Morgunblaðið - 06.01.2010, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 6. J A N Ú A R 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
3. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«MENNING
ERLENDIR MIÐLAR
VELJA PLÖTUR ÁRSINS
«BOB DYLAN OG STING Á JÓLUM
Hispursleysi og
metnaður
6
Forseti synjar öðru sinni
Ákvörðun forseta að hafna Ice-
save-lögunum vekur heimsathygli
Stjórnarandstaðan telur tæki-
færi til að ná samstöðu um málið
Drög að nýju frumvarpi um
þjóðaratkvæðagreiðslu lögð fram
„VIÐ vissum ekki hvað forsetinn vildi
gera. Við áttum auðvitað samtöl við
hann og fórum yfir stöðuna og lýstum
yfir áhyggjum okkar af því að hann
myndi láta þetta mál fara í þjóðarat-
kvæðagreiðslu; sendum honum gögn
þar að lútandi, síðast í gærkvöldi, og
hann ætlaði að ræða við mig áður en
hann kynnti ákvörðun sína, en af ein-
hverjum ástæðum var það ekki fyrr
en þjóðin fékk að vita þetta.“
Þannig lýsir Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra samskiptum
sínum og Ólafs Ragnars Grímssonar,
forseta Íslands, en Ólafur Ragnar
neitaði í gær að skrifa undir Icesave-
lögin og vísaði þeim í þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Í yfirlýsingu forsetans vísaði hann
til fyrri yfirlýsingar um að lausn Ice-
save-deilunnar þyrfti að „taka mið af
sanngjörnum rétti þjóðarinnar, hags-
munum Íslendinga á komandi árum
og alþjóðlegri samábyrgð“. Forset-
inn sagði einnig að þjóðin þyrfti að ná
sátt við aðrar þjóðir og alþjóðasam-
tök og alla sem áhrif hefðu á efnahag
landsins og fjárhagsgetu.
Í yfirlýsingu sem ríkisstjórnin
sendi frá sér eftir að forsetinn hafði
tilkynnt ákvörðun sína var lögð
áhersla á að mikill árangur hefði
náðst við endurreisn efnahagslífsins.
„Með ákvörðun forseta Íslands um að
staðfesta ekki breytingar Alþingis á
lögum nr. 96/2009, svokölluðum Ice-
save-lögum er þeim árangri sem
náðst hefur teflt í tvísýnu.“
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch
Ratings lækkaði í gær lánshæfismat
íslenska ríkisins niður í ruslflokk.
Forsetinn segir að Íslendingar þurfi að ná sátt við aðrar þjóðir Ríkisstjórnin segir árangri sem
náðst hafi í efnahagsmálum stefnt í tvísýnu Fitch lækkar lánshæfismat Íslands í ruslflokk
Vissi ekki af ákvörðun forseta
Morgunblaðið/RAX
Hafnar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tilkynnti ákvörðun sína á
Bessastöðum í gær. Icesave-lögin fara í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
STEFNT er að því að halda þjóðaratkvæða-
greiðslu um Icesave-lögin í lok febrúar, líklega
20. febrúar. Alþingi kemur saman til fundar í
lok vikunnar til að fjalla um frumvarp forsætis-
ráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um
Icesave-lögin. Hlé verður síðan gert á fundum
Alþingis þegar frumvarpið er orðið að lögum.
Forystumenn ríkisstjórnarinnar kynntu drög
að frumvarpi um þjóðaratkvæðagreiðslu um
Icesave-lögin á fundum með leiðtogum stjórn-
arandstöðunnar í gærkvöldi. Á fundunum kom
fram að stjórnin ætlar að mæla eindregið með
því við þjóðina að Icesave-lögin verði samþykkt
í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Búið er að mæla fyrir frumvarpi um þjóðar-
atkvæðagreiðslur. Það frumvarp verður hins
vegar lagt til hliðar að sinni, því að ríkisstjórnin
áformar að leggja fram sérstakt frumvarp sem
fjallar eingöngu um þjóðaratkvæðisgreiðslu um
Icesave. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, for-
seti Alþingis, segist vonast eftir að góð sam-
staða verði um frumvarpið.
Undirbúa
atkvæða-
greiðslu
Morgunblaðið/Kristinn
Forystumenn ríkisstjórnarinnar ræða við aðila vinnumarkaðarins
Forystumenn ríkisstjórnarinnar áttu seint í gær fund með aðilum vinnumarkaðarins þar sem farið var yfir stöðuna sem upp er komin. Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra ræddi í gær við alla sendiherra sem staddir eru hér á landi. Hann ræddi einnig við fulltrúa Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins. Össur sagði í gær í samtali við Morgunblaðið að hann ætti ekki von á að ákvörðun forseta Íslands hefði áhrif á umsókn Íslands um aðild
að Evrópusambandinu. Talsmaður breska fjármálaráðuneytisins sagði í gær að þarlend stjórnvöld muni óska eftir að ESB komi að málinu.
Alþingi kemur saman
til funda í þessari viku
Vinnumarkaðurinn | 2
Telur synjunina | 11
Þingflokkarnir | 12-13
Yfirlýsingar | 14
Kosning innan | 16
Ákvörðun forseta
Mark Flanagan, fulltrúi Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins, sendi frá sér
yfirlýsingu í gær þar sem sagði
að samkomulag um Icesave væri
ekki skilyrði fyrir efnahagsáætl-
uninni, svo fremi sem áætlunin
væri að fullu fjármögnuð.
Efnahagsáætlun AGS
ekki háð Icesave