Morgunblaðið - 04.02.2010, Blaðsíða 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2010
frænda míns með gleði og þakklæti
fyrir kynni okkar og samveru í
æsku og á fullorðinsárum. Við
Maggi og börnin okkar sendum
Heiðu, Guðnýju, Þórólfi og Þor-
steini Jökli, Áslaugu frænku og
systkinum Gulla okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur og biðjum Guð að
blessa þau og minningu um góðan
dreng, frænda og vin.
Elín Jónasdóttir, Magnús M.
Norðdahl og börn.
Góður maður er fallinn frá.
Gunnlaugur var einn af þeim sem
aðrir horfðu upp til, ég var einn af
þeim. Hann var hæglátur og hóg-
vær maður en ávallt reiðubúinn til
aðstoðar fyrir þá sem til hans leit-
uðu. Arfleifð hans mun lifa áfram í
börnum hans, sem hann var afar
stoltur af. Hans er sárt saknað, en
eftir lifir góð minning um hugljúfan
og einstakan mann, sem margir nú
syrgja.
Vinur, þú sefur einn við opinn glugga,
æskunnar brunn í svefnsins gylltu festi
sígur þú í og safnar fullum höndum.
Hugur man þinn háa pálmaskugga,
hafi ég komið líkur þreyttum gesti
utan frá lífsins eyðihvítu söndum.
(Jóhann Sigurjónsson.)
Megi guð geyma þig kæri
frændi, og styrkja fjölskyldu þína á
þessum erfiðu tímum. Þú munt
ávallt eiga stað í hjarta mínu.
Hjalti Nielsen, Lundi, Svíþjóð.
Góður félagi og vinur Gunnlaug-
ur Nielsen rafmagnsverkfræðingur
er fallinn frá um aldur fram eftir
erfið veikindi. Við félagarnir um 20
manns höfum farið til laxveiða síð-
astliðna þrjá áratugi og í veiðiferð
sumarið 2007 var okkur ljóst að
eitthvað alvarlegt var að hjá Gulla
því aldrei þessu vant varð hann að
fá aðstoð við að klæða sig í og úr
hlífðarfötunum. Hann sem hafði
ávallt verið manna hraustastur og
duglegastur. Mánuði seinna kom
dómurinn þungi um að vinur okkar
væri kominn með MND þann ill-
víga sjúkdóm sem gefur þeim engin
grið er hann fá.
Kynni okkar Gulla hófust er
hann kom til starfa á deild minni
hjá RARIK um skeið áður en hann
hélt til Danmerkur til þess að ljúka
meistaranámi í verkfræði. Að námi
loknu hélt hann á vit annara verk-
efna og fyrirtækja en við vorum þó
ávallt í góðu sambandi. Aðalsmerki
Gulla í starfi voru fagmennska og
vandvirkni enda kom hann að
mörgum af stærri verkum í raf-
orkuiðnaðinum sem á dagskrá voru
í gegnum tíðina. Félagsmál voru
Gulla í blóð borin og tók hann
drjúgan þátt m.a. í störfum á veg-
um Stjörnunnar í Garðabæ svo og
Verkfræðingafélagsins. Við ár og
vötn landsins stundaði hann veiði af
miklum áhuga og ástríðu. Það feng-
um við félagar hans að upplifa
hvort sem við vorum við veiðar í
Hítará eða annars staðar þá var
Gulli yfirleitt aflahæstur enda lagði
hann mikið í undirbúning og
ástundun.
Að leiðarlokum eru Gulla færðar
kærar þakkir fyrir ánægjuleg sam-
skipti í starfi og leik. Heilindi,
drengskapur og kímni voru ein-
kenni hans. Það voru forréttindi að
hafa kynnst honum og átt hann að
vini. Með Gulla er genginn maður
sem lagði sitt að mörkum til upp-
byggingar í þjóðfélaginu af sam-
viskusemi og heiðarleika. Heiðu,
Guðnýju, Þórólfi, Þorsteini Jökli og
öðrum aðstandendum sendi ég mín-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Steinar Friðgeirsson.
Gunnlaugur Nielsen mun verða
samferðafólki sínu afar minnisstæð-
ur. Bæði þeim sem kynntust honum í
starfi og ekki síður okkur hinum sem
áttum hann sem náinn vin. Þeir sem
urðu þeirra forréttinda aðnjótandi
að eiga samleið með honum um
skeið, sjá á bak góðum hugulsömum
félaga sem gerði líf okkar fegurra
með nærveru sinni.
Í gegnum árin ferðuðumst við
töluvert saman innanlands sem utan
og oftar en ekki voru konur okkar
með í för. Þær stundir sem við þann-
ig áttum saman hafa alltaf verið mér
og Gerðu konu minni ofarlega í huga
sem miklar gleðistundir, en sem
ferðafélagar voru Gunnlaugur og
Heiða miklir gleðigjafar.
Þegar Gunnlaugur greindist með
þann sjúkdóm sem um síðir lagði
hann að velli þá tók ég eftir því að
margir í mínu umhverfi sem þekktu
hann vel lögðust í leit að einhverri
þeirri lausn sem gæti hjálpað vini
okkar. Sumir leituðu á netinu, aðrir
höfðu samband við aðila innanlands
sem utan í leit að einhverju sem gæti
hjálpað. Enginn vildi sætta sig við að
vinur okkar myndi bíða lægri hlut í
baráttu sinni við þennan vágest. Því
miður gátum við ekki hjálpað honum
með öðru en samkennd og stuðningi.
Sem veiðimaður var hann engum
líkur, en í veiðiferðunum kom svo vel
fram hvaða mann hann hafði að
geyma. Hann las ár og umhverfi sem
opna bók, enda veiðimaður af Guðs
náð, rétt eins og afkomendur hans.
Oft veiddum við saman án þess að ég
yrði var, en alltaf sá hann til þess að
fisklaus færi ég ekki heim. Sagði að
hann vildi ekki að Gerða gerði grín
að veiðileysi mínu. Minnist ég þess
er við vorum sex saman í veiði og þó
svo að allir legðu sig fram í veiðinni
þá var hann einn að fá‘ann. Ekki
hætti hann veiði fyrr en allir höfðu
fengið sinn lax. Sem félagi var hann
glaðlyndur og gjafmildur einstak-
lingur sem kunni að meta allt það
góða sem lífið hefur upp á að bjóða
og gaf svo ríkulega af sér sjálfur.
Hvað hef ég gert til að verðskulda
jafn yndislega konu og hana Heiðu,
sagði hann stundum er við sátum
saman og teyguðum gott vín. Ekki
hafði hann svar á reiðum höndum,
en það vita allir sem þekkja þau hjón
að Heiða er ein þeirra einstaklinga
sem gera heiminn betri með nær-
veru sinni og þá sem umgangast
hana. Gunnlaugur Nielsen hefur því
þannig notið meiri blessunar en
flestir. Hann var einnig afar stoltur
af börnunum sínum og talaði oft um
þau sem föðurbetrunga. Þeir sem
þau þekkja vita að þarna komst
hann vel að orði.
Aðdáunarverð er umhyggja og
samstaða fjölskyldunnar fyrir Gunn-
laugi í veikindum hans.
Sorgin hefur heimsótt Heiðu, Þór-
ólf, Guðnýju og Jökul sem sjá nú á
bak eiginmanni og föður eftir bar-
áttu hans við sjúkdóm sem kom eins
og hendi væri veifað, öllum að óvör-
um. Við Gerða færum ykkur okkar
innilegustu samúðarkveðjur og biðj-
um góðan Guð að veita ykkur styrk í
ykkar miklu sorg.
Gunnlaugur Nielsen, við söknum
þín.
Þórður og Gerða.
Fleiri minningargreinar um Gunn-
laug Nielsen bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
DAVÍÐ GUÐBERGSSON,
Kirkjusandi 5,
Reykjavík,
andaðist föstudaginn 22. janúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
5. febrúar kl. 13.00.
Þórunn Herborg Hermannsdóttir,
Svanhildur Davíðsdóttir, Karl Eysteinn Rafnsson,
Guðbergur Davíð Davíðsson, Halldóra Káradóttir,
Baldur Þór Davíðsson, Kolbrún Gísladóttir,
Esther Björk Davíðsdóttir, Birkir Þór Elmarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÓLAFUR ÞORKELL JÓNSSON
vélfræðingur,
Lynghaga 9,
Reykjavík,
lést mánudaginn 25. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug.
Sérstakar þakkir færum við öllum þeim er önnuðust hann í veikindum
hans.
Anna Margrét Ólafsdóttir,
Ólafur K. Ólafsson, Lára Gunnarsdóttir,
Kristjana Þ. Ólafsdóttir, Stefán Örn Stefánsson,
Anna V. Ólafsdóttir, Óskar Jónsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Yndislegur sonur okkar, bróðir, barnabarn og
frændi,
BIRGIR ELÍS BIRGISSON,
Logafold 117,
Reykjavík,
lést föstudaginn 29. janúar.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju föstu-
daginn 5. febrúar kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna.
Birgir Guðmundsson, Guðrún Elísdóttir,
Andri Steinn Birgisson,
Birna Kolbrún Birgisdóttir,
Guðmundur Óskarsson, Sjöfn Kjartansdóttir,
Birna Júlíusdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR AMLIN KRISTJÁNSSON,
Silfurgötu 23,
Stykkishólmi,
lést á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi
föstudaginn 29. janúar.
Útför hans fer fram frá Stykkishólmskirkju
föstudaginn 5. febrúar og hefst athöfnin kl. 14.00.
Guðrún Alma Sigurðardóttir,
Rannveig Sigurðardóttir, Axel Garðar Hjartarson,
Selma Rós Amlin, Svanur Jóhannsson,
Guðmundur Jón Amlin,
Lea Rakel Amlin, Sigmar Tryggvason
og barnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
SIGURÐUR HAUKUR EIRÍKSSON,
Víðimel 60,
lést mánudaginn 1. febrúar.
Jarðsungið verður frá Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 11. febrúar kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent
á Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem fengið hefur
krabbamein.
Auður Ingvarsdóttir,
Rannveig Sigurðardóttir, Hermann Þórisson,
Freyr Hermannsson, Helga Rún Runólfsdóttir,
Nanna Hermannsdóttir,
Hlynur Freysson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGÞRÚÐUR INGÓLFSDÓTTIR,
Dúa,
hjúkrunarfræðingur,
Krummahólum 10,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum aðfaranótt þriðjudagsins
2. febrúar.
Útför verður auglýst síðar.
Helga Kr. Olsen, Ingvar Valgeirsson,
Ingólfur M. Olsen, Tinna Sigurðardóttir,
Eydís E. Olsen, Sean Maverich
og barnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og mágur,
BJÖRN JÓNSSON
fv. skólastjóri Hagaskóla,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti
miðvikudaginn 3. febrúar.
Útförin fer fram frá Neskirkju mánudaginn
8. febrúar kl. 15.00.
Heiður Agnes Björnsdóttir, Hákon Óskarsson,
Magnús Jón Björnsson, Ragna Árnadóttir,
Kjartan Hákonarson, Ragnheiður Kristín Sigurðardóttir,
Brynhildur Magnúsdóttir,
Agnes Guðrún Magnúsdóttir,
Helgi Magnússon, Björg Baldvinsdóttir.
✝
Móðir okkar og amma,
INGIBJÖRG INGIMARSDÓTTIR,
áður til heimilis á Sléttuvegi 7,
Reykjavík,
andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund, sunnudaginn 31. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 8. febrúar kl. 11.00.
Haraldur Brynjólfsson,
Ingimar Brynjólfsson
og barnabörn.