Morgunblaðið - 04.02.2010, Síða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2010
GUÐMUNDUR G.
Gunnarsson, verk-
efnisstjóri og bæj-
arfulltrúi, hefur
ákveðið að gefa
kost á sér í 1. sæti
á lista Sjálfstæðis-
flokksins á Álfta-
nesi, í prófkjöri flokksins sem fram
fer þann 6. febrúar nk.
Guðmundur sækist
eftir fyrsta sæti
KOSIÐ verður til sveitar-
stjórna hér á landi í maí næst-
komandi. Morgunblaðið mun
þangað til reglulega birta frétt-
ir sem tengjast framboðum,
prófkjörum, kosningafundum
o.fl.
Kosningar
árið 2010
HILDUR Dungal,
lögfræðingur og
fyrrum forstjóri
Útlendingastofn-
unar, hefur ákveð-
ið að gefa kost á
sér í 2. sæti í próf-
kjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Kópavogi, sem fram fer
þann 20. febrúar nk.
Hildur Dungal vill 2.
sæti í Kópavogi
ÖRN Jónasson,
viðskiptafræð-
ingur, hefur
ákveðið að gefa
kost á sér í 2.-4.
sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins í
Mosfellsbæ, í próf-
kjöri flokksins sem fram fer þann 6.
febrúar nk.
Örn Jónasson sækist
eftir 2.-4. sætinu
ERLING Ásgeirs-
son, framkvæmda-
stjóri og formaður
bæjarráðs Garða-
bæjar, gefur kost á
sér í 1. sæti í próf-
kjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Garða-
bæ sem fram fer þann 6. febrúar
næstkomandi.
Erling Ásgeirsson
stefnir á 1. sæti
STURLA Þor-
steinsson, kennari
og varabæjar-
fulltrúi, hefur
ákveðið að gefa
kost á sér í 4. sæti í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í
Garðabæ, sem fram fer þann 6.
febrúar nk.
Sturla Þorsteinsson
stefnir á 4. sæti
STUTT
FORVAL Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs í Kópavogi fyr-
ir bæjarstjórnarkosningarnar í
vor verður haldið laugardaginn
27. febrúar nk.
Eftirtaldir gefa kost á sér: Arn-
þór Sigurðsson, kjötiðnaðarmað-
ur og nemi í tölvunarfræði, Guð-
björg Sveinsdóttir, geðhjúkrunar-
fræðingur, Guðný Dóra Gests-
dóttir, ferðamálafræðingur,
Gunnar Sigurðsson, stjórnmála-
og stjórnsýslufræðingur, Hregg-
viður Norðdahl, jarðfræðingur,
Karólína Einarsdóttir, líffræð-
ingur, Ólafur Þór Gunnarsson,
læknir og bæjarfulltrúi og Þórir
Steingrímsson, rannsóknarlög-
reglumaður.
Átta gefa kost á sér
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
MAÐUR sem býr í fjölbýlishúsi við
Fornhaga í Reykjavík hefur á rúm-
lega einu ári höfðað þrjú dómsmál
á hendur nágrönnum sínum og hús-
félaginu. Í einu málinu er Húseig-
endafélaginu og lögfræðingi hjá fé-
laginu einnig stefnt. Maðurinn
hefur tapað tveimur þessara mála
og verið dæmdur til að greiða þeim
sem hann stefndi fyrir dóm samtals
820.000 krónur. Maðurinn naut að-
stoðar Sigurðar Gizurarsonar
hæstaréttarlögmanns í a.m.k. hluta
af málunum.
Vildi fá 115.000 krónur en
skuldaði 150.000 krónur
Fyrsta málið er frá því í janúar
2009 en þá krafðist maðurinn þess
að húsfélagið yrði dæmt til að
greiða honum um 115.000 krónur
fyrir viðhaldsvinnu fyrir húsfélagið.
Ef ekki yrði fallist á það krafðist
hann að kona sem býr í sama stiga-
gangi yrði dæmd til að greiða
reikninginn enda hefði hún samið
við hann um verkið. Konan sagði á
hinn bóginn að hún hefði sagt að
hann gæti fengið 15.000 krónur fyr-
ir verkið, að því gefnu að aðrir í
stigaganginum myndu samþykkja
það. Hún benti einnig á að aðrir
íbúar í stigaganginum hefðu unnið
að viðhaldi án þess að gera hús-
félaginu reikning. Fram kom að á
þessum tíma skuldaði maðurinn
húsfélaginu 150.000 krónur. Hann
tapaði málinu og var dæmdur til að
greiða konunni og húsfélaginu sam-
tals 120.000 krónur í málskostnað.
Lögmaður mannsins í þessu máli
var Sigurður Gizurarson hrl.
„Vegna samskiptaerfiðleika“
Með þessum dómi var deilum
mannsins við nágranna sína alls
ekki lokið, raunar þvert á móti. Í
ágúst 2009 stefndi hann átta ná-
grönnum sínum, húsfélaginu og
Húseigendafélaginu fyrir dóm.
Stefnan er mikil að vöxtum eða alls
37 blaðsíður og því lengri en ákær-
an í Baugsmálinu, svo dæmi sé tek-
ið. Að þessu sinni flutti maðurinn
málið sjálfur en hann er ekki lög-
lærður.
Þessu máli var vísað frá dómi. Í
niðurstöðum Sigrúnar Guðmunds-
dóttur héraðsdómara segir m.a. að
mál þetta „sé tilkomið vegna erfið-
leika í samskiptum hans og annarra
íbúa“. Í málinu sé ekki gerð krafa
um peningagreiðslur né um viður-
kenningu á tiltekinni kröfu heldur
sé gerð krafa um að „atferli“ þeirra
sem er stefnt sé ólögmætt. Með
þessu sé verið að krefja dóminn um
álit á ýmsum lögfræðilegu efnum
en slíkt standist ekki lög um einka-
mál. Þar að auki sé lýsing málssá-
stæðna ekki gagnorð og skýr, sam-
hengið óljóst sem og sakarefnið og
ekki sé heldur gerð grein fyrir því
hvaða kröfur eru gerðar á hendur
hverjum og einum. Maðurinn var
dæmdur til að greiða þeim sem
hann stefndi 50.000 krónur í máls-
kostnað, samtals 500.000 krónur.
Þessa frávísun kærði maðurinn til
Hæstaréttar
Eins og fyrr segir flutti mað-
urinn þetta mál sjálfur í héraði og
það gerði hann einnig í Hæstarétti.
Í greinargerðum lögmanna ná-
granna hans og Húseigendafélags-
ins til Hæstaréttar kemur reyndar
fram að undir rekstri málsins í hér-
aðsdómi hafi maðurinn sagt að Sig-
urður Gizurarson hafi útbúið stefn-
una fyrir sig.
Bar sakir á dómarann
Í kærunni til Hæstaréttar segir
að réttur hafi verið illilega brotinn
á honum og að íslensk réttarþróun
færi mikils á mis ef málið fengi
ekki efnisdóm. Þá sakar hann hér-
aðsdómarann um að hafa virt að
vettugi þá skyldu sína að leiðbeina
ólöglærðum manni sem flytur mál
sitt fyrir dómi. Dómarinn hafi
reyndar tvívegis „vísvitandi“ látið
bóka að hún hefði gætt leiðbeining-
arskyldu. „Kærandi lítur svo á, að
dómarinn hafi með röngum yfirlýs-
ingum sínum og bókunum vísvit-
andi falsað gögn héraðsdómsmáls-
ins,“ segir í kærunni. Atferli
dómarans varði við almenn hegn-
ingarlög og við þeim liggi 2-3 ára
fangelsi. Þá hefði athugsemd dóm-
arans um að kæra til Hæstaréttar
kynni að kosta mikil fjárútlát verið
til þess fallin að hræða manninn frá
því að leita réttar síns.
Kæran varð til lítils því Hæsti-
réttur staðfesti frávísun málsins
frá héraðsdómi sl. mánudag, í mjög
stuttorðum dómi. Maðurinn var um
leið dæmdur til að greiða þeim sem
hann stefndi 200.000 krónur í máls-
kostnað
Meiðyrðamál í pípunum
Í nóvember sl. höfðaði maðurinn
þriðja málið, að þessu sinni gegn
þremur nágrönnum sínum sem
mynda stjórn húsfélagsins, gegn
lögfræðingi hjá Húseigendafélag-
inu og gegn Húseigendafélaginu.
Að þessu sinni krafðist maðurinn
þess að hinir stefndu greiddu hon-
um eina milljón króna vegna „ólög-
legrar aðfarar og meiðyrða gagn-
vart sér“.
Hann sakar stjórn húsfélagsins
m.a. um að hafa aldrei boðað sig á
stjórnarfundi, þó að hann sé í
stjórn og um að hafa meinað hon-
um að sjá bókhaldsgögn. Þá sakar
hann lögfræðing Húseigendafélags-
ins um að taka þátt í aðför gegn sér
með tveimur bréfum sem bera
fyrirsögnina „Áskorun um betri
samskiptahætti“. Bæði bréfin séu
full af ósannindum, níði og rang-
færslum.
Málið verður tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur 9. febrúar
næstkomandi.
Hefur þrisvar stefnt
nágrönnum fyrir dóm
Formaður Húseigendafélagsins segir að kröfur mannsins séu „sannkölluð steypa“
Morgunblaðið/Heiddi
Fornhagi Þrjú dómsmál á hendur nágrönnum á rúmu ári.
Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigenda-
félagsins og hæstaréttarlögmaður, hefur varið
Húseigendafélagið í þeim málum sem maðurinn
hefur höfðað gegn því. Einnig var hann til varna
fyrir átta nágranna mannsins í því máli sem
Hæstiréttur vísaði frá dómi sl. mánudag.
Í greinargerð Sigurðar, sem ítarlega er vísað til í
héraðsdómnum, segir að málatilbúnaður mannsins
sé „allur með endemum og ólíkindum og fari ber-
lega í bága við réttarfarslög í flestum atriðum.
Hann er sannkölluð steypa eins og stundum er
sagt. Á það við um aðildina, kröfugerðina, reifun
málavaxta og málsástæðna og lagalegan rökstuðning, sem byggist
að mestu á ranghugmyndum, rangtúlkunum og lagalegum misskiln-
ingi. Kröfugerðin er út og suður, óljós og ruglingsleg.“ Þá sé sakar-
efnið óljóst og kirfilega falið í málalengingum og vaðli. Máltilbún-
aðurinn sé skólabókardæmi um „forkastanlegan málatilbúnað og
lagalegt og réttarfarslegt gönuhlaup.“ Dómur sem myndi fallast á
kröfurnar gæti aldrei orðið annað en „réttarfarslegt stórslys“.
Veldur ama, leiðindum, fyrirhöfn og kostnaði
Sigurður bendir á að það sé ekkert gamanmál að þurfa að verja
hendur sínar í dómsal. Vitaskuld sé rétturinn til að leita til dómstóla
heilagur en þeim rétti fylgi ábyrgð. „Menn eiga ekki að komast upp
með að misnota málshöfðunarréttinn og draga Pétur og Pál fyrir
dóm að ósekju og óþörfu. Menn eiga ekki að komast upp með að
stefna saklausu fólki til hægri og vinstri og valda því ama, leið-
indum, fyrirhöfn og kostnaði sem fylgir því að taka til varna í dóms-
máli.“
Þessu hafnaði maðurinn og sagði kröfugerð sína skýra og glögga.
Skólabókardæmi um réttarfarslegt gönuhlaup
Sigurður Helgi
Guðjónsson
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
FJÁRMÁLARÁÐHERRA var heitt
í hamsi á Alþingi í gær þar sem m.a.
var rætt um hvort heppilegt hefði
verið að fá vanan samningamann til
að leiða viðræður um Icesave í stað
Svavars Gestssonar. „Það er mál að
þessu linni!“ hrópaði Steingrímur J.
Sigfússon í ræðupúlti. „Það skal
verða öllum til skammar, sem reyna
að vera á ómerkilegum mannaveið-
um í þessu máli, til að komast burtu
frá eigin ábyrgð.“
Steingrímur benti á að fyrri ríkis-
stjórn hefði ekki kallað til erlendan
sérfræðing til að leiða samninga-
nefnd sem hún skipaði, heldur Bald-
ur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðu-
neytisstjóra. Ekki væri þó rétt að
sakast við Baldur eða aðra sem að
beiðni stjórnvalda tóku að sér að
reyna að leysa þetta ömurlega Ice-
save-mál, heldur frekar þá sem
leyfðu vandanum að verða til.
Einnig voru gerð að umtalsefni
ummæli Steingríms frá í fyrradag
þar sem hann sagðist telja að brátt
kæmu fram upplýsingar sem ekki
hefði verið hægt að nota í opinberri
umræðu en myndu skýra hversu erf-
ið staða stjórnvalda væri.
Benti Illugi Gunnarsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, á að ríkis-
stjórnin hefði ítrekað haldið því fram
að öll gögn í málinu lægju fyrir sem
bersýnilega stangaðist á við áð-
urnefnd ummæli Steingríms.
Ráðherrann svaraði því þannig til
að vegna umfjöllunar í hollenska
þinginu hefðu nýjar upplýsingar
komið fram á síðustu dögum. Þá
benti hann á að í möppum þing-
manna lægju trúnaðargögn sem
hefði ekki mátt nota í opinberri um-
ræðu.
Loks sagði hann ástæðu til að
ætla að í skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis myndu birtast upplýsingar
sem aðrir innan stjórnsýslunnar
hefðu ekki haft aðgang að.
Gagnrýndi mannaveiðar á Alþingi
Hart tekist á í umræðum á Alþingi í gær Fjármálaráðherra sagði mál að
ómerkilegum mannaveiðum linnti Rætt um meint leyniskjöl í Icesave-málinu
Morgunblaðið/Ómar
Reiður Ráðherra sagði mál að
ómerkilegum mannaveiðum linnti.