Morgunblaðið - 04.02.2010, Qupperneq 32
Sett Tökur sem þessar þurfa jafnan heljarinnar mannskap.
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
FÉLAGARNIR úr Vaktaþáttunum; þeir
Georg, Ólafur Ragnar og Daníel, sneru aftur í
gærkvöldi á kunnuglegar slóðir, bensínstöðina
við Laugaveg þar sem Vakta-ævintýrið hófst
með Næturvaktinni. Verkefnið var þó af öðrum
toga, að taka upp efni í sjö stutt innslög til að
minna Íslendinga á mikilvægi kvikmynda- og
þáttagerðar og vekja athygli á niðurskurði rík-
isins á styrkjum til kvikmyndagerðar og þeim
fyrirætlunum ríkisútvarpsins að skera hressi-
lega niður í innkaupum á íslensku, leiknu sjón-
varpsefni og kvikmyndum.
Public announcement
„Það vantar gott, íslenskt orð fyrir þetta en í
Ameríku kalla þeir þetta „public announce-
ment“,“ sagði kvikmynda- og sjónvarpsþátta-
leikstjórinn Ragnar Bragason í gær. Tilkynn-
ing til almennings. „Fólk er að kalla eftir
íslenskum kvikmyndum og sjónvarpsefni, að
það sé partur af okkar menningu til framtíðar,“
segir Ragnar.
Fólkið sem gerði Vaktaþættina og kvikmynd-
ina Bjarnfreðarson stendur að gerð þessara
innslaga eða tilkynninga en Sagafilm lagði til tól
og tæki og er rétthafi að myndefninu. „Þetta
eru þessar þrjár lykilpersónur, Ólafur, Georg
og Daníel úr Vaktaþáttunum,“ segir Ragnar.
Næturvaktin verði endurvakin í eitt andartak
og í innslögunum verði ákveðnar rang-
hugmyndir um íslenska kvikmyndagerð.
„Hef trú á því að hægt sé að laga þetta“
Ragnar hefur gagnrýnt niðurskurð ríkisins í
framlögum til kvikmyndagerðar harðlega að
undanförnu. „Maður verður bara að tjá sig um
þetta, þetta er orðið nett þreytandi fyrir ís-
lenska kvikmyndagerðarmenn, að vera sífellt
að réttlæta tilvist kvikmynda og sjónvarps-
efnis,“ segir Ragnar. Aðrar menningarþjóðir
hafi áttað sig á mikilvægi kvikmyndagerðar fyr-
ir mörgum áratugum og kvikmyndir settar
jafnhátt opinberlega og aðrar listgreinar.
„Fólk er misbölsýnt. Ég hef trú á því að það
sé hægt að laga þetta og að stjórnvöld, forsvars-
menn þessa lands, átti sig á því menningarslysi
sem er í uppsiglingu. Við erum ekki, ef ég á að
vera alveg hreinskilinn, að tala um sérstaklega
háar upphæðir, í heildarsamhengi hlutanna.“
Næturvaktin endurvakin
Georg Bjarnfreðarson og félagar sneru aftur á bensínstöðina í gær til að leiðrétta ákveðnar rang-
hugmyndir um íslenska kvikmyndagerð Sjö stutt innslög verða tekin upp og þeim beitt í baráttunni
Nei, svona! Ragnar Bragason kemur skila-
boðum til Péturs Jóhanns Sigfússonar. Ólafur
Ragnar mun efalaust snara út gullmolunum.
Hress Ragnar Bragason leikstjóri var vel
stemmdur. Ragnar hefur verið kraftmikill í
réttindabaráttu kvikmyndagerðarmanna.
Morgunblaðið/Heiddi
Grínaktugt Þeir félagar, Daníel og Ólafur Ragnar komnir í blússandi gír, enda á gömlum og (kærum) heimaslóðum.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2010
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
SVEPPI – BJÖRGVIN FRANS – GÓI FRÁBÆR TEIKNIMYND
ÞAR SEM SVEPPI FER Á KOSTUM
Í HLUTVERKI LEMMAFrá höfundi SHREK
Sýnd með íslensku tali
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
FRÁ RAGNARI BRAGASYNI KEMUR EIN B
BJARNFREÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
DENZEL WASHINGTON
OG GARY OLDMAN
ERU FRÁBÆRIR
Í ÞESSARI MÖGNUÐU
SPENNUMYND
Í ANDA I AM LEGEND
OG MAD MAX
Í , KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Fráskilin..með fríðindum
Frá höfundi/
leikstjóra
SOMETHING'S
GOTTA GIVE
SÝND Í KRINGLUNNI
HHH
-T.V., KVIKMYNDIR.IS
TILNEFND TIL 3
GOLDEN GLOBE
VERÐLAUNA
FRÁBÆR MYND
/ KRINGLUNNI
THE BOOK OF ELI kl. 5:50D - 8:10D - 10:40D 16
IT'S COMPLICATED kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
SHERLOCK HOLMES kl. 8 - 10:40 12
PLANET 51 m. ísl. tali kl. 5:50D L
/ ÁLFABAKKA
THE BOOK OF ELI kl. 8D - 10:30D 16 DIGITAL SHERLOCK HOLMES kl. 5:20 - 8 - 10:40 12
WHERE THE WILD THINGS ARE kl. 5:50 - 8 - 10:30 7 BJARNFREÐARSON kl. 5:50 - 8 - 10:30 L
UP IN THE AIR kl. 8 - 10:20 L
PLANET 51 m. ísl. tali kl. 5:50D L DIGITAL
SHERLOCK HOLMES kl. 5:20-8-10:40 LÚXUS VIP