Morgunblaðið - 04.02.2010, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 04.02.2010, Qupperneq 25
Dagbók 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2010 Orð dagsins: Hver er sá, er mun gjöra yður illt, ef þér kappkostið það sem gott er? (1Pt. 3, 13.) Snjókoma veldur usla í Danmörkuog Danir mega búast við köldu veðri næstu vikurnar. Í Vancouver var hins vegar svo hlýtt í janúar að það á sér engin fordæmi frá því mæl- ingar hófust. Í Vancouver hefjast ól- ympíuleikar innan tíu daga og snjó- leysið veldur skipuleggjendum þeirra áhyggjum. Hlýindin í Vancou- ver eru rakin til náttúrufyrirbærisins El Nino, sem skýtur upp kollinum á nokkurra ára fresti í austurhluta Kyrrahafsins og getur staðið yfir í ár eða meira. El Nino merkir barnið. Nafnið er vísun í jesúbarnið og dreg- ið af því að fyrirbærið hefst yfirleitt rétt eftir jól. Einnig hefur verið óvenjuhlýtt í norðurhluta Atlants- hafsins. Á meginlandi Evrópu hafa snjóþyngsli áhrif á umferðina, en á Grænlandi er snjóleysið til trafala. Ekki er talið óhætt að fara um á hundasleðum í norðvesturhluta landsins vegna þess að slóðarnir eru lagðir ís. Í fréttum þar sem varað er við færðinni á Grænlandi er tekið fram að ekki sé um brandara að ræða. x x x Inn um lúgur margra landsmannahefur undanfarna daga borist póstur, sem merktur er Nasdaq. Hélt Víkverji fyrst að hér væri komin til- kynning um óvænta eign á banda- ríska hlutabréfamarkaðnum eða níg- erískur svikamyllupóstur, en þegar nánar var að gáð stóð einnig Verð- bréfaskráning Íslands á umslaginu. Í umslaginu var bréf með upplýsingum um hlutabréfaeign Víkverja. Sú eign var reyndar ekki mikils virði fyrir hrun, en nú er hún einskis virði. Fyr- irtækin, sem Víkverji átti í hlutabréf, eru gjaldþrota. x x x Fannst Víkverja það bera heldurundarlegu skopskyni vitni að senda út upplýsingar um verðlausar eignir, áminningu um afleitar fjár- festingar. Í skýringum á bakhlið bréfsins var þó tekið fram með sér- kennilega daufu letri, eins og til að af- saka sendinguna, að halda beri hluta- bréfaeign til haga þótt um sé að ræða gjaldþrota fyrirtæki þar til þrotabúin hafi verið gerð upp. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 allhvassan vind, 8 smáöldur, 9 beina, 10 reið, 11 áans, 13 korn, 15 með lús, 18 skerti, 21 stórfljót, 22 munnbita, 23 bjórnum, 24 gata í Reykjavík. Lóðrétt | 2 kaka, 3 pen- ings, 4 kerling, 5 veið- arfærið, 6 espa, 7 nagli, 12 spils, 14 sjó, 15 sjá, 16 vinningur, 17 botnfall, 18 skjót, 19 illt, 20 slát- urkeppur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 detta, 4 sólin, 7 lúkan, 8 ógnar, 9 art, 11 reif, 13 hráa, 14 ólmur, 15 fjöl, 17 ólar, 20 kal, 22 undin, 23 ellin, 24 iðrar, 25 tjara. Lóðrétt: 1 dílar, 2 takki, 3 asna, 4 snót, 5 lúnar, 6 narra, 10 romsa, 12 fól, 13 hró, 15 fauti, 16 öldur, 18 lalla, 19 ranga, 20 knár, 21 lest. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú átt ekki að snúa upp á þig þótt þér falli ekki öll þau ráð sem vinir þínir gefa þér. Láttu því hendur standa fram úr ermum og komdu þeim málum í fram- kvæmd sem hafa setið á hakanum. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það er hætt við að þú verðir svikin/n í dag. Njóttu þess að leika við börnin, fara í bíó eða hitta vini þína. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þig langar að vita hvað þú átt að leggja fyrir þig í þessu lífi. Kannski er ástæðan sú að þú hefur framkvæmt í stað þess að hafa áhyggjur upp á síðkastið. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Samræður innan fjölskyldunnar verða þýðingarmeiri núna og á næstu vik- um en oft áður. Trú þín á fjölskyldunni veitir þér hugrekki til þess að mæta því sem koma skal. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú verður að standa fast á þínum rétti, hver svo sem að þér sækir. Ef hugur þinn beinist að sama hlutnum aftur og aft- ur þá veistu hvað það þýðir. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Til að ná árangri verður þú að hunsa litlu röddina innra með þér sem segir: „Þú getur þetta ekki“. Þú getur ef þú vilt, mundu það. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Nú þegar tæknin hefur tekið flest völd verður þú að fylgjast með sem aðrir og tileinka þér það sem hún hefur upp á að bjóða. Ekki snuða sjálfa/n þig bara til þess eins að vera kurteis. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Himintunglin raða sér upp og hjálpa þér með einbeitinguna. Farðu þér hægt, eyddu og sparaðu álíka mikið. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Mikilvægar samræður eiga sér stað. Ef þú einblínir á þær verður þú of þröngsýn/n, en ef þú hunsar það sem máli skiptir, hrynur allt. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú þarft ekki að láta eins og engum líki við þig. Hafðu auga á smáat- riðunum því þau geta vegið þungt. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Til þess að sanna ágæti hug- mynda þinna er þér nauðugur einn kostur að framkvæma þær. Dagurinn í dag færir þig skrefi nær markmiði þínu. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú hefur sankað að þér upplýs- ingum og getur nú farið að vinna úr þeim. Þú óttast kringumstæður, sem þú ræður ekki við. Notaðu hrós í stað skamma, nýtt samkomulag í stað lögsóknar. Stjörnuspá 4. febrúar 1956 Verslunarbanki Íslands var stofnaður. Hann varð hluti af Íslandsbanka árið 1990. 4. febrúar 1968 Fárviðri gekk yfir Vestfirði og var verst á Ísafjarðardjúpi. Heiðrún II frá Bolungarvík fórst með sex mönnum. Varð- skipið Óðinn bjargaði átján manna áhöfn breska togarans Notts County sem strandaði við Snæfjallaströnd. Annar breskur togari, Ross Clevel- and, sökk og fórust nítján manns en einn, Harry Eddom, fannst á lífi eftir hrakninga í hálfan annan sólarhring. 4. febrúar 1968 Snjóflóð féll á tvö hús við Suð- urgötu á Siglufirði en engin slys urðu. Tæpum sjö árum síðar féll aftur snjóflóð á sömu hús. 4. febrúar 2003 Listasafn Háskóla Íslands fékk 894 verk eftir Þorvald Skúlason listmálara að gjöf úr dánarbúi Sverris Sigurðs- sonar, skissur, teikningar, vatnslitamyndir o.fl. Áður höfðu Sverrir og Ingibjörg Guðmundsdóttir kona hans gefið Háskólanum 140 lista- verk. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Björn Jónsson, Suðurbraut 2 í Hafnarfirði, er níutíu og fimm ára í dag, 4. febr- úar. 95 ára MARGT verður um manninn á dvalarheimilinu Höfða á Akranesi í dag þegar Sigríður Guðmunds- dóttir fagnar 100 ára afmæli sínu með kaffiboði fyrir ættingja og vini. Afkomendur Sigríðar eru 116 talsins í fjórum ættliðum, en sjálf er hún elst í tíu systkina hópi. Sigríður er fædd og uppalin á Sigurðsstöðum, en giftist ung Þórði Þ. Þórðarsyni og fluttist þá á Hvítanes þar sem þau héldu heimili þar til Þórður lést árið 1989. Saman ráku þau flutninga- og rútu- fyrirtækið ÞÞÞ, en Sigríður var fyrst kvenna í Borgarfirði til að taka bílpróf árið 1930 og keyrði bæði rútur og vörubíla. Sigríður er afskaplega ern eftir aldri, sinnir handavinnu, spilar vist a.m.k. einu sinni í viku, fer í öll þau ferðalög sem henni bjóðast, fylgist vel með þjóðmálum og er áköf knvattspyrnuáhugakona enda amma tveggja fyrrverandi landsliðsmanna. Spurð um eftirminnileg afmæli í tímans rás segir Sigríður aldrei hafa viljað láta hafa fyrir sér í tilefni dagsins og því sé hún löngu búin að gleyma fyrri afmælisdögum. Ætt- ingjar Sigríðar telja að skýra megi langlífi hennar með því hversu já- kvæð og léttlynd Sigríður hafi alla tíð verið. Sigríður Guðmundsdóttir 100 ára Kaffiboð í tilefni dagsins Sudoku Frumstig 7 5 6 2 8 6 2 1 7 9 8 4 9 6 1 1 7 2 4 2 4 9 6 1 8 5 5 5 4 9 2 7 5 1 3 8 7 1 9 2 3 8 3 1 7 7 9 4 8 1 6 3 2 9 2 8 9 5 6 8 3 1 4 5 3 9 2 1 8 5 6 2 4 1 6 5 4 7 1 2 8 3 9 3 2 7 9 4 8 1 5 6 8 9 1 5 3 6 2 4 7 9 8 6 4 5 1 7 2 3 1 4 3 2 6 7 9 8 5 5 7 2 8 9 3 4 6 1 7 1 5 3 2 4 6 9 8 2 3 8 6 7 9 5 1 4 4 6 9 1 8 5 3 7 2 5 2 4 3 9 1 8 6 7 1 3 6 8 7 4 9 2 5 8 9 7 5 6 2 4 1 3 7 5 3 1 2 8 6 4 9 6 4 1 9 5 7 3 8 2 9 8 2 4 3 6 7 5 1 2 7 8 6 1 9 5 3 4 4 1 5 7 8 3 2 9 6 3 6 9 2 4 5 1 7 8 2 8 7 9 5 3 6 4 1 4 6 9 2 8 1 5 7 3 3 5 1 7 4 6 9 2 8 8 1 6 5 7 2 3 9 4 9 2 5 4 3 8 1 6 7 7 3 4 6 1 9 8 5 2 6 9 3 8 2 7 4 1 5 5 7 8 1 6 4 2 3 9 1 4 2 3 9 5 7 8 6 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 4. febrúar, 35. dagur ársins 2010 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. Rf3 Bg7 5. Db3 dxc4 6. Dxc4 0-0 7. e4 a6 8. Be2 b5 9. Db3 c5 10. dxc5 Be6 11. Dc2 Rbd7 12. Be3 Rg4 13. Bd4 Rde5 14. Rxe5 Rxe5 15. Hd1 Da5 16. 0-0 Hfd8 17. b3 Staðan kom upp í heimsmeistara- keppni landsliða sem lauk fyrir skömmu í Bursa í Tyrklandi. Ísraelski stórmeistarinn Emil Sutovsky (2.657) hafði svart gegn Egyptanum Moha- med Ezat (2.471). 17. … Hxd4! 18. Hxd4 Rc6! svartur fær nú tvö létta menn fyrir hrók. 19. Hdd1 Bxc3 20. h3 Rd4 21. Dd3 Dxa2 22. Bg4 Bxg4 23. hxg4 Dxb3 taflið er nú léttunnið á svart. 24. Kh1 b4 25. Hc1 a5 26. Hfd1 a4 27. e5 Dd5 28. c6 Dxc6 29. Dxd4 Bxd4 30. Hxc6 Bxe5 31. Hc4 a3 og hvítur gafst upp saddur lífdaga. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Hart barist. Norður ♠874 ♥ÁDG94 ♦Á54 ♣D4 Vestur Austur ♠Á ♠G105 ♥1073 ♥862 ♦G1086 ♦932 ♣KG985 ♣Á732 Suður ♠KD9632 ♥K5 ♦KD7 ♣106 Suður spilar 4♠. Í tvímenningi Bridshátíðar er raðað eftir stöðu, þannig að efstu pör hverju sinni spila innbyrðis. Lokaumferðin var fjörug. Júlíus Sigurjónsson og Þröstur Ingimarsson mættu Upmark og Wrang á fyrsta borði, en sigurveg- arar mótsins, Fredin og Gottlieb, spiluðu á móti Jóni Baldurssyni og Þorláki Jónssyni á öðru borði. Wrang og Upmark voru í brjálæðislegri toppaleit og stýrðu sögnum í 3G. Þröst- ur kom út með lauf og vörnin tók 6 slagi. Hitt borðið var vitrænna. Þorlák- ur passaði í vestur, Gottlieb vakti á 1♥ og fékk spaðasvar. Nú doblaði Þorlák- ur til úttektar með láglitina. Norður redoblaði, Jón sagði 2♣ og Fredin 4♠. Með ♦G út fást 11 slagir, en Þorlákur spilaði út laufi og vörnin tók þar tvo slagi. En Fredin las vel í sagnir, djúp- svínaði ♠9 og vann sitt spil. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.