Morgunblaðið - 04.01.2010, Síða 34

Morgunblaðið - 04.01.2010, Síða 34
34 | MORGUNBLAÐIÐ Linsu- og belgbaunir hljóma kannski ekki sérlega freistandi í eyrum sumra en þær eru not- aðar við ýmiss konar matargerð. Það er til dæmis hægt að búa til mjög hollar og góðar súpur úr linsubaunum og einnig er hægt að hafa þær í salöt. Þegar mat- reitt er úr linsubaunum eru þó nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga. Lagðar í bleyti og hægeldaðar Það er allur gangur á því hvernig best er að elda baunir. Linsubaun- um hentar best að vera eldaðar í ró- legheitunum því annars verða þær maukkenndar að innan en harðar að utan. Kjúklingabaunir segja sér- hæfðir kokkar hins vegar að eigi að vera þannig að þær brotni auðveld- lega í sundur á tungubroddinum og þær megi því hvorki vera of mjúkar né harðar. Út í vatnið með linsu- baununum má bæta við hvítlauks- geirum, niðurskorinni gulrót eða lauk til að auka bragðið. Þegar baunirnar eru fulleldaðar er síðan að krydda þær eins og enginn sé morgundagurinn, bæði með fersk- um og þurrkuðum kryddjurtum. Baunir hafa það óorð á sér að valda vindgangi en því meira sem þú borðar af baunum því betur venst maginn þeim. Fljótlegt salat Hægeldið linsubaunir í um 40 mínútur, þegar þær eru næstum til- búnar skal steikja papriku á pönnu þar til svartar rákir hafa myndast á henni. Einnig skal sneiða nokkrar sneiðar af geitaosti og setja undir grillið í ofninum. Látið renna af baununum og dreifið yfir skvettu af ólífuolíu og balsamikediki, hrærið síðan paprikunni og sólþurrkuðum tómötum saman við og látið loks geitaostinn efst. Hollmeti Linsubaunasúpa er holl og yljar manni vel að innan á köldum vetrarkvöldum. Góðar í máltíðir Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@mbl.is Á morgunverðarhlaðborðum hótela má sjá gott dæmi um það úrval rétta sem má nýta sér í samsetningu á morgunmat. Á veitingastaðnum Vox á Hilton Reykjavík Nordica getur hver og einn valið sér góða morgunverðarsamsetningu. Hollt og óhollt aðskilið „Við fylgjum ákveðnum stöðlum hér hjá Hilton sem nýtast þeim sem hollustu leiðina velja einkar vel. Við höfum kosið hjá okkur að setja ekki saman sérstakt hollustuhorn heldur frekar að setja saman alla ávexti, mjólkurvörur og þar fram eftir götunum. Þannig getur fólk valið sjálft hvað það vill. Úr- valið er mjög fjölbreytt, til dæmis bæði ferskir og niðursoðnir ávextir, ger-, sykur- og olíulaust brauð svo og íslenskt rúg- og flatbrauð. Síðan eru í boði bæði blæjuegg, hrærð egg og spæ- legg. Þá eru ýmsir drykkir á borðum; grænmetis-, epla-, app- elsínu- og trönuberjasafi, te og kaffi,“ segir Björk Ósk- arsdóttir, smurbrauðsjómfrú á Vox. Fær sér hafragraut Björk segir nokkurn mun vera á milli þjóða þegar kemur að morgunmatnum, Bandaríkjamennirnir fái sér gjarnan beikon, pönnukökur og allt því sem fylgir á meðan Skandinav- arnir velja sér hollara á diskinn og virðast hugsa meira út í það sem þeir fá sér, hollara brauð og minna af fituríkum vörum. „Þetta er kjarnmesta máltíð dagsins en sjálf fæ ég mér alltaf hafragraut sem við erum líka með á borðinu hjá okkur og hann er mjög vinsæll,“ segir Björk. Girnilegt í morgunmat Hér koma tvær góðar uppskriftir af morgunverðarhlað- borði Vox. Önnur er frískandi og holl en hin kannski til að hafa dálítið spari um helgar eftir líkamsrækt og hollustu vik- unnar. Blæjuegg 1 l vatn ½ dl edik Aðferð: Vatnið er soðið og edikið sett út í, vatninu er haldið rétt undir suðupunkti. Betra er að brjóta eggið í glas og setja varlega út í edikvatnið. Eggjahvítan látin hlaupa en rauðunni haldið fljótandi. Soðið í þrjár til fjórar mínútur. Hollandaisesósa 300 g smjör 3 stk. eggjarauður 1 stk. sítróna, safinn salt pipar Aðferð: Bræðið smjörið í potti. Stífþeytið eggjarauður yfir vatnsbaði og blandið bræddu smjörinu varlega saman við. Smakkið til með sítrónusafa, salti og pipar. Eggið er borið fram á ristuðu brauði með steiktri skinku og hollandaisesósu. Bláberjahristingur 1 dós bláberjaskyr ¾ dl mjólk nokkrir dropar af hlynsírópi eða agave handfylli frosin bláber fersk bláber Aðferð: Skyr, mjólk, síróp og frosin bláber sett í blandara. Sett í fallegt glas og fersku bláberin út í. Morgunblaðið/Heiddi Hollur Morgunverðurinn er mikilvægasta máltíð dagsins. Girnilegt Blæjuegg á ristuðu brauði með Hollandaise sósu.Berjabland Hristingur úr ávöxtum er hollur og góður kostur. Staðgóður morgunverður Morgunverðurinn er ein mikilvægasta máltíð dagsins og slæmt að fara út í dag- inn án þess að vera saddur og sæll. Það er um að gera að hafa morgunverðinn fjöl- breyttan og fá sér ekki alltaf það sama. Sandra Kaffo er leiðbeinandi í hráfæði frá London sem hefur einstaka ástríðu fyrir næringaríku og hollu mataræði. Sandra hefur mikla þekkingu á að rækta eigin fæðu. Hún hefur stundað nám í College of Natural Nutrition in London and the Tree of Life Living Food centre in Arizona. Hennar megin áhugasvið er tengingin á milli mataræðis og heilsu til að efla daglega orku og vellíðan. “The concept of living foods is that of living in harmony with nature and making conscious eating a way of life. Living foods provides super-fuel to the body because it is pure and natural, energy & nutrient rich; and also water and oxygen rich”. FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR KL. 18-20 fyrirlestur (enska) Ný sjónarhorn á fæðu og heilsu. Hvað er hráfæði og hvaða fæðutegundir eru það? Hráfæði – aðferðarfræði og tækni. Fyrirlesturinn gefur okkur aukinn skilning á því hvers vegna er mikilvægt að tileinka okkur heilsusamlegt mataræði til lengri tíma til að fjárfesta í góðri heilsu. LAUGARDAGUR 23. JANÚAR KL. 10-15 Námskeið og sýnikennsla (enska) Námskeiðið leggur áherslu á undirstöðu í praktískum aðferðum og hvernig eigi velja ýmsar fæðutegundir sem tengjast hráfæði og hvernig við búum til einfalda, fljótlega og nærandi rétti. Verð: Fyrirlestur 3.000 kr. Námskeið og fyrirlestur 9.900 kr. Skráning: svalarun@msn.com eða í síma: 863 7001 (Svala Rún) Sjá nánari uppl. www.madurlifandi.is HRÁFÆÐI FYRIRLESTUR OG NÁMSKEIÐ 22. og 23. JANÚAR 2010 Staðsetning: Maður lifandi, Borgartúni 24 • Vorönn hefst miðvikudaginn 6. janúar • Morguntímar og síðdegistímar • Jóga fyrir börn með AD/HD Skráning og nánari upplýsingar: www.kristinsjofn.is og GSM 899-7809. Jóga með Kristínu Sjöfn í Rósinni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.