Morgunblaðið - 06.01.2010, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2010
Lánshæfismatsfyrirtækið FitchRatings brást ekki viðskipta-
vini sínum í gær og lækkaði láns-
hæfismat Íslands strax að lokinni
synjun forsetans á Icesave-
lögunum.
Eins þjónaði Standard & Poor’ssama kúnna þegar það á gaml-
ársdag bætti lánshæfismat íslenska
ríkisins. Sú
tímasetning
kom daginn
eftir sam-
þykkt Alþing-
is á Icesave-
lögunum.
Í umræðunni hér á landi er stund-um látið eins og lánshæfismats-
fyrirtækin séu óskeikular stofn-
anir sem enginn megi efast um.
Þó er þekkt að þessi fyrirtækieru oft seint á ferð með breyt-
ingar á mati sínu. Eitt þekktasta
dæmið er af Enron, þar sem ein-
ungis örfáir dagar liðu frá því En-
ron var lækkað niður fyrir fjár-
festingarflokk og þar til það var
lýst gjaldþrota.
Þessi fyrirtæki eru einnig velþekkt fyrir að gefa vafasöm-
um verðbréfavafningum hæstu
lánshæfiseinkunn og eiga þau mis-
tök sinn þátt í þeim erfiðleikum
sem fjármálaheimurinn glímir nú
við.
Gömlu íslensku bankarnir erueinnig gott dæmi. Miklir erf-
iðleikar þeirra komu ekki fram í
einkunn Fitch eða annarra fyrr en
eftir að bankarnir féllu og þeim
höfðu verið skipaðar skilanefndir.
Sama Fitch hefur nú fundið út aðmjög skuldsett Ísland sé betri
skuldari en lítið skuldsett Ísland.
Lánshæfi landsins sé betra taki
það á sig skuldir sem það stendur
tæpast undir en ef það hafnar
slíkri skuldsetningu.
Vafasamt mat
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík -5 skýjað Lúxemborg -5 léttskýjað Algarve 16 léttskýjað
Bolungarvík 2 alskýjað Brussel -1 heiðskírt Madríd 10 skýjað
Akureyri -5 alskýjað Dublin -1 léttskýjað Barcelona 11 skýjað
Egilsstaðir -11 léttskýjað Glasgow 1 léttskýjað Mallorca 14 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. -8 léttskýjað London 2 alskýjað Róm 12 skúrir
Nuuk -3 léttskýjað París -1 heiðskírt Aþena 15 skýjað
Þórshöfn 0 skúrir Amsterdam 1 léttskýjað Winnipeg -15 snjókoma
Ósló -16 heiðskírt Hamborg -2 snjókoma Montreal -8 snjókoma
Kaupmannahöfn 0 skýjað Berlín -5 heiðskírt New York -4 heiðskírt
Stokkhólmur -16 léttskýjað Vín -3 þoka Chicago -8 snjókoma
Helsinki -15 léttskýjað Moskva -13 heiðskírt Orlando 3 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
6. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 1.11 3,2 7.31 1,4 13.38 3,1 19.59 1,2 11:13 15:55
ÍSAFJÖRÐUR 3.08 1,6 9.31 0,8 15.31 1,6 22.06 0,6 11:52 15:26
SIGLUFJÖRÐUR 5.46 1,0 11.59 0,3 18.18 1,0 11:36 15:08
DJÚPIVOGUR 4.30 0,6 10.30 1,4 16.46 0,5 23.20 1,6 10:50 15:17
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Vestan og síðan norðvestan 3-8
og víða él fram eftir degi. Úr-
komulítið í kvöld. Frost víða 8 til
15 stig en frostlaust vestan-
lands.
VÍKINGUR Heiðar Ólafsson píanó-
leikari hlaut Íslensku bjartsýnis-
verðlaunin 2009, en Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti íslands, afhenti
verðlaunin við hátíðlega athöfn í
Iðnó í gær. Víkingur fékk áletraðan
verðlaunagrip úr áli og verðlaunafé
að upphæð 1 milljón króna.
Dómnefnd verðlaunanna skipa
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti Íslands, sem er formaður
nefndarinnar, Rannveig Rist, Sveinn
Einarsson og Örnólfur Thorsson.
Víkingur Heiðar Ólafsson lauk
mastersprófi frá Juilliard-listahá-
skólanum í New York vorið 2008.
Hann hefur hlotið Íslensku tónlist-
arverðlaunin tvisvar sinnum: Árið
2004 í flokknum „bjartasta vonin“ og
árið 2006 í flokknum „flytjandi árs-
ins“.
Morgunblaðið/Heiddi
Heiður Víkingur tekur við verðlaununum úr hendi forsetans Ólafs Ragnars.
Víkingur Heiðar hlaut
bjartsýnisverðlaunin
Í HNOTSKURN
»Bjartsýnisverðlaunin vorufyrst afhent árið 1981.
»Þau voru þá kennd viðupphafsmann sinn, danska
athafnamanninn Peter Bröste.
»Alcan á Íslandi hf. hefurverið bakhjarl þeirra frá
árinu 2000.
ALLS bárust Vinnumálastofnun tilkynningar um
uppsagnir 1.789 manns í hópuppsögnum á árinu
2009. Mestur fjöldinn var í mannvirkjagerð (42%),
í fjármálastarfsemi (18%), iðnaði (12%) og flutn-
ingastarfsemi (9%).
Þær hópuppsagnir sem tilkynntar voru í fyrra
hafa flestar komið til framkvæmda nú þegar.
Flestir þeirra sem hópuppsagnirnar náðu til
misstu vinnuna í ágúst, eða 370 manns og 250
misstu vinnuna í september. Um 84% hópupp-
sagna á árinu voru á höfuðborgarsvæðinu.
Vinnumálastofnun bárust 5 hópuppsagnir í des-
embermánuði þar sem sagt var upp 167 manns.
90% uppsagnanna voru á höfuðborgarsvæðinu.
Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda í
febrúar næstkomandi. Um er að ræða fyrirtæki í
fiskvinnslu, iðnaði, verslun, flutningastarfsemi og
upplýsinga- og útgáfustarfsemi.
Ástæður uppsagnanna eru verkefnaskortur,
hráefnisskortur, greiðslustöðvun og endurskipu-
lagning vegna minnkandi verkefna og rekstrarerf-
iðleikar. Nokkrir hafa fengið ráðningu hjá öðrum
fyrirtækjum sem tóku yfir verkefni og stefnt er að
endurráðningum í stöku tilvikum. sisi@mbl.is
Fimm hópuppsagnir í desember
Alls misstu 1.789 manns vinnuna í hópuppsögnum í fyrra
Morgunblaðið/Þorkell
Á fimmtudag
Hæg vestlæg átt og lítils háttar
slydda eða snjókoma vest-
anlands en bjartviðri á aust-
anverðu landinu. Frostlaust
vestast, en annars talsvert frost.
Á föstudag og laugardag
Sunnan og suðvestan 5-13 m/s.
Dálítil rigning eða slydda með
köflum vestan til á landinu, en
bjart eystra. Hiti víða 1 til 6 stig,
en frost 0 til 7 stig norðaustan
til.
Á sunnudag
Suðvestan 5-10. Rigning eða
súld vestan til á landinu, en skýj-
að með köflum norðaustan til.
Hiti 1 til 6 stig, en í kringum
frostmark norðaustan til.
Á mánudag
Hæg breytileg átt. Slydduél með
norðurströndinni en annars
skýjað með köflum. Hiti 0 til 4
stig en vægt frost inn til lands-
ins.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA