Morgunblaðið - 06.01.2010, Side 19
Daglegt líf 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2010
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
É
g var búin að sprengja
utan af mér húsnæðið,“
segir líkamsræktar-
þjálfarinn Sigríður
Halldóra Matthíasdótt-
ir eða Sigga Dóra eins og hún er
gjarnan kölluð, aðspurð um tilurð
nýju líkamsræktarstöðvarinnar sem
hún opnaði formlega um helgina,
Heilsustöð Siggu Dóru.
Allir með
Undanfarin 12 ár hefur Sigga Dóra
starfað hjá Veggsporti við Stórhöfða
17 í Reykjavík. Hún byrjaði sem
einkaþjálfari og fór síðan sjálf að taka
að sér hópa. Hún hefur verið með
starfsemi sína í 80 fermetra húsnæði
en þegar henni bauðst 400 fm aðstaða
á hæðunum fyrir ofan Veggsport, þar
sem Remax var með fasteignasölu áð-
ur, ákvað hún að slá til. Hún segir að
viðskiptavinir sínir hafi hvatt sig til
þess að fara í nýja húsnæðið og þeir
hafi aðstoðað við að breyta því úr
skrifstofurými í aðstöðu fyrir fjöl-
breytta heilsurækt. „Það var arkitekt
hérna og smiður þarna,“ segir hún og
bendir í allar áttir.
„Mig hefur alltaf dreymt um að
hafa huggulegt í kringum fólkið mitt,
hafa umhverfið notalegt,“ segir Sigga
Dóra og leggur áherslu á að hún leggi
mikið upp úr því að vera með fá-
menna hópa. Hún segir að hún hafi
verið með um 70 til 100 manns í um
sjö til tíu manna hópum á mismun-
andi námskeiðum og í raun hafi gamla
húsnæðið ekki verið nógu stórt.
Líkamsræktarstöðvar eru víða í
borginni en Sigga Dóra segist ekki
hafa látið samkeppnina trufla sig.
Hún hafi trausta viðskiptavini og hafi
alltaf haft nóg að gera. Heilsustöð
Siggu Dóru er á tveimur hæðum og er
nokkurs konar dekurhæð uppi. Fá-
mennir hópar geta leigt hæðina í
ákveðinn tíma, farið í nudd og gufu-
bað, setið í arinstofu og látið fara vel
um sig. „Ég er ekki með nein bretti og
læti, þetta er allt önnur Ella,“ segir
Sigga Dóra.
Æfingaferðir til Flórída
Margir viðskiptavinir Siggu Dóru
hafa verið hjá henni um árabil og því
þekkjast flestir vel innan hópanna.
Hún segir það auðvelda einstakling-
unum að ná settu marki og margt sé
gert til þess að efla félagsskapinn enn
frekar. Í því sambandi nefnir hún til
dæmis skemmtanir með heimatilbún-
um skemmtiatriðum og æfingaferðir
til Flórída. „Ég fer með 10 konur til
Flórída í vor og þá búum við allar
undir sama þaki,“ segir hún og bendir
á myndir frá einni ferðinni máli sínu
til stuðnings.
Ekki hefðbundin stöð
Sigga Dóra segir að Heilsustöðin sé
ekki hefðbundin líkamsræktarstöð
heldur bjóði hún upp á margvíslega
blöndu. Undir sama þaki starfi til
dæmis danskennarar, nuddarar,
jógakennarar og fleiri og boðið sé upp
á persónubundna þjálfun eins og til
dæmis höfuðbeina- og spjaldhryggs-
jöfnun. „Það er hægt að gera ansi
margt í þessu húsi,“ segir hún og bæt-
ir við að hún finni fyrir auknum áhuga
almennings á líkamsrækt. „Þó kreppa
sé í þjóðfélaginu er fólk sem betur fer
farið að líta sér nær og það veit að það
að bera ábyrgð á heilsu sinni skiptir
máli, að hugsa um sálartetrið. Það er
enda það sem ég legg mikla áherslu á,
líkama og sál, að lifa lífinu lifandi.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Æfingasalurinn Líkamsræktarþjálfarinn Sigríður Halldóra Matthíasdóttir verður með opið hús á sunnudag í Heilsustöð Siggu Dóru við Stórhöfða í Reykjavík.
Á milli hæða Sigga Dóra segir að sér hafi brugðið þegar hún sá húsnæðið og hafi baðað út höndunum.
Dekurhæðin Á efri hæðinni er hægt að fara í nudd og gufubað.
Líkami og sál hjá Siggu Dóru
Ekkert er hverjum ein-
staklingi dýrmætara en
heilsan og án hennar
fær viðkomandi ekki
miklu áorkað. Stöðugt
fleiri gera sér grein fyr-
ir þessu og láta kreppu
ekki koma í veg fyrir
markvissa eflingu lík-
ama og sálar. Þar á
meðal er Sigríður Hall-
dóra Matthíasdóttir í
Heilsustöð Siggu Dóru.
Heilsustöð Siggu Dóru er ekki
venjuleg heilsustöð enda leggur
hún áherslu á að öllum líði vel í
fámennum hópum.
Sigga Dóra bendir á að fólk
sem sé að byrja í líkamsrækt
vilji hugsanlega byrja smátt og
þá sé gott að geta boðið upp á
þennan valkost. „Ég vil að fólk-
inu líði eins og heima hjá sér,“
segir hún í dekurstofunni og
áréttar þessa skoðun sína í
aðalæfingasalnum, þar sem litl-
ar dýnur eru fyrirferðarmestar.
Sigga Dóra var með opið hús í
Heilsustöðinni sl. sunnudag og
ætlar að endurtaka leikinn á
sunnudag. „Ég finn fyrir aukn-
um áhuga og með stærra hús-
næði get ég bætt við hópum,“
segir Sigga Dóra.
Eins og heima