Morgunblaðið - 06.01.2010, Qupperneq 41
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
GLÖGGIR
áhorfendur tóku
eftir því, að
loknu vel heppn-
uðu Áramóta-
skaupi, að nafn
Davíðs Odds-
sonar, ritstjóra
Morgunblaðsins,
var á lista yfir
þá sem færðar
voru þakkir í lok
þess. Ástæðan er sú að
Davíð lék í atriði fyrir
skaupið sem var ekki notað,
þar sem það þótti ekki
passa við heildarmyndina.
Gunnar B. Guðmundsson,
leikstjóri skaupsins, klippti
atriðið út. „Það var miklu
fyndnara á pappír,“ segir
Gunnar um atriðið, en í því
lék Davíð leikarann Örn
Árnason að leika Davíð
Oddsson. Hljómar vissulega
vel og eflaust margir sem
gráta það að fá aldrei að sjá
þetta atriði. „Hann stóð sig
alveg frábærlega, ég get
staðfest það,“ segir Gunnar
um frammistöðu Davíðs.
– Það er hrikalegt að fá
ekki að sjá þetta!
„Já, það er bara þannig,“
segir Gunnar og hlær kvik-
indislega. Stundum þurfi
leikstjórar að drepa uppá-
haldsatriðin í klippingu, í þágu
heildarinnar. „Það var heildar-
myndin sem skipti máli, það var
engin ritstýring í gangi. Ég tók all-
ar þessar ákvarðanir, það var eng-
inn sem reyndi að hafa áhrif á
mig.“
„Frábær leikari“
Gunnar segir handritshöfunda
skaupsins hafa átt hugmyndina að
atriðinu með Davíð. En var Davíð
með Davíðs-hárkolluna hans Arnar?
„Ég segi ekki neitt,“ svarar
Gunnar og hlær aftur kvikindislega.
„Ég tala ekkert um þau at-
riði sem eru ekki í skaup-
inu, það er bara ekki rétt.“
– En hvernig var að leik-
stýra Davíð Oddssyni?
„Hann var frábær, hann
er frábær leikari,“ svarar
Gunnar og bendir m.a. á
gamanleik Davíðs í út-
varpsþáttunum Matthildur,
sem hann gerði með Þór-
arni Eldjárn og Hrafni
Gunnlaugssyni. Gunnar
segir Davíð hafa tekið vel í
að leika í skaupinu og það
sé miður að þurft hafi að
fórna atriðinu.
Hvað næstu verkefni
Gunnars varðar þá stendur
til að taka kvikmyndina
Gauragang í ár. Búið er að
þrengja hóp mögulegra
leikara á unglingsaldri en
fullorðnu leikar-arnir eru
ófundnir.
Davíð sem Örn sem Davíð
Davíð Oddsson lék sjálfan sig að hætti Arnar Árnasonar
fyrir Áramótaskaupið Atriðið þótti ekki passa við heild-
armyndina og var því sleppt, að sögn leikstjóra skaupsins
Davíð
Oddsson Áramótaskaupið Örn Árnason við
tökur, með Davíðs-kolluna í hendi.
Frá tökum Gunnar B. Guðmundsson leikstjóri við tök-
ur á skaupinu í nóvember síðastliðnum.
Morgunblaðið/RAX
BLAÐAMENN hins virta, banda-
ríska tímarits Time hafa tekið
saman það sem best þótti í listum
og afþreyingu á liðnu ári.
Hvað kvik-
myndir varðar
kann mörgum
kvikmynda-
spekingnum að
þykja topplist-
inn undar-
legur, að
teiknimyndin
The Princess
and the Frog skuli vera í fyrsta
sæti, þar sem hún hefur ekki feng-
ið viðlíka lof og t.d. Avatar. Í öðru
sæti er einnig teiknimynd, Up, og í
því þriðja s.k. stop motion hreyfi-
mynd, Fantastic Mr. Fox. Það er
ekki fyrr en í 4. sæti að leikin
mynd kemur við sögu, The Hurt
Locker, og í því fimmta Up in the
Air með George Clooney í aðal-
hlutverki, mynd sem eftir á að
sýna hér á landi.
Á lista yfir bestu lög ársins er
„My Life Would Suck Without
You“ með Kelly Clarkson í efsta
sæti, þá „Two Weeks“ með Grizzly
Bear og í þriðja sæti „No Line on
the Horizon“ með U2.
Þegar að sjónvarpsþáttum kem-
ur er Mad Men í fyrsta sæti, í
tveimur næstu sætum þáttarað-
irnar Modern Family og Breaking
Bad og í því fjórða Big Love. Batt-
lestar Galactica er svo í því
fimmta.
Hvað myndlist varðar þótti yf-
irlitssýning í Metropolitan-safninu
í New York á verkum írska list-
málarans Francis Bacon bera af,
er í fyrsta sæti, og í öðru sæti sýn-
ing á verkum Williams Kentridge í
San Francisco Museum of Modern
Art. Sýning á verkum feneyskra
endurreisnarmálara sem var hald-
in í Boston er í þriðja sæti.
Bók Hilary Mantel, Wolf Hall,
þykir besta skáldsaga ársins en á
hæla henni koma The Financial
Lives of the Poets eftir Jess Wal-
ter, Swimming eftir Nicola Keeg-
an, Catching Fire eftir Suzanne
Collins og Everything Ravaged,
Everything Burned eftir Wells To-
wer.
Hér eru ekki allir listar upp
taldir enda fjölmargir og áhuga-
verðir. Þeim sem vilja vita meira
er bent á vefsíðu Time, time.com.
Prinsessan og froskurinn Í fyrsta sæti á lista Time yfir bestu kvikmyndir
ársins 2009. Teiknimyndir eru í tveimur efstu sætum listans.
Teiknimyndir, auglýs-
ingakarlar og Bacon
Mad Men Besti sjónvarpsþátturinn.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2010
Stórkostleg teiknimynd þar
sem Laddi fer á kostum í
hlutverki ljósflugunnar Ray
Valin mynd ársins af TIME MAGAZIN
Tilnefnd til Golden Globe verðlauna
sem best teiknaða myndin.
Selma Björnsdóttir - Rúnar Freyr Gíslason
Magnús Jónsson - Laddi – Egill Ólafsson
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Sýnd með
íslensku og
ensku tali
JÓLAMYNDIN Í ÁR
JIM CARREY
fer gersamlega
á kostum
SÝND Í ÁLFABAKKA
BYGGT Á HINNI GRÍÐARLEGU VINSÆLU BÓKASERÍU STEPHENIE MEYER
ÞRIÐJA STÆRSTA FRUMSÝNINGARHELGI ALLRA TÍMA Í USA
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI, 2 VIKUR Í RÖÐ!
SÝND Í ÁLFABAKKA
EINHVER FLOTTUSTU BARDAGAATRIÐI
SEM SÉST HAFA Í LAAANGAN TÍMA!
„AFÞREYING MEÐ HRÖÐUM HASAR, SJÓNRÆNUM
NAUTNUM... SEM HALDA ATHYGLI ÁHORFANDANS.“
*** H.S.-MBL
HÖRKU HASARMYND
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
BJARNFREÐARSON kl. 5:45 - 8 -10:20 L
PRINSESSAN OG FROSKURINN m. ísl. tali kl. 6 L
OLD DOGS kl. 8 L
NINJA ASSASSIN kl. 10:20 16
BJARNFREÐARSON kl. 5:45 - 8 - 8:30 - 10:20 L
PRINSESSAN OG FROSKURINN m. ísl. tali kl. 6 L
SORORITY ROW kl. 10:40 16
BJARNFREÐARSON kl. 5:45 - 8 - 10:20 L
PRINSESSAN OG FROSKURINN m. ísl. tali kl. 6 L
AVATAR kl. 8 - 11 10
hafa alltaf neitað því að eitthvað sé
á milli þeirra og sagði Rihanna í
desember: „Þessi orðrómur um
Justin er rangur. Við unnum saman
að plötu minni og það er ekki eins
og við séum eitthvað nánir vinir.
Við unnum bara saman í eitt
skipti.“
Þrátt fyrir neitun hennar hefur
orðrómurinn vaxið og sagt er að
þau hafi tekið meðvitaða ákvörðun
um að sjást ekki saman og forðast
hvort annað í samkvæmum til að
kynda ekki undir honum.
Rihanna hefur þó lofað að segja
allt um líf sitt í ævisögu sem von er
á í júní og á að heita The Last Girl
On Earth.
Daily Star. Rihanna mun þó ekki
hafa áhuga á alvarlegu sambandi
við söngvarann.
Þau kynntust þegar Timberlake
vann með henni að laginu „Rehab“
á plötunni Good Girl Gone Bad. Þau
ENN lifir glóð í þeim orðrómi að
tónlistarmennirnir Rihanna og
Justin Timberlake eigi í leynilegu
ástarsambandi.
Rihanna á að hafa sagt nánum
vini sínum frá því að hún og Tim-
berlake hafi verið að draga sig
saman frá því að samband hans og
Jessicu Biel rann út í sandinn á síð-
asta ári.
„Rihanna hringdi í vin sinn og
sagði að hún ætti kynþokkafullt
leyndarmál. Hún fór að hlæja og
sagði að hún og Justin væru að hitt-
ast. Hún sagði að samband þeirra
væri heitt og villt og með honum
hefði hún upplifað besta kelerí ævi
sinnar,“ sagði heimildarmaður
Leynilegt ástarsamband?
RihannaTimberlake