Morgunblaðið - 06.01.2010, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2010
ÞRETTÁNDAHÁTÍÐ Vesturbæjar
verður haldin í dag, miðvikudag.
Að hátíðinni standa foreldrafélög
grunnskólanna í Vesturbæ ásamt
þjónustumiðstöð Vesturbæjar og
hverfisráði Vesturbæjar. Hátíðin
hefst kl. 17:15 á KR-vellinum.
Barnakór Neskirkju mun syngja og
Melabandið tekur lagið. Þá munu
Gunni og Felix standa fyrir
skemmtiatriðum. Kl. 18:00 verður
svo lagt á stað í skrúðgöngu niður
að Ægisíðu þar sem kveikt verður í
brennu og hátíðarflugeldasýning
KR hefst kl. 18:30.
Þrettándahátíð
í Vesturbænum
Morgunblaðið/Kristinn
Í DAG, miðvikudag, kl. 19 stendur
Íþróttafélagið Þór á Akureyri fyrir
þrettándagleði við Réttarhvamm.
Það er ætíð mikið um dýrðir á
þrettándagleði Þórs sem á sér
langa forsögu. Dagskráin hefst á
því að kveikt verður í bálkesti og
stendur dagskráin í um klukku-
stund. Álfakóngur og drottning,
jólasveinar, tröll, púkar og allskyns
kynjaverur heilsa upp á gesti og
kveðja jólin. Auk þess mun söngv-
arinn Heimir Bjarni Ingimarsson
mæta með gítarinn og Einar „ein-
staki“ töframaður sýna listir sýnar.
Líkt og í fyrra er Akureyringum
og nærsveitarmönnum boðið frítt á
þennan viðburð. Fólk er hvatt til
þess að fjölmenna, eiga notalega
stund og kveðja árið með viðeig-
andi hætti. Er þetta allra síðasta
tækifæri til þess að hitta jólasvein-
ana áður en þeir halda aftur til
fjalla.
Kynjaverur heilsa
upp á Akureyringa
Í DAG, miðvikudag, verða jólin
kvödd með álfadansi og söng á
glæsilegri þrettándahátíð að Ás-
völlum í Hafnarfirði. Dagskráin
hefst kl. 18:30 og lýkur með veg-
legri flugeldasýningu kl. 19:30. Álf-
ar, púkar og jólasveinar verða á
svæðinu og taka þátt í söng og
gleði. Skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna.
Þrettándagleði
í Hafnarfirði
Í MEIRA en 25 ár hefur flugelda-
sýning KR verið árviss og eftir-
sóttur viðburður í Vesturbænum og
nú í lok 110 ára afmælisárs KR vilja
KR-flugeldar enn einu sinni bjóða
KR-ingum, vesturbæingum og öðr-
um höfuðborgarbúum upp á glæsi-
lega flugeldasýningu.
Flugeldasýningin tengist jafn-
framt þrettándahátíð grunnskól-
anna í Vesturbænum, sem hefst kl.
17:15 á KR-velli. Í framhaldi af því
verður farið í blysför að þrettánda-
brennunni sem er á hefðbundnum
stað við gatnamót Ægisíðu og Fax-
askjóls. Kveikt verður á brennunni
kl. 18:10 og hefst flugeldasýningin
kl. 18:30.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Flugeldasýning
í boði KR-inga
STUTT
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Útikerti eru oft staðsett
þannig að hætta er á
að yngsta kynslóðin
rekist í þau og að
yfirhafnir fullorðinna,
sérstaklega kápur og
frakkar fullorðinna
sláist í loga þeirra
Munið að
slökkva á
kertunum
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Str. 38-56
Útsalan
er hafin
30-70%
afsláttur
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Útsala
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ sendi
frá sér yfirlýsingu til erlendra fjöl-
miðla skömmu eftir að lesin var
upp íslensk útgáfa fyrir fjölmiðla
fólk á fundi formanna stjórn-
arflokkanna í stjórnarráðinu í gær.
Í þeirri sem send var út á ensku
segir að þrátt fyrir ákvörðun for-
seta Íslands stefni íslenska rík-
isstjórnin að því, að framfylgja
þeim tvíhliða lánasamningum sem
gerðir hafa verið, og þar með ríkis-
ábyrgðinni sem Icesave-lögin geri
ráð fyrir.
„Ríkisstjórnin lítur á lánasamn-
ingana við Bretland og Holland
sem órjúfanlegan þátt efnahags-
áætlunar Íslands þar sem þeir
bindi enda á óvissu um endur-
greiðslu á innlánstryggingu, sem
kveðið er á um í íslenskum lögum.
Það felur í sér mikilvægt skref í átt
að tryggja eðlilega fjármögnun
landsins á erlendum mörkuðum,“
segir m.a. í tilkynningunni.
Munu framfylgja
samningunum
Yfirlýsing send erlendum fjölmiðlum
Morgunblaðið/Kristinn
Fundur Forsætisráðherra eftir
þingflokksfund Samfylkingarinnar.