Morgunblaðið - 12.01.2010, Blaðsíða 33
! "
#
$ %
&"
' ( )
* "
+ , +
-
.
/
0
1
2
3
4
5
-6
HÚN er hörð samkeppnin um
fyrsta sætið á Bíólistanum.
Avatar er nú komin í fyrsta
sætið á ný, eftir fjórar sýning-
arvikur, skýst fram úr Bjarn-
freðarsyni. Mikið hefur verið
fjallað um gríðarlega aðsókn á
Avatar í erlendum fjölmiðlum
og greinilegt að áhugi Íslend-
inga er ekki minni fyrir verk-
inu sem hampað hefur verið
fyrir framúrskarandi tækni-
brellur og tölvuteiknun, sem
og frábæra þrívíddartækni.
Það er greinilega engin
kreppa þegar kemur að bíó-
aðsókn, fólk flykkist í bíó sem
aldrei fyrr.
Tekjur af Avatar hér á landi
nema nú tæpum 90 milljónum
króna frá upphafi sýninga og
hún á greinilega mikið inni
enn.
Þeir sem standa að
Bjarnfreðarsyni geta heldur
ekki kvartað, tekjur af sýn-
ingum á henni nema tæpum
60 milljónum króna í heildina,
þ.e. frá upphafi sýninga.
Myndin var frumsýnd á annan
í jólum og ætti því að eiga nóg
eftir í miðasölu, enda persón-
urnar úr Vakta-þáttunum afar
vinsælar.
Mamma Gógó með 7,9
Nýjasta kvikmynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar, Mamma
Gógó, er í fjórða sæti á listan-
um. Tekjur af henni allt frá
fyrstu sýningum nema um 7,9
milljónum króna. Myndin fékk
prýðilegan dóm hjá Morgun-
blaðinu, fjóra og hálfa stjörnu
eða nær fullt hús stiga. Í
fimmta sæti er svo mynd sem
var frumsýnd um helgina,
gamanmyndin Did You hear
About the Morgans? með
Hugh Grant og Söruh Jessicu
Parker. Eflaust mikið sprellað
þar.
Tekjuhæstu kvikmyndir helgarinnar
The Road Var frumsýnd sl. helgi og er í 7. sæti á lista, enda aðeins sýnd í einum bíó-
sal á landinu. Viggo Mortensen fer með aðalhlutverkið og sést hér munda skotvopn.
Avatar tekur fram
úr Bjarnfreðarsyni
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2010
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„BARA ágætlega,“ svarar Ragnhildur
Steinunn Jónsdóttir, annar tveggja stjórn-
enda Söngvakeppni Sjónvarpsins, spurð að
því hvernig henni hafi litist á fyrstu lögin í
forkeppninni sem flutt voru laugardaginn
síðastliðinn.
„Mér fannst þetta fara af stað með svip-
uðum hætti og í fyrra og síðan finnst mér
þessi keppni alltaf gefa meira og meira í, eftir
því sem nær dregur úrslitunum. Á úrslita-
kvöldinu er þjóðin svo búin að velja þessi sex
bestu lög, að hennar mati, og þá er alltaf
komin einhver rosa spenna, fólk búið að
mynda sér skoðanir og á sitt uppáhaldslag og
allt það,“ bætir Ragnhildur Steinunn við.
Rosalega „plain“
– Verðið þið Eva María með óvæntar uppá-
komur í ár. Klæðaburðurinn kom skemmtilega
á óvart í fyrra, peysurnar og allt það. Verður
eitthvað svipað á ferðinni nú?
„Í fyrra atvikaðist þetta óvart með klæða-
burðinn. Þetta var eiginlega þannig að við vor-
um í rosa miklum vandræðum með það í hverju
við ættum að vera, vildum ekki draga of mikla
athygli að okkur og ákváðum að vera rosalega
„plain“ og fengum tvær peysur hjá einhverjum
húsvörðum í húsinu. Svo fór þetta bara ein-
hvern veginn allt í háaloft, þessar peysur vöktu
svo mikla athygli og við fórum alveg í kerfi.
Þannig að í ár ákváðum við að fara mjög hefð-
bundna leið og reyna að klæða okkur sóma-
samlega fyrir svona keppni en það er aldrei að
vita hvað okkur dettur í hug. Við reynum að
haga okkur ekki eins og gelgjur á sterum en það
er einhvern veginn þannig að þegar við komum
saman og tölum um Eurovision þá verðum við
eitthvað yfirspenntar, höfum svo gaman af
þessu. Þetta er bara keppni sem á að hafa gam-
an af, hlæja þegar við á.“
– Þið ætlið eitthvað að sprella, er það ekki?
„Jújú, við bara sprellum þegar við viljum og
höfum gaman af.“
Lesa alltaf Morgunblaðið
– Það er sérstaklega ánægjulegt að þið skyld-
uð vitna í umfjöllun glöggskyggns blaðamanns
Morgunblaðsins í þættinum um lagið „Is it
True?“ með Jóhönnu Guðrúnu.
„Jájá, einmitt. Við höfum alltaf haft rosa
gaman af því að lesa gagnrýnina á lögin í Mogg-
anum, vöknum á morgnana, opnum Moggann
og lesum alla gagnrýnina. Það er alltaf gaman
að heyra hvað er verið að segja og sérstaklega
gaman að kíkja á það eftir á, þegar maður veit
hvaða lag hefur unnið.“
– Þú hefur líklega hlustað á öll lögin í keppn-
inni núna en mátt væntanlega ekki segja hvað
þér finnst um þau?
„Já, ég er búin heyra eiginlega öll lögin núna.
En nei, þetta er svo vandmeðfarið starf, maður
þarf að vera svo hlutlaus þannig að við reynum
að hlusta á lögin sem sjaldnast. Við hlustum á
þau í generalprufunni þannig að við séum ekki
búnar að mynda okkur skoðanir þegar við skrif-
um textann. Þannig að við reynum að vera mjög
hlutlausar. En auðvitað finnst manni sum lögin
skemmtilegri en önnur, það er bara þannig, en
maður segir ekkert til um það.“
„Reynum að haga
okkur ekki eins og
gelgjur á sterum“
Ragnhildur Steinunn og Eva María leggja sig
fram um að vera hlutlausar í Söngvakeppni Sjón-
varpsins Fengu peysurnar frægu hjá húsvörðum
Morgunblaðið/Eggert
Í fyrra Ragnhildur Steinnunn og Eva María í peysunum sem vöktu mikið umtal og athygli.
Selma Björnsdóttir - Rúnar Freyr Gíslason
Magnús Jónsson - Laddi – Egill Ólafsson
TVEIR VINIR TAKA AÐ SÉR 7 ÁRA
TVÍBURA MEÐ ÁKAFLEGA FYNDNUM
AFLEIÐINGUM
JOHN TRAVOLTA OG ROBIN
WILLIAMS FARA Á KOSTUM Í
ÞESSARI SPRENGHLÆGILEGU MYND
SÝND Í ÁLFABAKKA
FRÁBÆR SPENNUMYND Í
ANDA SCREAM OG I KNOW
WHAT YOU DID LAST SUMMER
ÞÆR ÆTLA AÐ REYNA AÐ ÞAGA
YFIR LEYNDARMÁLI DAUÐANS!
SÝND Í ÁLFABAKKAOG AKUREYRI
BYGGT Á HINNI GRÍÐARLEGU VINSÆLU BÓKASERÍU STEPHENIE MEYER
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI, 2 VIKUR Í RÖÐ!
SÝND Í ÁLFABAKKA
EINHVER FLOTTUSTU BARDAGA-
ATRIÐI SEM SÉST HAFA Í LAAAN-
GAN TÍMA!
„AFÞREYING MEÐ HRÖÐUM HASAR, SJÓNRÆNUM
NAUTNUM... SEM HALDA ATHYGLI ÁHORFANDANS.“
*** H.S.-MBL
HÖRKU HASARMYND
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
OldDogs
nánari upplýsingar ásamt sýnishornum úr stykkjunum má finna á www.
operubio.is og á www.metoperafamily.org
ATH. VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA VERÐA EFTIRTALDAR
ENDURSÝNINGAR Á RÓSARIDDARANUM
miðvikudaginn 13. jan. kl. 18:00
laugardaginn 23. jan kl. 17:00
miðvikudaginn 27. jan. kl. 17:30
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR,
VIP OG 3D MYNDIR
Frá höfundum
Aladdin og Litlu
hafmeyjunnar kemur
nýjasta meistaraverk
Disney
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
BJARNFREÐARSON kl. 8 -10:20 L
AVATAR kl. 7:20 - 10:20 10
BJARNFREÐARSON kl. 5:45 - 8 - 10:20 L
PRINSESSAN... m. ísl. tali kl. 6 L
SORORITY ROW kl. 8 - 10:20 16
BJARNFREÐARSON kl. 5:45 - 8 - 10:20 L
PRINSESSAN... m. ísl. tali kl. 6 L
NINJA ASSASSIN kl. 8 - 10:10 16
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
Stórkostleg teiknimynd þar
sem Laddi fer á kostum í
hlutverki ljósflugunnar Ray
9.01.2010
3 8 9 15 40
0 0 7 2 4
5 7 1 7 2
29
6.01.2010
20 23 24 39 45 46
15 10