 vakið máls á þessu í
stjórn SÍS. Síðar á árinu 1946
var svo undirbúningur haf-
inn.
Félagið hlaut nafnið Sam-
vinnutryggingar og var fyrsta
stjórn þess kosin á stjórnar-
fundi SÍS 24. ágúst 1946 og
skipuðu hana þessir menn:
Vilhjálmur Þór, formaður,
Jakob Frímannsson, ísleifur
Högnason, Kjartan Ólafsson
frá Hafnarfirði og Karvel
Ögmundsson. Stjórnin kom
saman á sinn fyrsta fund 27.
Barnaskólinn á Isafirði var
settur 6. september s.l. og
hófst þá kennsla í 1., 2. og
3. bekk skólans, en kennsla
eldri barna byrjaði 13. sept-
ember. Alls eru í skólanum
í vetur 426 nemendur.
Kennsla í forskóladeild, þ.
e. fyrir 6 ára börn, hófst
fyrstu daga í október, en í
forskóladeildinni eru 55 börn.
Hér er ekki um skólaskyldu
að ræða, heldur hafa foreldr-
ar frjálst val um hvort börn
þeirra sækja þessa kennslu
eða ekki. Þessum hópi er tví-
skipt og tveir kennarar vinna
samtímis með hvora bekkj-
ardeild. Forskólinn er til
húsa í einni kennslustofu á
efri hæð gamla barnaskóla-
Sextugur
Gústaf Lárusson, fyrrver-
andi skólastjóri Gagnfræða-
skólans á ísafirði, varð sex-
tugur 17. október s.l.
Fimmtugur
Hafsteinn 0. Hannesson,
bankaútibússtjóri á ísafirði,
átti fimmtugsafmæli 31. okt.
síðastliðinn.
ágúst, og var þar ákveðið,
að starfsemin hæfist 1. sept-
ember og Erlendur Einarsson
ráðinn framkvæmdastjóri fé-
lagsins, en hann hafði kynnt
sér vátryggingastarísemi í
Bretlandi.
í árslok 1964 flutti félagið
alla starfsemi sína í eigið
húsnæði í Ármúla 3, og var
þá um leið gerð all víðtæk
skipulagsbreyting á rekstrin-
um, sem fyrst og fremst var
fólgin í því, að deildarskipt-
ing eftir tryggingagreinum
var lögð niður, en fyrirtækið
skipulagt eftir starfsþáttum.
Samvinnutryggingar hafa
frá upphafi beitt sér fyrir
ýmsum nýjungum í trygg-
ingastarfsemi til hagsbóta
fyrir tryggingatakana, og fé-
lagið hefur tvímælalaust
gegnt mikilvægu forustu-
hússins, sem sérstaklega var
innréttuð og útbúin til þess-
arar kennslu. Deildin er mjög
vel búin kennslutækjum. Einn
af kennurum skólans, Mar-
grét Óskarsdóttir, var á hálfs
mánaðar námskeiði í kennslu
6 ára barna, sem haldið var
í haust á vegum Reykjavík-
urborgar.
Nokkrar breytingar hafa
orðið á kennaraliði skólans.
Marinó Þ. Guðmundsson, yf-
irkennari, lét af störfum, og
er í ársorlofi án launa. Þessir
kennarar létu einnig af störf-
um: Bergþóra Bergmunds-
dóttir, Helga Magnúsdóttir og
Kristín Oddsdóttir. Nýir kenn-
arar eru: Björn Karlsson,
Guðlaug Jónsdóttir, Gústaf
Óskarsson, Hrefna Tuliníus
og Ólöf Sigurðardóttir.
Tveir stundakennarar starfa
við skólann í vetur: Guðrún
Eyþórsdóttir, sem kennir
söng, og Hildur Eiríksdóttir,
sem kennir 7 ára bekk.
Leikvöllur skólans hefur
verið malbikaður og afmark-
aður. Verið er að múrhúða
samkomusal skólans að innan,
og er að því stefnt að hann
verði fullfrágenginn að vori.
Skólastjóri Barnaskóla ísa-
fjarðar er Björgvin Sighvats-
son.
hlutverki í alhliða trygginga-
starfsemi í landinu. Það hefur
alltaf gert sér far um að veita
sem bezta þjónustu um allt
land, enda hefur félagið átt
miklum og vaxandi vinsæld-
um að fagna.
Samvinnutryggingar hafa
ötullega unnið að fræðslu um
tryggingamál og haldið uppi
öflugri tjónavarnastarfsemi,
m.a. með útgáfu ritsins Sam-
vinnu-Trygging og með stofn-
un klúbbanna „Öruggur Akst-
ur“, en þessir klúbbar hafa
unnið mikið starf að umferð-
arslysavörnum. Félagið hefur
lengi veitt viðurkenningu fyr-
ir tjónalausan akstur.
Samvinnutryggingar eru
gagnkvæmt tryggingafélag og
sem slíkt tók það upp þá ný-
breytni í íslenzku trygginga-
starfi árið 1949 að endur-
greiða tryggingatökunum
tekjuafgang af viðskiptum
sínum við félagið eftir því,
hvernig hver tryggingagrein
kom út. Slíkur tekjuafgangur
hefur verið endurgreiddur ár-
lega síðan og nema endur-
greiðslurnar alls 80,2 millj.
króna.
Erlendur Einarsson lét af
störfum sem framkvæmda-
stjóri félagsins, er hann var
ráðinn forstjóri SÍS í árs-
byrjun 1955 og tók þá við
formennsku stjórnar félags-
ins af Vilhjálmi Þór. Jón
Ólafsson hrl. tók þá við starfi
framkvæmdastjóra. Síðsum-
ars 1958 lét Jón af störfum
vegna heilsubrests og var þá
núverandi framkvæmdastjóri
Ásgeir Magnússon, lögfræð-
ingur, ráðinn í starfið.
í stjórn Samvinnutrygginga
eru nú: Erlendur Einarssón,
forstjóri, formaður, Ingólfur
Ólafsson, kaupfélagsstjóri,
Jakob Frímannsson, fyrrv.
kaupfélagsstjóri, Karvel Ög-
mundsson, útgerðarmaður og
Ragnar Guðleifsson, kennari.
Á ísafirði reka Samvinnu-
tryggingar umboðsskrifstofu
að Silfurtorgi 1, og veitir
Þorgeir Hjörleifsson skrif-
stofunni forstöðu. Á Patreks-
firði annast Samvinnubank-
inn umboðsstörfin. Á öðrum
stöðum á Vestfjörðum eru
það kaupfélögin sem umboðs-
störfin annast, nema í Bol-
ungarvík, þar er Elías H.
Guðmundsson umboðsmaður.
Bæjarráð ísafjarðar
Henntaskólinn
Barnaskólinn í Hnífsdal
Barnasknlinn á Ísaíirði