Ísfirðingur - 17.03.1973, Qupperneq 4
Urslit í firmakeppni Skíðaráðs
ísafjarðar 11. marz 1973
1. Dynjandi ÍS-59, sek.
keppandi Valdimar Birgisson .................. 35,99
2. Gunnvör hf.,
keppandi Guðmundur Jóhannson ................. 40,18
3. Ágúst Guðmundsson, trésmiðaverkstæði
keppandi Guðmundur Gunnlaugsson............... 41,46
4. Brunaibótafélag íslands, ísafirði,
keppandi Agnar Sigurðsson .................... 41,48
5. Torfnes hf.,
keppandi Sveinn Guðjónsson .................. 41,85
6. Sjómannafélag ísfirðinga,
keppandi Guðmundur Gunnlaugsson............... 42,05
7. Hraðfrystihúsið hf., Hnífsdal,
keppandi Hreiðar Sigtryggson ................. 42,06
8. Vélbátaábyrgðarfélag ísfirðinga hf.,
keppandi Ólöf Kristjánsdóttir ................ 42,12
9. Bókaverzlun Jónasar Tómassonar,
'keppandi Ólöf Kristjánsdóttir ............... 42,20
10. Oddur Friðriksson hf.,
keppandi Axel Gunnlaugsson ................... 42,26
11. Djúpbáturinn hf.,
keppandi Hreiðar Sigtryggsson ............... 42,38
12. Skóverzlun Leós,
keppandi Dagný Annasdóttir ................... 42,48
13. Almennar tryggingar hf., ísafirði,
keppandi Agnar Sigurðsson .................... 42,75
14. Mjölvinnslan hf., Hnífsdal,
keppandi Einar Valur Kristjánsson ............ 42,95
15. Húsgagnaverzlun ísafjarðar,
keppandi Pálmi Jónsson ....................... 43,20
Alls tóku 98 fyrirtæki þátt í keppninni.
Skíðaráð ísafjarðar færir þátttakendum í firmakeppnninni
beztu þakkir fyrir veittan stuðning við starfsemi ráðsins.
I næsta blaði verða birt nöfn allra þeirra, sem þátt tóku í
firmakeppninni.
Skákmót ísafjarðar og
simskák við Siglufjörð
BMÐ TRAMSOKNAVMANNA / l/TSTFJARÐAKJOPMM/
Torfi Guðbrandsson:
Fréttabréf úr Araeshreppi
NÚ ER að mestu lokið und-
anúrslitum í Skákmóti ísa-
fjarðar sem nú stendur yfir,
og eru þrír menn, þeir Jó-
hannes Ragnarsson, Jón Kr.
Jónsson og Matthías Krist-
insson, þegar búnir að
tryggja sér sæti í aðalúrslit-
um mótsins.
Þátttaka í mótinu er frem-
ur dræm, ef miðað er við
hinn mikla skákáhuga sem
ríkt hefur, eða alls 23 kepp-
endur.
í unglingaflokki er ísa-
fjaðarmótinu þegar lokið með
sigri Sigurðar Gunnarssonar,
en þátttakendur í því voru
32 að tölu.
Eftirfarandi skákstaða kom
upp í unglingaflokki:
Hvítt: Khl, He2.
Svart: Kf4 Dg3.
Hvítur lék Hf2 og hélt jöfnu
með því að skáka eftir ann-
ari línunni.
Menntaskólinn á ísafirði
hefur heldur ekki látið skák-
gyðjuna fara varhluta af sér,
enda ýmsis snjallir skákmenn
í þeim skóla. Að þessu sinni
eru þeir að Ijúka við 19
manna skákmót með fjög-
urra manna úrslitum, en eins
og sakir standa er eigi unnt
að gefa upp neina ákveðna
mynd af mótinu.
Aðfaranótt laugardagsins 3.
þ.m. háði Taflfélag Isafjarðar
skákkeppni við Siglufjörð í
gegnum skna.
Teflt var á 10 borðum og
sigruðu ísfirðingar með 6V2
vinning gegn 3y2-
Mega skákmenn okkar vel
við una, en Siglfirðingar sárt
við sitja, þar eð einn vinn-
ingur Siglfirðinganna kom í
hlut brottflutts Isfirðings,
Bjarna Árnasonar, sem einn-
ig átti frumkvæðið að þess-
ari keppni.
M.K.
Úrsmíði-Verzlun
Axel Eiríksson, úrsmiður,
hefur keypt úrsmíðavinnu-
stofu og verzlun Arne sál.
Sörensens hér í bænum.
Fyrst um sinn mun verzl-
unin verða opin klukkan
13—18 mánudaga til föstu-
daga og klukkan 9—12 á
laugardögum. Verzlunin hef-
ur á boðstólum úr, klukkur
og gjafavörur.
TIÐARFARIÐ
Framan af vetri hefur veð-
urfar verið áþekkt og í fyrra,
óstillt tíð, fannkoma og stór-
viðri til hátíða, þá skyndileg
hækkun á hitastigi upp í allt
að 8 gráður, með rokglöðum
suðvestan vindum, þannig að
snjór hvarf af láglendi á fá-
um dögum og túnblettir stóöu
hvanngrænir seinni hluta jan-
úarmánaðar. En lengra náði
líkingin með þessum tveim
vetrum því miður ekki. I byrj
un febrúar náði ,,Þorri“ kall-
inn sér á strik, eftir þetta
blíða ástarævintýri með vor-
gyðjunni, jós yfir okkur ó-
mældum snjó, sleit símalín-
ur, kaffærði vegi og vann
önnur nauðsynleg afrek til
að færa okkur heim sanninn
um það, hver það væri, sem
húsbóndavaldið hefði þennan
árstíma. Þessi veðrahamur
hefur gengið látlaust í heil-
an mánuð enda er fannfergi
nú orðið með því mesta, sem
gerist hér um slóðir. En
bændur eru vel heyjaðir og
kvíða engu.
HAUSTSLÁTRUN
I HAUST var slátrað 2225
dilkum á Norðurfirði. Meðal-
fallþungi þeirra varð 17.38
kg. (án nýrnamörs). Var það
0,38 kg. meira en í fyrra,
og ef til vill hefur það verið
hæsti meðalþungi á landinu.
Kristján Albertsson á Melum
átti þyngsta dilkinn, sem vó
28 kg.
SNJÓFLÓÐ
Snjóflóð féll á Munaðamesi
12. febrúar. Miðað við hve
það var lítið um sig, gerði
það ótrúlegan skaða, þar sem
það lenti nákvæmlega á miðri
vélageymslu og braut hlið
hennar inn, skall á snjósleða,
dráttarvél og jeppabifreið sem
færðust úr stað og brutu hina
hlið geymslunnar, svo að eftir
stóðu aðeins gaflamir. En þá
var orka snjóflóðsins líka
þrotin. Snjódyngjan lá öll
inni í geymslunni eins og hún
lagði sig hnoðuð utan um
farartækjakost bæjarins, svo
að rétt aðeins sást í þakið á
jeppaninn. Ekki var hægt að
kanna skemmdirnar til hlítar
fyrr en mörgum dögum
seinna sökum veðurofsans.
Kom þá í Ijós, að öll tækin
höfðu dældast meira og
minna og hafa Munaðarnes-
bændur því orðið fyrir miklu
tjóni, þar sem umræddir hlut
ir vorur ekki vátryggðir.
FÉLAGSLÍF
Að sjálfsögðu notuðum við
veðurblíðuna og ökufærið
Torfi Guðbrandsson
meðan það gafst til aðdrátta
fyrir hátíðarnar og uppbygg-
ingar í félagslífinu. Haldnar
voru á skömmum tíma þrjár
samkomur í félagsheimilinu
að Árnesi, ein á vegum barna
skólans, önnur á vegum slysa
varnadeildarinnar og hin
þriðja var j ólatrésskemmtun.
Allar voru þessar Scunkomur
vel sóttar, þótt eingöngu
væri um innansveitarfólk að
ræða.
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTAN
Læknislaust hefur verið í
Strandasýslu um alllangt
skeið. Landlæknir sendi til
okkar Sighvat Snæbjörnsson
lækni frá Hvammstanga til
að annast skólaskoðun. Kom
hann 18. des. með varðskipi
yfir flóann, skoðaði 20 skóla-
börn og tók á móti tugum
manna, er áttu erindi við
hamn. Er sízt að undra, að
fólk notaði sér nærveru lækn-
isins því að þetta er eina
lækniheimsóknin, sem við höf
um fengið í vetur. Sighvatur
hvarf heim aftur samdægurs.
Nokkru eftir áramótin frétt-
ist, að Guðmundur Steinsson
læknir væri kominn til Hólma
víkur og hefði tekið við hér-
aðslæknisstörfum á ný. Fögn-
uðum við þeirri frétt.
Fáum dögum síðar veikt-
ist Guðmundur Valgeirsson
bóndi í Bæ hastarlega og
þurfti að komast undir lækn-
ishendur, þar sem hann hafði
fengið slæmt nýrnakast og
háan hita. Um þær mundir
var veðurofsinn hvað mestur
og síminn bilaður. Kom tal-
stöðin á Finnbogastöðum þá
í góðar þarfir og sagði lækn-
irinn fyrir um lyfjagjafir og
meðferð sjúklingsins, meðan
beðið var færis að koma hon
um suður, og fylgdist stöð-
ugt með líðan hans. En það
varð bið á að sjúkraflugið
heppnaðist, því að annað
hvort var bráðófært veður hér
eða syðra. Eitt sinn, er von
var á flugvél, var brotizt út
á flugvöll, 10 km leið með
sjúklinginn á vagni, sem jarð-
ýta dró, þar sem ófært var
fyrir önnur farartæki. Þar
var beðið unz séð varð, að
flugvélin hafði orðið frá að
hverfa.
Þá var snúið aftur með
sjúklinginn sömu leið til
baka. Þannig leið hver dag-
urinn af öðrum. Hólmavíkur-
læknir hafði stöðugt samband
við sjúkraflugþjónustuna
syðra og sá um að spítala-
pláss væri til taks, þegar á
þyrfti að halda. En hálfur
mánuður leið áður en þyrlu
frá Landhelgisgæzlunni heppn
aðist loks 24. febrúar að
fljúga hingað norður og
sækja sjúklinginn. Lenti hún
milli élja í nístingsköldum
norðanstormi á snævi þökt-
um leikvelli skólabarnanna
hér á Finnbogastöðum, um
5 mín. gang frá Bæ. Flug-
maðurinn stöðvaði ekki hreyfl
ana enda var biðin stutt.
Ferðin suður gekk að óskum.
Líðan sjúklingsins var góð
eftir atvikum, og má vafa-
laust þakka það nauðsynleg-
um lyfjum er hér voru til
staðar og umsagnir Hólma-
víkurlæknis um notkun
þeirra. Sjúklingurinn er nú
í rannsókn á Borgarspítalan-
um.
Hér hefur verið fjölyrt
nokkuð um vanda sem að
höndum getur borið í hvaða
Framhald á 2. síðu.