Morgunblaðið - 04.02.2010, Page 1
F I M M T U D A G U R 4. F E B R Ú A R 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
28. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«NÆTURVAKTIN
FÉLAGARNIR AFTUR
Á BENSÍNSTÖÐINA
«VERZLÓSÝNING
Jackson kemur til
Íslands í Thriller
6
Nokkuð tíðkast að einstaklingar
nýti sér tilboð flugfélaga og kaupi
sér ódýrt flugfar í þeim tilgangi að
eiga rétt á að kaupa sér gjaldeyri
fyrir hálfa milljón króna.
VIÐSKIPTI
Hömstrun á
gjaldeyri eykst
Vaxtaálag á erlend lán til útflutn-
ingsfyrirtækja fer hækkandi og
margt bendir til þess að vaxandi
fjármögnunarkostnaður hafi víð-
tækar afleiðingar.
Þrengt að útflutn-
ingsfyrirtækjum
Jón Ásgeir Jóhannesson vill ekki
gefa upp hverjir leggja til aukið
hlutafé í 365 miðla, en hlutafé fé-
lagsins verður aukið um milljarð
króna á næstunni.
Ekkert gefið upp
um nýja hluthafa
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
TALIÐ er að fundur Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra með José Manuel Barroso,
forseta framkvæmdastjórnar ESB, í Brussel í
dag og fundir hennar með öðrum lykilmönnum
ESB tengist hugmyndum Samfylkingarinnar
um að hægt sé að semja um nýja lánsfjár-
mögnun vegna Icesave við sjóð á vegum ESB,
sem feli í sér miklu hagstæðari lánskjör en
samið var um við Breta og Hollendinga.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
fer því þó fjarri að samhljómur sé í áherslum
stjórnarflokkanna í þessum efnum, því Stein-
grímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hefur
reifað samskonar hugmyndir um nýja lánsfjár-
mögnun og mun hagstæðari vexti vegna Ice-
save með því að semja um lán frá Norðmönn-
um, á fundum sem fulltrúar stjórnarand-
stöðunnar hafa ítrekað setið á með forsvars-
mönnum ríkisstjórnarinnar, þar sem reynt
hefur verið að ná þverpólitískri samstöðu um
framhald Icesave-viðræðna.
Rætt um vexti á bilinu 2% til 3,7%
Þingmenn stjórnarandstöðunnar, sem rætt
var við í gær, segjast vera langþreyttir á hringl-
andahætti ríkisstjórnarinnar sem í einu orðinu
tali um að nauðsyn sé á þverpólitískri samstöðu
um næstu skref í Icesave en í hinu vilji hún alls
ekki ljá máls á því að samningar við Breta og
Hollendinga verði teknir upp og nýjar viðræð-
ur við þá hafnar, heldur einungis ræða mögu-
leika á því að hægt sé að ná fram samningum
um lægri vexti á lánum vegna Icesave. Skv.
upplýsingum Morgunblaðsins munu ráðherrar
hafa rætt um að hægt væri að semja um vexti á
bilinu 2% til 3,7%. Niðurstaða eigi að liggja fyr-
ir innan örfárra daga.
Reyna að fá hagstæðari
lánskjör í Noregi eða ESB
Samfylkingin lítur til | 6
ÍSLENSKI dansflokkurinn frumflytur í kvöld verkið Endalaus, eftir Norðmanninn Alan Lucien Öyen.
Á æfingum mátti sjá tilþrif dansara við að túlka þetta tilfinningaríka verk undir tónlist Ólafs Arnalds.
HUGSANABROT TÚLKUÐ Í DANSI
Morgunblaðið/Golli
STEFÁN Skjaldarson skattrann-
sóknastjóri segir ljóst að ýmislegt
hafi verið að varðandi hvernig bank-
arnir hafi staðið að framkvæmd
skattalaga. „Það var ekki staðið að
hlutum eins og átti að gera.“
Átta manna hópur á vegum skatt-
rannsóknastjóra og ríkisskattstjóra
hefur síðustu mánuði rannsakað
hvort eitthvað í starfsemi fjár-
málastofnana hafi falið í sér brot á
skattalögum. Stefán sagði að þessari
vinnu hefði miðað vel áfram. Það
hefði komið í ljós að full þörf hefði
verið á að fara í þessa vinnu.
Skúli Eggert Þórðarson rík-
isskattstjóri sagði að borið hefði á
vissri tregðu hjá fjármálastofnunum
að afhenda upplýsingar í tengslum
við þessa vinnu. Hann sagði ekki úti-
lokað að skattayfirvöld yrðu að leita
til dómstóla til að fá umbeðnar upp-
lýsingar. Ríkisskattstjóraembættið
er núna að efla skatteftirlit. | 6
Bankarnir grunaðir
um skattalagabrot
Starfshópur skattsins skoðar bankana
NORÐMENN ætla
að beita sér fyrir því
innan Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins (AGS)
að önnur endur-
skoðun á efnahags-
áætlun fyrir Ísland
fari fram þótt Ice-
save-deilan við Breta
og Hollendinga sé
óleyst. Lars Egeland,
talsmaður Sósíalíska
vinstriflokksins, sagði
í samtali við norska
fréttavefinn ABC í
gærkvöldi að norsk stjórnvöld hefðu breytt um
stefnu varðandi lán til Íslands. Sem kunnugt er
hafa Norðurlandaþjóðirnar hingað til viljað skil-
yrða lán frá þeim, sem tengjast áætlun AGS, við
afgreiðslu Icesave-málsins.
„Þetta er í samræmi við það sem hefur komið
fram í samtölum mínum við norska ráðamenn,“
segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
Fagna tíðindunum
Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri
grænna, segir stjórnvöld hafa beitt sér fyrir því
mánuðum saman að Norðurlöndin styðji okkur
með þessum hætti. „Eftir stendur samt sem áð-
ur að þetta er samnorrænt lán og önnur Norð-
urlönd hafa ekki stigið þetta skref.“
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, fagn-
ar tíðindunum, líkt og Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Framsóknar, og Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Norska skrefinu fagnað | 2
Norðmenn
breyta um
stefnu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Forsætisráðherrar Jóhanna Sigurðardóttir
og Jens Stoltenberg í Bláa lóninu í fyrra.
Vilja aftengja endur-
skoðun AGS Icesave
Í HNOTSKURN
» Breyting hef-ur orðið á af-
stöðu Norðmanna
til lána til Íslands.
» Þeir ætla aðbeita sér fyrir
því að önnur end-
urskoðun AGS fari
fram þótt Icesave-
málið sé óleyst.
MAÐUR sem
býr í fjölbýlis-
húsi í Vestur-
bænum hefur í
þrígang á um
einu ári stefnt
húsfélaginu og
nágrönnum sín-
um fyrir dóm.
Tveimur málum
hefur hann tapað og hefur hann
verið dæmdur til að greiða samtals
820.000 krónur í málskostnað
vegna þeirra.
Í tveimur þessara tilvika hefur
hann stefnt Húseigendafélaginu en
formaður þess segir að málatilbún-
aðurinn sé sannkölluð steypa og að
menn megi ekki komast upp með að
misnota málshöfðunarréttinn til að
draga „Pétur og Pál fyrir dóm að
ósekju og óþörfu“. »12
Samskiptaerfiðleikar í fjöl-
býlishúsi þrisvar fyrir dóm
SAMKVÆMT hafísspá Páls
Bergþórssonar veðurfræðings má
búast við að hafís liggi hér við land
í minna en eina viku á vetrinum.
Spá sína byggir Páll á því að hlýtt
hefur verið á og við Jan Mayen und-
anfarna sex mánuði, en straumar
berast gjarnan frá eynni að Íslands-
ströndum.
Janúar var snjóléttur um allt
land en næstu daga má hins vegar
búast við frosti víða um landið. »4
Hafís í minna en eina viku
hér við land þetta árið