Ísfirðingur - 19.02.1975, Page 3
ISFIRÐINGUR
3
Dónardægur
Guðmundur Geir Yngvason,
Engjavegi 27 ísafirði, andað-
ist aðfaranótt 18. þ.m. Hann
var efnilegur ungur maður, en
hafði átt við veikindi að stríða
að undanförnu. Hann var
fæddur 27. nóvember 1953.
— Frá Lions-
klúbbnum
Framhald af 1. síðu
við augnsjúkdóma eiga að
stríða.
Þá skal þess getið að í byrj-
un yfirstandandi starfsárs
ákvað Lionsklúbbur ísaf jarðar
að gefa kr. 100.000. — til
Rauöakrossdeildar á ísafirði
og skal því fé varið til kaupa
á sjúkrabifreið. Þá gaf klúbb-
urinn kr. 50.000. — til sjó-
slysasöfnunarinnar tii minn-
ingar um Jón Ben Ásmunds-
son umdæmisstjóra. Af sama
tilefni voru einnig gefnar kr.
50.000. — af Lionsklúbbnum
Sigurði Lúter, Fossbóli, Þing-
eyjarsýslu. Að síðustu skal
þess getið, að eins og undan-
farin ár gaf klúbburinn pen-
Biðjið verslun yðar
um vörur frá:
Efnagerðinni F L Ó R U
Brauðgerð K E A
Kjötiðnaðarstöð K E A
Smjörlíkisgerð K E A
Reykhúsi K E A
Efnaverksmiðjunni S J ö F N
Kaffibrennslu Akureyrar
SENDUM beint til verzlana, gistihúsa
og matarfélaga.
FLJÓT og ÖRUGG afgreiðsla.
VERKSMIÐJUAFGREIÐSLA
AKUREYRI — SlMI: (96)21400
ingagjöf til Stellusjóðs og
bókagjöf til Elliheknilisins
fyrir jólin.
Lionsmenn afla peninga til
verkefna sinna einkum á tvo
vegu: Með beinni þáttöku
bæjarbúa og þá fyrst og
fremst með blóma- og sælgæt-
issölu og með eigin vinnu, en
harðfiskverkun hefur verið
snar þáttur í fjáröflun klúbbs-
ins nú í nokkur ár.
Skylt er að geta, að undir-
tektir bæjarbúa hafa aila tíð
verið á einn veg, enda hefðu
Lionsmenn ekki komið þvi í
framkvæmd, sem raun ber
vitni, ef svo hefði ekki verið.
Fyrir þetta vilja félagar í
Lionsklúbbi ísafjarðar þakka
af heilum huga. Þá skulu
Súðvíkingum færðar þakkir,
en þeir hafa ávalt tekið
klúbbfélögum vel, er til þeirra
hefur verið leitað, en ennþá
a.m.k. hagar svo til, að starfs-
svæði klúbbsins nær í raun
ekki til Súðavíkur.
Að endingu skulu svo ítrek-
aðar þakkir Lionsklúbbs ísa-
fjarðar til allra þeirra er
hafa stutt hann í starfi á
undanförnum árum. Markmið
Lionshreyfingarinnar er að
þjóna og það er von félaga í
Lionsklúbbi ísafjarðar að
þeim megi hér eftir sem hing-
að til auðnast að stuðla að
framgangi velferðar- og fram-
faramála byggðarlagsins.
(Fréttatilkynning).
OSTA-OG SMJÖRSALAN s.f. snorrabraut 54.
Firmakeppni
Skíðaráðsins
Firmakeppni Skíðaráðs ísa-
fjarðar var haldin á Selja-
landsdal laugardaginn 8. febr.
Áttatíu og átta fyrirtæki tóku
þátt í keppninni.
Sigurvegari varð Fólksbíla-
stöðin. Keppandi, Gunnar B.
Ólafsson. 2. v/b Bára 3. Hjól-
Tannlæknir
Á fundi bæjarráðs 3. þ.m.
var mættur KetiU Högnason,
tannlæknir, til viðræðna við
bæjarráð um möguleika á því,
að fá til bæjarins annan tann-
lækni. Upplýst var að Pétur
Svavarsson, tannlæknanemi,
væri reiðubúinn að flytjast til
bæjarins að uppfyUtum ákv-
eðnum skilyrðum, svo sem um
húsnæði.
Bæjarráð óskaði eftir þvi
að KetiU Högnason talaði við
Pétur og segði honum, að það
væri vilji bæjaryfirvalda hér,
að hann kæmi til starfa og
húsnæði gæti verið tU staðar.
barðaverkstæði Björns Guðm-
undssonar. 4. Rafmagnsveita
Ríkisins. 5. Trésmíðaverkstæði
Daníels Kristjánssonar.
Skíðaráð ísafjarðar þakkar
þeim fyrirtækjum sem þátt
tóku í Firmakeppni fyrir
veittan stuðning.
Hundahald
Á fundi heilbrigðisnefndar
Isafjarðar þann 4. þ.m. var
gerð svofeUd bókun:
„Heilbrigðisnefnd hefur séð
„Tillögu að samþykkt um
skepnuhald í ísafjarðarkaup-
stað”. Vegna þessarar tillögu
vill heilbrigðisnefnd lýsa and-
stöðu sinni við aUt hundahald
í þéttbýli. Hundahald sam-
rýmist ekki búsetu fólks í
þéttbýli”.
Þessi bókun heilbrigðis-
nefndar eru vissulega orð í
tíma töluð. Hundahald er
bannað í ísafjarðarkaupstað.
En þó hafa verið og eru ennþá
til nokkrir einstaklingar sem
virðast gera sér leik að því að
brjóta ákvæði samþykktar-
innar um þessi efni. Það er
ekkert nýtt að sjá börn og
unglinga sem verða mjög
hrædd við hundana þegar þeir
hlaupa um götur bæjarins,
snuðrandi og geltandi og eftir-
litslausir. Væntanlega geta
nvill
vera
án orku
Og enginn þarf að vera þa3 lengur.
Við getum nú útvegað nyjar Demco diesel-rafstöðvar
frá 10—-1000 kw. 50 og 60 riSa.
DEMCO diesel-rafstöðvar eru algjörlega sjálfstæSar
með vatnskælikerfi, vél og rafal byggt á mjög sterkan
stálsleða.
DEMCO diesel-rafstöðvar eru þekktar af áralangri
reynslu traustbyggðar og öruggar.
40% þeirra rafstöðva, sem bandarlska rikísstjórnin
kaupir eru frá Demco.
DEMCO diesel-rafstöðvar eru færanlegar með
tengingum fyrir mismunandi volt.
Þær eru mjög hentugar fyrir einstaklinga og iðnað,
og sem vararafstöðvar veita bær stöðugt öryggi.
HF HÖR9UR
GUNNARSS0N
HEILDVERSLUN - SKÚLATÚNI 6 - REYKJAVlK - SIMI 19460
Verkstæðishúsnæði til sölu
Verkstæðishúsnæði mitt við Fjarðarstræti á ísafirði
er til sölu. Húsnæðið er um 100 ferm., einangrað
og upphitað.
Tilboð óskast, og verði þeim skilað til undirritaðs
fyrir 10. mars n.k.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem
er, eða hafna öllum.
Sigurleifur Jóhannsson
Sundstræti 22, ísafirði
Sími: 3517
Innilegt þakklæti sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna fráfalla eiginmanna
okkar.
Ennfremur færum við öllum bestu þakkir sem styrktu
okkur fjárhagslega.
Lifið heil.
Ragna Sólberg, Sesselja Ingólfsdóttir,
Kolbrún Sigurðardóttir.
hundaeigendur fallist á það
að böm og unglingar sem eru
að alast hér upp í bænum séu
rétthærri en hundar.
Þá þykir flestum bæjarbú-
um það ekki til fyrirmyndar
þegar hundaeigendur eru að
draga hunda sína með sér
inn í matvörubúðir.
Til sölu
Bifreiðin í 393 Toyota
Corona M K II árgerð 1972
upplýsingar gefur Björn
Hermannsson.
Sími 3552.