Morgunblaðið - 06.01.2010, Page 27
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2010
✝ Ólafur Guð-mundsson fæddist
í Reykjavík 26. jan-
úar 1940. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja sunnu-
daginn 27. desember
síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Steindórsson, f. 1910,
d. 1979, frá Súðavík
og Lára Sigvar-
dsdóttir Hammer, f.
1909 frá Hnífsdal og
lifir hún son sinn 100
ára gömul, vistmaður á hjúkr-
unarheimilinu Eir í Reykjavík.
Systkini Ólafs eru: Steina Guðrún,
f. 1930, maki Baldvin Haraldsson,
f. 1928, d. 1992. Þorvaldur R. Guð-
mundsson, f. 1934, d. 2008, maki
Dóra Guðlaugsdóttir. Elín Jó-
hanna, f. 1937, maki Gylfi Jónsson.
Sigrid Esther, f. 1942, maki Hauk-
ur Örn Björnsson. Ólafur kvæntist
Björgu Hauksdóttur, f. 1941, látin
1999. Þau skildu. Sonur þeirra er
Hafsteinn Haukur, f. 1961, maki
Karen Stross, f. 1965, börn þeirra
eru: a) Ásdís Björg, maki Stían
Ringsröd, sonur þeirra er Elías Ni-
colai. b) Bryndís Ruth, maki Rich-
ard Gauteplass og c) Marteinn
Ingi. Þau eru öll búsett í Noregi.
Ólafur kvæntist aftur 1967, Rósm-
vaxtarárum sínum dvaldi hann
langdvölum hjá ömmu sinni og afa
í Grindavík og leit ávallt á sig sem
Grindvíking. Hann hóf ungur sína
starfsævi. 13 ára var hann „messa-
gutti“ á Esjunni, strandferðaskipi
Eimskipafélags Íslands. Árið 1956
réð hann sig til Sigurðar Magn-
ússonar skipstjóra frá Sólheimum í
Grindavík, sem háseta á Hrafn
Sveinbjarnarson og svo einnig árið
eftir á nýja Hrafninn, sem tekinn
var í notkun árið 1957. Hann vann
svo ýmist á sjó eða landi næstu ár-
in, m.a. á togurunum Fylki, Rifs-
nesinu og Skagaröstinni, að
ógleymdum Hrafni Sveinbjarn-
arsyni. Eins var hann í millilanda-
siglingum á flutningaskipinu Mæli-
felli á árunum 1962-64. Í landi
vann hann í steypustöðinni Verki á
árunum 1964-67 og hjá Þunga-
vinnuvéladeild varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli 1970-75, þá hóf
hann störf sem tollvörður í flug-
stöðinni á Keflavíkurflugvelli. Þar
starfaði hann allar götur síðan eða
fram til ársins 2003. Ólafur var
virkur félagi í Framsókn-
arfélögum Keflavíkur og Njarðvík-
ur eftir að hann gekk í Framsókn-
arflokkinn árið 1969. Sat í stjórn
félags ungra Framsóknarmanna
(FUF) árið 1969 og formaður árið
1971 auk ýmissa nefndarstarfa. Þá
sat hann í stjórn Kaupfélags Suð-
urnesja á árunum 1971-80.
Útför Ólafs fer fram frá Ytri-
Njarðvíkurkirkju, í dag 6. janúar,
og hefst athöfnin kl. 13.
ary K. Sigurð-
ardóttur. Foreldrar
hennar voru Hall-
dóra Eyrún Ein-
arsdóttir og Sigurður
Hilmar Hilmarsson
sem bæði eru látin.
Börn þeirra eru: 1)
Sigurður Hilmar
Ólafsson, f. 1968,
maki Hafdís Helga
Þorvaldsdóttir, f.
1972. Börn þeirra
eru: a) Eyrún Líf og
b) Rósmarý Kristín.
Fyrir átti Hafdís son-
inn Styrmi Gauta Fjeldsted. 2)
Halldór Berg Ólafsson, f. 1971,
maki Lilja Sólrún Guðmundsdóttir,
f. 1973. Börn þeirra eru: a) Guð-
mundur Óli. b) Emil Berg. c) Atli
Freyr. 3) Flóra Hlín Ólafsdóttir, f.
1981, maki Björgvin Einar Guð-
mundsson. Sonur þeirra er Almar
Elí.
Ólafur og Rósmary hófu búskap
sinn í foreldrahúsum Rósmary að
Þórustíg 16, Bergi í Ytri- Njarðvík.
Árið 1977 byggðu þau sér framtíð-
arheimilið sitt að Grundarvegi 1 í
Ytri-Njarðvík og hafa búið þar síð-
an. Ólafur fæddist og ólst upp í
Reykjavík, gekk í Austurbæj-
arskólann og lauk þar skyldunámi.
Seinna, árið 1979, útskrifaðist
hann frá Tollskóla Íslands. Á upp-
Nú er lífsins leiðir skilja,
lokið þinni göngu á jörð.
Flyt ég þér af hljóðu hjarta,
hinstu kveðju og þakkargjörð.
Gegnum árin okkar björtu,
átti ég þig í gleði og þraut.
Umhyggju sem aldrei gleymist,
ávallt lést mér falla í skaut.
(Höf. ók.)
Eiginkona.
Mig langar í fáeinum orðum að
minnast elskulegs tengdaföður
míns.
Ég kynntist Óla fyrir tæpum 17
árum þegar ég og Siggi sonur hans
fórum að draga okkur saman. Óli
tók mér vel strax í upphafi og var
frá fyrstu tíð einstaklega góður við
son minn sem þá var 7 mánaða, og
tók honum sem sínu barnabarni.
Síðan bættust við tvær stúlkur og
var Óli mikill afi, honum var mikið í
mun að barnabörnum sínum liði vel
og fylgdist vel með öllu sem þau
tóku sér fyrir hendur. Við hlógum
stundum að því að í fyrsta skipti
sem hann skipti á bleyju var þegar
hann var að passa eldri dóttur okk-
ar þá 3 vikna, því ég þurfti að fara í
próf í fjölbraut og hann sjálfur bú-
inn að eignast 4 börn.
Ég og Óli vorum miklir vinir og
gátum setið heilu kvöldin og spjall-
að um lífið og tilveruna, hann hafði
góða frásagnarhæfileika og hafði
mikinn áhuga á andlegum málefn-
um og kunni mikið af sögum sem
gaman var að hlusta á. Það tók mig
nokkur ár að átta mig á því að þeg-
ar mér fannst Óli vera að þrasa og
kannski með smá neikvæðni þá var
mikill húmor og stríðni á bakvið
orð hans, hann gat séð spaugilegu
hliðarnar á flestu, glotti oft þegar
ég sagði skoðun mína, sumum
fannst þær kannski of beinskeyttar
en hann kunni vel að meta hrein-
skilni og heiðarleika. Ef eitthvað
kom uppá, t.d ef ég varð bensín-
laus, bíllinn bilaði, vantaði að láta
skutla börnunum, passa þau eða
bara hvað sem var, þá kom Óli allt-
af fyrst upp í huga minn því ég
vissi að ég gæti treyst á hann og
ekki stóð á viðbrögðunum. Þegar
við fjölskyldan fórum í ferðalög þá
voru oftar en ekki Óli og tengda-
mamma mætt á svæðið og Óli með
veiðistangir til að geta veitt með
krökkunum og eru það ómetanleg-
ar minningar fyrir þau. Mér fannst
svo gaman að ræða um börnin mín
við Óla því ég fann alltaf fyrir svo
mikilli væntumþykju og virðingu
hjá honum í þeirra garð, hann var
sannfærður um að það yrði mikið
úr þeim í framtíðinni og alltaf var
hann mættur þegar þau fengu ein-
kunnirnar sínar og hrósaði þeim í
hástert og lét stundum fylgja með
að þau hefðu námshæfileikana
örugglega frá mömmu sinni, gjóaði
augunum á Sigga manninn minn og
glotti til mín. Þarna kom stríðnin
upp i honum.
Síðustu mánuðir hafa verið erf-
iðir fyrir okkur, að horfa á hann
svona mikið veikan og þrekið að
fjara út. Þrátt fyrir mikla vanlíðan
missti hann ekki húmorinn, fimm
dögum fyrir andlát sitt hafði hann
orð á því hvort það yrði nokkuð
framreiddur bjór með skötunni á
Þorláksmessu á sjúkrahúsinu.
Hvíldu í friði, elsku Óli minn, það
er sárt að missa þig frá okkur.
Þín tengdadóttir,
Hafdís Helga Þorvaldsdóttir.
Elsku afi minn
Takk fyrir að passa mig og leika
við mig á meðan þú hafðir heilsu til.
Ég vona að þú hafir það gott þar
sem þú ert núna.
Guð geymi þig,
þinn,
Almar Elí.
Ég ætla að leggja hönd um hálsinn
þinn
hjartans elsku besti pabbi minn,
með kossum mínum hvísla hlýtt að
þér
kærust er þér jólaósk frá mér.
Elsku pabbi, takk fyrir allt.
Þín verður sárt saknað.
Minning þín mun lifa í hjörtum
okkar allra.
Flóra og Björgvin.
Afi var góður afi. Ég gisti oft hjá
ömmu og afa og hann skutlaði mér
á æfingar og ef það var ekki til eitt-
hvað hjá honum fór hann alltaf að
kaupa það þó að ég segði Neinei, ég
fæ mér bara seinna. Hann vildi allt-
af allt fyrir mig gera.
Afi bjó sér til skartgripastofu
þar sem hann bjó til hálsmen og
hringi. Hann bjó til handa mér
lukkuhálsmen sem mér þykir mjög
vænt um.
Ég fór oft með afa og ömmu að
veiða, það var svo gaman. Afi var
eins og annar pabbi minn. Nú er
hann farinn en hann verður alltaf
geymdur í hjarta mínu.
Þín afastelpa,
Rósmarý Kristín.
Hann afi minn skilur eftir sig svo
margar minningar sem ég mun
aldrei gleyma.
Afi hefur alltaf fylgst með öllu
sem við krakkarnir höfum verið að
gera, t.d. í skólanum eða íþróttum.
Hann var með alla æfingatíma okk-
ar hengda uppá ísskáp til að geta
skutlað okkur á æfingar á réttum
tíma. Ef mig vantaði eitthvað fór ég
alltaf til afa og hann reddaði því.
Ég fór aldrei svöng út frá afa og ef
lítið var til á heimilinu sagði hann
alltaf „Fáðu þér bara úr glasinu
vinan“. Þá var hann með lítið glas
uppi í skáp sem í var hellingur af
klinki sem hann hafði safnað saman
fyrir okkur krakkana.
Ef maður neitaði einhverju sem
hann var að bjóða eða þá að maður
var ekki svangur var samt engin
leið til að sleppa við það því afi
hætti ekki að bjóða fyrr en við
fengum okkur. Á jólum og áramót-
um var afi í essinu sínu. Hann
keypti alltaf helling af nammi og
fyllti litlar skálar út um allt hús og
aldrei var nein skál tóm. Á áramót-
unum var mikið um að vera heima
hjá ömmu og afa og þótti honum þá
gaman að geta stjanað í kringum
alla gestina sem komu og labbaði
um með vagn með allar gerðir af
gosi og víni og bauð öllum. Einnig
passaði afi alltaf uppá að það væru
til nægar sprengjur fyrir alla á ára-
mótunum. Áramótin munu alltaf
minna mig á afa. Afi hugsaði alltaf
um alla aðra fyrst, ég gleymi aldrei
þegar hann var orðinn veikur og
var rúmliggjandi og mig vantaði að
láta skutla mér, þá hoppaði hann úr
rúminu og sagðist ætla að skutla
mér þó svo að hann gæti varla stað-
ið upp. Ég gleymi aldrei öllum
ferðalögunum sem ég fór með
ömmu og afa í þegar ég var yngri.
Þá var sko dekrað við mann og mér
leið eins og einkabarni. Ég hef allt-
af verið mikil afastelpa og mér leið
alltaf best heima hjá ömmu og afa.
Afi var mikill húmoristi og oft
þegar mikið var um að vera og allir
á fullu eða að stressast, sá ég
stundum afa glotta að okkur öllum.
Nú verður skrýtið að fara í ömmu-
og afakot án þess að afi sé þar að
bjóða mér eitthvað eða hlusta á út-
varpið í litla sófahorninu sínu.
Ég á eftir að sakna þín mikið,
elsku afi minn og takk fyrir allt
sem þú gerðir fyrir mig.
Þín,
Eyrún Líf.
Í dag kveð ég vin minn Ólaf Guð-
mundsson.
Leiðir okkar lágu saman á Kefla-
víkurflugvelli þar sem Ólafur starf-
aði við tollgæslu en starfs míns
vegna átti ég oft erindi þangað.
Ólafur kom til starfa hjá ríkinu
með reynslu lífsins að baki, hafði
stundað sjómennsku og önnur störf
því tengd um áraraðir en fannst
tími til kominn að hafa fast land
undir fótum. Við tollgæslu starfaði
hann út starfsævina.
Ólafur var dagfarsprúður maður
og átti einstaklega auðvelt með að
umgangast fólk. Hann var fljótlega
tekinn með í ferða- og veiðiklúbb
nokkurra félaga og var þar ætíð
hrókur alls fagnaðar enda hafði
hann einstakt lag á að segja
skemmtilega frá og hafði alltaf ein-
hverjar skemmtilegar frásögur á
takteinum. Veiðiferðir urðu þó
nokkrar í Vopnafjörð og Borgar-
fjörð að ógleymdum ferðum okkar
inn á Arnarvatnsheiði. Óli var alltaf
boðinn og búinn að keyra og oftar
en ekki var það við misgóðar að-
stæður, enda var oft talað um að
hann væri nokkurskonar ofurekill
(hell-driver) í hópnum. Hann var
vel liðinn og naut sín við veiðar í
góðra vina hópi.
Ef eitthvað fór úrskeiðis var
jafnan leitað til Óla enda tókst hon-
um oft að koma lífi í vélar og tæki
sem öðrum hafði mistekist. Var
haft á orði að hann væri með raf-
magn í puttunum.
Við Óli ferðuðumst saman víðar
en á Íslandi, meðal annars Dan-
mörku, Svíþjóð og Bretland, einnig
hittumst við í New York sem við
kölluðum „vestur í Hreppum“.
Ólafur fylgdist vel með þjóðmál-
um og hafði skoðanir á flestu, mér
er það fersku minni þegar við eitt
sinn vorum að ræða saman í miðju
góðærinu og hann segir við mig að
sér finnist allar þessar fréttir og
frásögur af stórkostlegum kaupum
og áætlunum í fréttunum óraun-
verulegar og ósennilegar. Kom á
daginn síðar að flestar af þessum
áætlunum voru í besta falli sápu-
kúlur byggðar á brauðfótum óraun-
hæfra væntinga.
Síðasta ferð okkar Óla var farin í
september 2008 í Grímsstaðarétt, á
æskuslóðir mínar og var Ólafur við
stýrið og ókum við víða um sögu-
slóðir Mýramanna.
Á kveðjustund er mér efst í huga
þakklæti fyrir að hafa átt Ólaf sem
vin, veiðifélaga og fóstbróður.
Eftirlifandi eiginkonu hans Mary
og öðrum aðstandendum sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Gunnar Helgason.
Ólafur Guðmundssonir framkoma og hæfni í samskipt-um miklu máli um það hvernig til
tekst. Fræðsla er einnig mikilvæg-
ur hluti starfsins. Ómar Logi hafði
hæfileika sem nýtast vel í slíku
starfi. Hann var mikill dugnaðar-
forkur og er óhætt að segja að það
var eftir því tekið og munaði um
minna þegar hann gat ekki sinnt
vinnunni eins og áður vegna veik-
indanna. Verkefnum sinnti hann
alla tíð af samviskusemi, einurð og
sjálfstæði. Seta við tölvu var ekki
uppáhald Ómars Loga hvað varð-
aði vinnuna, en þar sem skýrslu-
gerðir og úrvinnsla er stór þáttur
hennar var þeim hluta einnig sinnt
af kostgæfni. Honum líkaði mun
betur bein samskipti við fólk og
fyrirtæki úti í borginni. En þau
vinnubrögð sem Ómar Logi til-
einkaði sér við skýrslugerðir og
annað er fyrirmynd margra heil-
brigðisfulltrúa hjá okkur í dag.
Samstarfsfólkið minnist hans
með virðingu og þakklæti fyrir
gott samstarf, vináttu og skemmti-
leg kynni. Hans er sárt saknað.
Við viljum fyrir hönd
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
votta Ingu, börnunum og öðrum
aðstandendum innilega samúð.
Megi minningar um góðan dreng
verða ykkur styrkur í sorginni.
Árný Sigurðardóttir og
Rósa Magnúsdóttir.
Í dag er borinn til grafar góður
vinur og samstarfsfélagi okkar hjá
Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur,
Ómar Logi Gíslason, en hann hafði
barist síðastliðin tvö ár hetjulegri
baráttu við illvígan sjúkdóm. Í
þeirri baráttu kom berlega í ljós
baráttukraftur hans og dugnaður
sem einkenndi hann alla tíð.
Ómar starfaði um árabil við
heilbrigðiseftirlit, bæði í Reykja-
vík og Kópavogi. Hann var vel lið-
inn af starfsfélögum og öðrum. Í
starfi var hann fastur fyrir en
sanngjarn. Það sem einkenndi
persónu Ómars var hversu hrein-
skiptinn, traustur, einlægur og
heiðarlegur hann var í öllum sam-
skiptum. Hann bar virðingu fyrir
starfi sínu og naut virðingar sam-
starfsmanna sinna fyrir víðtæka
þekkingu sína og réttsýni.
Í vinnunni var Ómar í félaga-
hópi sem spilaði bridge reglulega.
Oft gat verið handagangur í öskj-
unni þegar tekist var á í spilum en
ávallt stutt í húmorinn, enda hafði
hann ríkan húmor fyrir sjálfum
sér og umhverfinu. Ómar var að-
alhvatamaður að stofnun matar-
klúbbs sem hittist reglulega í há-
deginu en þá voru veitingastaðir
heimsóttir. Var Ómar aðaldriffjöð-
ur í hvoru tveggja, og hafði mikla
ánægju af. Nefndi hann matar-
klúbbinn „veitingahúsaeftirlitið“
og var það jafnframt hans hug-
mynd að gefa veitingastöðunum
einkunnir eftir gæðum þjónustu
og matar. Í leik og starfi var Ómar
mikill orkubolti. Hafði hann mikla
ánægju af íþróttum og stundaði
reglulega fótbolta, hlaup og sund.
Auk starfs síns hjá Heilbrigðiseft-
irlitinu stundaði Ómar einnig
kennslustörf á kvöldin og um helg-
ar. Hafði hann mikla ánægju af
kennslunni, náði vel til nemenda
sinna og var vinsæll kennari.
Síðustu ár í starfi sínu hjá Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur sá Óm-
ar um eftirlit með leikskólum en
öryggi barna og hollusta var hon-
um hugleikið viðfangsefni. Fjöl-
skylda hans var honum dýrmæt og
talaði hann oft af miklu stolti um
hana.
Ómar skilur eftir sig mikið
skarð og söknuð í vinahópnum.
Hressileikinn og einlægnin sem
einkenndi far hans mun okkur
seint gleymast.
Á ferð sem fátt um svörin ber
tíma þínum lokið er.
En áfram í mér ljós þitt skín.
Í vegsemd lifir minning þín.
(E.O.)
Við vottum fjölskyldu og að-
standendum Ómars Loga okkar
dýpstu samúðarkveðju.
Einar Oddsson,
Gísli Gíslason,
Gunnar Kristinsson.
✝
Sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi,
JÓN ÁGÚST GUÐMUNDSSON
byggingarverkfræðingur,
Austurholti 5,
Borgarnesi,
sem lést laugardaginn 26. desember, verður jarð-
sunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 8. janúar
kl. 14.00.
Dagbjört Jónsdóttir,
Ólafur J. Guðmundsson, Halla J. Guðmundsdóttir,
Sveinbjörn G. Guðmundsson, Hildur Jóhannsdóttir,
Aðalsteinn K. Guðmundsson, Auður H. Jónatansdóttir,
Brynjólfur S. Guðmundsson, Elín Rut Ólafsdóttir,
Kristín Guðmundsdóttir, Sverrir Gísli Hauksson,
Guðmundur Á. Guðmundsson, Hafdís L. Guðlaugsdóttir,
Dagbjartur H. Guðmundsson, Tatjana Latinovic
og systkinabörn.